Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 8
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR8
1. Hvar mun Bubbi Morthens
halda tónleika í nýrri þáttaröð
sinni?
2. Hvaða menntaskóli er líklega að
leggja upp laupana?
3. Hvaða stjarna gekk þvert yfir
sólina síðustu daga?
SVÖR
1. Á bóndabæjum 2. Menntaskólinn
Hraðbraut 3. Venus
Hollusta í hvelli!
Gamli, góði hafragrauturinn í handhægu máli sem auðvelt
er að grípa með sér hvert sem er. Þú bætir við heitu vatni
og hann er tilbúinn á tveimur mínútum.
1
HRISTA
2
HELLA
3
HRÆRA
4
HINKRA
5
HRÆRA
2
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
2
3
2
3
SJÁVARÚTVEGUR Samtök fiskfram-
leiðenda og útflytjenda (SFÚ)
telja að ef fiskveiðistjórnunar-
frumvarpið sem liggur nú fyrir
Alþingi verði óbreytt að lögum,
gæti það markað endalok fisk-
markaða og þar af leiðandi rekst-
urs sjálfstæðra fiskverkana. Þær
séu að langmestu leyti háðar
mörkuðum um hráefni og í núver-
andi kerfi þrífist mismunun.
Á fundi SFÚ í gær gagnrýndi
Jón Steinn Elíasson, formaður
samtakanna, það að ekki væri
minnst á breytingar á fyrirkomu-
lagi fiskmarkaða í frumvarpinu.
Um 2.500 störf hjá á fimmta
tug aðildarfyrirtækja SFÚ eru í
hættu, samkvæmt skýrslu Ólafs
Arnarsonar hagfræðings, sem
kynnt var á fundi samtakanna í
gær. Þeim er áætlað að fylgi um
7.500 afleidd störf sem einnig
væri ógnað.
„Krafa okkar er tvíþætt“, sagði
Gunnar Örlygsson, hjá AG Sea-
food í Reykjanesbæ, en hann var
meðal frummælenda á fundinum.
„Í fyrsta lagi viljum við fá fisk
inn á fiskmarkaðina með því
að skylda útgerðina til að landa
ákveðnu hlutfalli af fiski, helst
öllum, á innlenda fiskmarkaði.“
Með því segir Gunnar að megi
rétta hlut sjálfstæðrar fiskvinnslu
sem hafi hingað til þurft að greiða
30 til 40 prósentum hærra verð
fyrir fisk á markaði en vinnslur
útgerðarmanna greiði fyrir fisk
af sínum skipum.
„Það er með ólíkindum að hið
opinbera skuli styðja þetta fyrir-
komulag og leyfa samkeppnism-
ismunun að þrífast í skjóli lag-
anna.“
Seinni krafa SFÚ lúti að því að
allur fiskur sem hingað til hefur
verið settur í gáma og fluttur úr
landi, fari nú á markað.
Gunnar sagði tugi þúsunda
tonna af fiski fara óunnin úr
landi með þessum hætti í stað
þess að fara til vinnslu hér á
landi. Í ríkjandi atvinnuástandi
sé „með ólíkindum“ að stjórnvöld
hafi ekki gripið í taumana.
„Íslensk fiskvinnsla muni þá
njóta þess lágmarksréttar að fá
að bjóða í íslenskan fisk.“
Gunnar sagði það sýna fram
á ábyrgðarleysi stjórnvalda að í
frumvörpum ríkisstjórnarinnar
skuli ekki koma fram breyting-
artillaga um verðmyndunarmál
og fiskmarkaðsmál.
Jón Steinn sagði breytingar
á fiskveiðistjórnunarkerfinu
þegar hafa haft þau áhrif að
stóru útgerðarfyrirtækin séu
síður að leigja frá sér kvóta og
það skili sér í minna fiskmagni
inn á markaðina.
Aðspurður um aðgerðir
útvegsmanna síðustu daga og
vikur sagði Jón Steinn að um
alvarlegt mál væri að ræða.
„Við höfum ekki haft neitt hrá-
efni til að vinna úr síðustu daga
nema úr strandveiðunum. En
þetta sýnir okkur hvað LÍÚ er
sterkt. Það getur þarna sett rík-
isstjórnina upp við vegg og það
er ekki góð þróun.“
thorgils@frettabladid.is
Mismunun sögð ríkja í skjóli
laga um stjórnun fiskveiða
Sjálfstæðar fiskvinnslur gagnrýna að ekkert í fiskveiðistjórnunarfrumvarpi lúti að því að jafna samkeppn-
isstöðu vegna hráefniskaupa. Mismunandi reglur um kaup á afla halli á fiskverkanir án útgerða. Vilja fá
SEGJA MISMUNUN RÍKJA Þeir Jón Steinn Elíasson, Gunnar Örlygsson og Ólafur Arnarson voru frummælendur á fundi SFÚ í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
RANNSÓKN Rannsóknarnefnd um fall sparisjóðanna
mun skila Alþingi lokaskýrslu í fyrsta lagi þann 1.
september næstkomandi. Nefndarmaður á þó frekar
von á því að skilin dragist fram eftir árinu 2012.
Í þingsályktunartillögu um skipun rannsóknar-
nefndarinnar segir að hún eigi að „skila forseta
Alþingis skýrslu eigi síðar en 1. júní 2012 um rann-
sóknina ásamt þeim samantektum og úttektum sem
nefndin ákveður að láta vinna í þágu rannsóknar-
innar.“ Bjarni Frímann Karlsson, lektor í viðskipta-
fræði, sem situr í nefndinni segir það hafa dregist í
þrjá mánuði að skipa nefndina frá því að þingsálykt-
unin var samþykkt. „Við vorum því í raun ráðin frá
1. september og ráðin til árs. Það er erfitt að segja til
um það núna hvenær við ljúkum störfum nákvæm-
lega. Ég á von á að það dragist eitthvað aðeins fram
eftir ári.“
Í september 2011 var líka skipuð nefnd til að rann-
saka starfsemi Íbúðalánasjóðs frá árinu 2004 og til
ársloka 2010. Í þingsályktunartillögu vegna þeirrar
skipunar segir að hún skuli skila „um hana [rann-
sóknina] skýrslu til Alþingis innan sex mánaða frá
skipun nefndarinnar“. Hún hefði því átt að skila
skýrslu sinni í byrjun mars síðastliðins. Sigurður
Hallur Stefánsson, fyrrverandi héraðsdómari og
formaður nefndarinnar, segir stefnt að því að skila
skýrslu til Alþingis í haust. „Það er svolítið erfitt að
ákveða endapunkt. Þetta verk er ekki þannig að það
sé auðvelt að segja til um hann. En það er verið að
vinna á fullu og stefnan er sett á að skila niðurstöðum
í haust.“ - þsj
Rannsóknarnefndir um fall sparisjóða og starfsemi Íbúðalánasjóðs:
Nefndirnar ætla að skila í haust
SPARISJÓÐIR Önnur nefndin á að varpa sem skýrustu ljósi á
aðdraganda og orsakir rekstrarerfiðleika íslenskra sparisjóða
sem leiddu meðal annars til gjaldþrots margra þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KÍNA, AP Varðstöðvar, eftirlits-
myndavélar og annar viðbún-
aður er horfinn úr þorpinu þar
sem blindi andófsmaðurinn Chen
Guangcheng var hafður í stofu-
fangelsi í tæp tvö ár.
Chen flúði úr stofufangelsinu
í apríl og fékk síðan að fara til
Bandaríkjanna til náms ásamt
fjölskyldu sinni.
Íbúar þorpsins fundu illilega
fyrir öryggisráðstöfunum meðan
Chen var þar í stofufangelsi, en
segjast nú loksins geta um frjálst
höfuð strokið. - gb
Öryggisbúnaður horfinn:
Geta um frjálst
höfuð strokið
CHEN GUANGCHENG Kom til Banda-
ríkjanna í lok maí. NORDICPHOTOS/AFP
FERÐAÞJÓNUSTA Ör fjölgun ferða-
manna hér á landi er verkefni sem
nauðsynlegt er að horfast í augu
við, að mati Ólínu Þorvarðardótt-
ur, þingmanns Samfylkingar.
„Það er mikill ágangur á vinsæla
staði og nýleg skýrsla sýnir að það
er vaxandi óánægja meðal ferða-
manna með mannmergðina,“ segir
Ólína. „En þetta verður að vera
sameiginlegt verkefni stjórnvalda
og ferðaþjónustunnar.“
Að mati Ólínu verður ferðaþjón-
ustan í landinu að horfast í augu
við að það sé ekki einungis verk-
efni stjórnvalda að byggja upp þá
auðlind sem Ísland er fyrir ferða-
menn. Brýnt sé að halda nánu sam-
starfi beggja aðila í uppbyggingu
ferðamannastaða.
„Ég held að ferðaþjónustan þurfi
að taka sér tak og leggja sitt af
mörkum. Stjórnvöld hafa verið að
sinna þessum málum, meðal annars
með átökum til að tryggja jafnari
dreifingu ferðamanna yfir árið,“
segir hún. „En það má ekki ríkja
gullgrafaraástand í ferðaþjónust-
unni, sem að mínu mati hefur verið
ákveðin tilhneiging til.“
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir nauðsynlegt að fá frekara
fjármagn frá stjórnvöldum inn í
framkvæmdir við vinsælustu stað-
ina á landinu.
„Auðvitað er nauðsynlegt að
hafa þessa hluti í lagi. En það kost-
ar peninga og það hefur því miður
ekki verið sett mikið í rannsóknir
eða uppbyggingu á ferðamanna-
stöðum,“ segir hún. „Þetta eru
gríðarlega mikilvæg mál. Þegar
ferðaþjónustan er orðin svona öflug
verður stjórnsýslan að taka það
alvarlega og setja peninga í hana
eins og hefur verið gert við aðrar
atvinnugreinar.“ - sv
Þingmaður Samfylkingar kallar eftir auknu samstarfi stjórnvalda og ferðaþjónustuaðila:
Varast gullgrafaraástand í ferðaþjónustu
FERÐAMENN VIÐ SKÓGAFOSS Búist er
við allt að 700 þúsund erlendum ferða-
mönnum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?
Það er með
ólíkindum að hið
opinbera skuli styðja þetta
fyrirkomulag og leyfa sam-
keppnismismunun að þrífast í
skjóli laganna.
GUNNAR ÖRLYGSSON
FISKVERKANDI