Fréttablaðið - 08.06.2012, Page 36
10 ¿ LÍFIÐ 8. JÚNÍ 2012
HAMINGJUHORNIÐ
Heiðar Jónsson
NÝTUR ÞESS
AÐ VERA AFI
Hvað gerir þú til að tæma hug-
ann eftir erfiða vinnuviku?
Hlusta, eða horfi á óperu. Fer og
hitti afastrákinn minn. Tala við
börnin mín og afastelpuna í Am-
eríku.
Hvernig hleður þú batteríin?
Með því að fara í sveitina ef
tíminn leyfir. Annars fer ég bara
í labbitúr hér í nágrenninu og
sundsprettur svíkur mig yfir-
leitt ekki.
Hugleiðir þú eða notar þú aðrar
aðferðir til að rækta hugann?
Bið bænirnar mínar og dett inn í
mína uppáhaldshugleiðslu sem
tengist ömmu Stefaníu og barn-
æskunni.
Amma Stefanía laggði (hennar
stafsetning) sig, utan í Helguhól,
við Krossa, ef veður var gott.
Þar komst hún í gott samband
við vinkonu sína. Hún heitir
Helga og er álfkona sem býr í
hólnum. Ég vildi vera hjá henni
en var oft óvær (alltaf verið of-
virkur)! Þá saggði hún mér (aftur
hennar stafsetning) að fara úr
skóm og sokkum og vaða út í
mórauðu mýrina og láta hlýjuna
í járnblönduðu mórauðu mýrar-
vatninu róa mig. Svo kom ég
rór og sæll og laggði (eins og
áður) mig í handarkrikann henn-
ar. Viss um að hún habbði (aftur
eins og áður) ekki ögmund um
að rótarstöðin okkar er mórauð.
Þegar ég er sorgmæddur, er kalt
á tánum eða get ekki sofnað,
flýg ég á vængjum hugans yfir
Faxaflóann. Leggst svo í fang
ömmu og læt hana senda mig
út í volgruna.
Þessi minning og hugleiðsla
læknar öll mín sár!
LOVÍSA ÁRNADÓTTIR
fjölmiðlakona
Hvað á að gera í sumarfríinu?
„Ég er nýkomin úr dásamlegu og rómantísku fríi
á Ítalíu, þar sem við unnusti minn ráfuðum um
litlar þröngar götur í þorpinu Mattinata, borðuð-
um geggjaðan mat og böðuðum okkur í túrkís-
bláum sjó. Svo ætla ég að nota afganginn í frí
með syninum, tveggja ára, í júlí. Ég hlakka mikið
til.“
Nú fórstu út með Eurovision-hópnum til Bakú.
Hvað fannst þér um sænska sigurvegarann?
„Loreen var jarðbundin, sjálfsörugg og ein falleg-
asta kona sem ég hef hitt. Hrikalega flott týpa.
Svo var hún áhugasöm um Ísland og spurði
margra spurninga um landið og tungumálið.“
DILJÁ ÁMUNDADÓTTIR
varaborgarfulltrúi Besta flokksins
Sumarið fram undan?
„Ég seldi íbúðina mína og hætti í vinnunni með
nokkurra daga millibili um daginn og ætla í smá
reisu sem vill svo til að nær hringinn í kringum
heiminn – þó að ég komi ekki við í öllum álfun-
um. Ég fer af stað í byrjun ágúst en áður en ég
legg í hann ætla ég að ganga með fjölskyldunni
í náttúrufegurðinni á Hornströndum, fljúga um
loftin blá í svifvængjaflugi (paragliding) og vera
eins mikið í íslenskum sundlaugum og ég get.
Áætluð sumarleyfislok 2012 er rétt fyrir jólin,
en svo veit maður aldrei.“
KATRÍN BRYNJA HERMANNSDÓTTIR
flugfreyja, blaðamaður og Lottóþula
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
„Fyrir utan að vinna í einni skemmtilegustu vinnu
í heimi þar sem maður hittir ógrynni af frábæru
fólki þá lengist „bucket-listinn“ fyrir sumarið
mjög hratt. Þar er sjósund efst á listanum og
við Kolla vinkona ætlum að láta verða af því.
Svo stefni ég á 10 kílómetra í ágúst (guð minn
góður!).
Og svo væri tær snilld ef reyndur fallhlífa-
stökkvari væri til í að taka mig með sér í stökk en
mér skilst að það sé eitthvað ólýsanlega magn-
að. Inn á milli eru molarnir mínir númer eitt, eins
og alltaf.“
SÆTAR Í SUMARSKAPI
MYNDIR/EINKASÖFN
ÚTSALAN HEFST Í DAG!