Fréttablaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 53
FÖSTUDAGUR 8. júní 2012 37
Ekki hefur verið ákveðið hvort
framhald verður gert af spennu-
myndinni Prometheus. Þetta segir
handritshöfundurinn Damon Linde-
lof. Prometheus fór beint á toppinn
yfir aðsóknarmestu myndir Bret-
lands um síðustu helgi og hefur
fengið góðar viðtökur gagnrýnenda.
Lindelof ræddi oft við leikstjór-
ann Ridley Scott um hversu mikið
yrði afhjúpað í myndinni. „Ég sagði
við hann: „Fólk gæti orðið pirrað ef
við ætlum að halda aftur af okkur.
Við þurfum að hugsa vel og vand-
lega um hverju við viljum sleppa
því það er alls ekki öruggt að fram-
haldsmyndir verði gerðar,“ sagði
Lindelof.
Óvíst með framhald
PROMETHEUS Kvikmyndin Prometheus
hefur fengið góðar viðtökur.
Ungstirnið Miley Cyrus er trú-
lofuð ástralska leikaranum Liam
Hemsworth. Þau hafa verið
saman í þrjú ár en þau staðfesta
bæði trúlofun sína við blaðið
People. „Ég er svo hamingjusöm
yfir að vera trúlofuð og hlakka
til að eyða ævinni með Liam,“
segir hin 19 ára leik- og söng-
kona í viðtali við blaðið. Parið
hittist við tökur á myndinni The
Last Song en Hemsworth bað
stúlkunnar hinn 31. maí síðast-
liðinn. Hemsworth sló í gegn í
myndinni The Hunger Games en
hann er nú við tökur á myndinni
Empire State í New Orleans.
Trúlofuð
TRÚLOFUÐ Hin 19 ára gamla Miley
Cyrus og leikarinn Liam Hemsworth
opinberuðu trúlofun sína í lok maí.
NORDICPHOTOS/GETTY
Elíza Newman hefur gefið út
lagið Stjörnuryk, sem er fyrsta
lagið af þriðju sólóplötu hennar
sem er í undirbúningi í London.
Áætlað er að platan komi út í
ágúst. Hún verður frábrugðin
fyrri plötum Elízu því hún verð-
ur eingöngu á íslensku.
Stjörnuryk er upplífgandi
popplag með jákvæðum boð-
skap sem ætti að höfða til flestra
í sumarstuði. Það var samið af
Elízu og var Gísli Kristjáns-
son upptökustjóri. Hann
stjórnaði einnig upp-
tökum á síðustu sóló-
plötu Elízu, Pie
in
the
Sky.
Lagið
er fáanlegt
á Tonlist.
is og Gogo-
yoko.
Elíza með
Stjörnuryk
NÝTT LAG
Fyrsta lagið
af næstu plötu
Elízu Newman er
komið út.
Með heilaæxli
Tónlistarkonan Sheryl Crow
greindist með heilaæxli í nóvem-
ber í fyrra en þessu greindi Crow
frá í viðtali við blaðið Las Vegas
Review á dögunum. Crow segir
æxlið vera góðkynja en hún þurfi
að fara reglulega til læknis sem
fylgist með þróuninni. „Ég fór
fyrst til læknis því mér fannst
ég vera orðin svo gleymin. Það
er engin ástæða til að vera með
áhyggjur, þetta er bara smá
hraðahindrun á lífsleiðinni,“ segir
Crow en hún var meðal annars
farin að gleyma söngtextunum á
tónleikum.
Leikkonurnar Elizabeth Taylor
og Mary Tyler Moore voru með
svipaða tegund af æxli í heila.
Crow greindist með brjósta-
krabbamein árið 2006 sem var
uppgötvað snemma og hún sigr-
aðist á. Á Facebook-síðu söngkon-
unnar þakkar Crow aðdáendum
sínum fyrir fallegar kveðjur og
segir þeim ekki að hafa áhyggj-
ur, henni líði vel.
VAR GLEYMIN Sheryl Crow fór til læknis
síðasta haust vegna þess að hún var
farin að gleyma textunum við lögin
sem hún var að flytja.
NORDICPHOTOS/GETTY