Fréttablaðið - 08.06.2012, Side 62
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR46
„Þetta hefur gengið óvenju hratt
fyrir sig og verið mikið leyndarmál
að ósk leikstjórans,“ segir Davíð
Óskar Ólafsson, einn framleiðenda
myndarinnar Á annan veg sem
nýverið var endurgerð í Hollywood.
Leikstjórinn David Gordon
Green leikstýrir en endurgerðin
nefnist Prince Avalanche og skart-
ar þeim Paul Rudd og Emile Hirsch
í aðalhlutverkum.
Davíð segir að ferlið hafi fyrst
farið af stað fyrir nokkrum mán-
uðum en það var fyrir tilstuðlan
leikmyndahönnuðar myndarinn-
ar, Hálfdáns Petersen, sem Gordon
Green fékk veður af Á annan veg. Í
byrjun febrúar á þessu ári fór bolt-
inn að rúlla og nú er tökum lokið og
myndin komin á klippiborðið.
„Gordon Green var með aðra
mynd í framleiðsluferli þegar
hann ákvað að gera þessa. Hann
heillaðist af einföldu sögunni og
sagði okkur að hann vildi leita
aftur til upprunans með því að
gera myndina, en hann byrjaði
feril sinn á að gera indí-kvikmynd-
ir. Hann vildi gera þetta utan kast-
ljóss fjölmiðlanna en fréttin lak út
fyrr en þeir ætluðu,“ segir Davíð
sem segir símtalið frá Hollywood
í byrjun árs hafi verið einstaklega
skemmtilegt. „Við vorum ekki að
trúa þessu fyrst en við erum mjög
glaðir og þetta opnar margar dyr
fyrir okkur sem framleiðslufyrir-
tæki og fyrir leikstjórann, Haf-
stein Gunnar Sigurðsson. Það
virðist vera einhver tískubóla í
Hollywood að leita til norrænnar
kvikmyndagerðar þessa stundina
og Gordon Green fylgist mjög vel
með.“
Davíð er nýkominn heim frá
Texas þar sem honum og Árna
Filippussyni, meðframleiðenda
hans hjá fyrirtækinu Mystery,
var boðið að fylgjast með lokadög-
unum í tökum sem lauk í síðasta
mánuði. „Þetta var alveg svaka-
lega skemmtilegt að fá að fylgj-
ast með tökum en þeir hafa verið
mjög opnir og leyft okkur að fylgj-
ast með öllu ferlinu frá upphafi til
enda,“ segir Davíð sem getur ekk-
ert sagt um hvenær myndin sést á
hvíta tjaldinu.
En urðu þeir ríkir af ævintýr-
inu? „Við erum allavega mjög sátt-
ir, meira get ég ekki sagt.“
alfrun@frettabladid.is
FÖSTUDAGSLAGIÐ
Enski tónlistarmaðurinn Elvis Costello sem spilar
í Hörpunni á sunnudagskvöld er hógvær í kröfum
varðandi það sem hann vill hafa hjá sér baksviðs.
Hann er greinilega mikill tedrykkjumaður því
samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vill hann hafa
hjá sér nóg af tei, ávaxtakörfu með auka sítrónum,
hunangskrús, brauð og grænmeti. Hann vill einnig
tvær flöskur af góðu rauðvíni og innflutta osta.
Costello ætlaði upphaflega að koma hingað til
lands 21. nóvember en vegna veikinda föður síns
varð hann að fresta tónleikunum. Ótti Costello
reyndist á rökum reistur því faðir hans lést í kjölfar
veikinda sinna í desember.
Kappinn er að heimsækja Ísland í annað sinn.
Síðast kom hann hingað 2003 með eiginkonu sinni,
söngkonunni Diana Krall. Þá hélt hún vel heppnaða
tónleika í Laugardalshöll og allar götur síðan hefur
fyrirtækið Concert unnið að því leynt og ljóst að fá
Costello til landsins.
Tónleikar hans verða í Eldborgarsalnum. Örfáir
miðar eru fáanlegir á Midi.is og Harpa.is. - fb
Costello vill rauðvín og osta
HÓGVÆR Elvis Costello er hógvær í kröfum sínum og ætlar að
gæða sér á góðum ostum með rauðvínsglas í hendi.
„Ég hef lúmskt gaman af því að
skrifa og þá helst um eitthvað sem
getur verið uppbyggjandi eða fræð-
andi fyrir aðra en það eru einmitt
þannig bækur sem ég sjálf sökkvi
mér í,“ segir Sigrún Lilja Guðjóns-
dóttir, eigandi Gyðju Collection,
sem er meðhöfundur í nýrri bók
sem nefnist The Success Secret.
Bókin, sem er gefin út af Cele-
brity Press, kemur út í Bandaríkj-
unum í haust en ásamt Sigrún Lilju
koma fleiri frumkvöðlar í atvinnu-
lífinu um allan heim að verkinu. Þar
ber hæst nafn bandaríska metsölu-
höfundarins Jacks Canfield sem er
þekktur fyrir þátttöku sína í bók-
unum The Secret og The Chicken
Soup for the Soul. Efnistök The Suc-
cess Secret eru árangurssögur og
hagnýt ráð frá sérfræðingunum og
frumkvöðlum sem hafa náð langt á
sínu sviði.
„Hver höfundur ljóstrar upp
sínum bestu leyndarmálum um
árangur og gefur góð ráð með það
að leiðarljósi að hjálpa öðrum við að
ná árangri í markaðssetningu, við-
skiptum og í mörgum þáttum hins
daglega lífs.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Sigrún Lilja tekur þátt í að skrifa
bók á borð við þessa en hún var
einnig meðhöfundur að bókinni
The Next Big Thing sem kom út
á síðasta ári og komst á topp met-
sölulista Amazon. „Það
var í kjölfarið á velgengni
þeirrar bókar sem útgef-
andi bauð mér að taka þátt
í þessari bók líka. Ég var
fljót að samþykkja það enda
nýtur Canfield gríð-
arlegrar velgengni
og virðingar í í
Bandaríkjunum
og ég aðhyllist þá
hugmyndafræði
sem hann miðl-
ar,“ segir Sigrún
sem byrjaði að
skrifa síðasta
haust. Hennar
kafli í bókinni
fjallar um hversu mikilvægar
öflugar hugsanir séu til að ná
árangri í lífinu. „Þó að bókin
komi út á ensku á ég von á því
að hún verði fáánleg í tak-
mörkuðu upplagi í nokkrum
vel völdum bókabúðum
hér á landi í haust um
svipað leyti og hún
kemur út í Bandaríkj-
unum.“ - áp
MIÐLAR VISKU SINNI
Sigrún Lilja er með-
höfundur bókar sem
nefnist The Success
Secret.
MYND/KÁRI SVERRISSON
Meðhöfundur að nýrri bók um velgengni
„Það er Was That All It Was
sem Svala Björgvins söng með
Scope. Remixið af því lagi er
voða skemmtilegt.“
Eva María Þórarinsdóttir hjá ferðaþjón-
ustufyrirtækinu Pink Iceland.
DAVÍÐ ÓSKAR ÓLAFSSON: BÚIÐ AÐ GANGA ÓVENJU HRATT FYRIR SIG
Á ANNAN VEG SELD OG ENDUR-
GERÐ Á FJÓRUM MÁNUÐUM
HOLLYWOOD KALLAR Hollywood-leikstjórinn David Gordon Green hefur endurgert mynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, Á
annan veg, en með aðalhlutverk fara leikaranir Paul Rudd og Emile Hirsch. Tökum er lokið og myndin komin á klippiborðið en
ekki er vitað hvenær hún sést á hvíta tjaldinu.
David Gordon Green er þekktur fyrir myndir á borð við Pineapple Express,
Snow Angels og All the Real Girls. Pineapple Express er hans þekktasta mynd
en hún skartaði þeim Seth Rogen og James Franco í aðalhlutverkum.
Paul Rudd á sér langa ferilskrá í Hollywood en hann bregður sér
í hlutverk Sveins Ólafs Gunnarssonar í endur-
gerðinni. Hann hefur leikið í myndunum The
Anchorman, I Love You Man, Forgetting
Sarah Marshall, Knocked Up og The 40
Year Old Virgin.
Emile Hirsch fer með hlutverk Hilmars
Guðjónssonar í Á annan veg. Hann
hefur leikið í Milk, Into the Wild og
The Girl Next Door.
STÓRSKOTALIÐ ENDURGERIR Á ANNAN VEG