Fréttablaðið - 15.06.2012, Side 10
15. júní 2012 FÖSTUDAGUR10
REKA BÚFÉNAÐINN Kasakar reka
búfénað sinn yfir sléttur í norðanverðu
Xinjiang-héraði í Kína. NORDICPHOTOS/AFP
Herdís Þorgeirs-
dóttir forseta-
frambjóðandi var
á persónulegu nót-
unum þegar hún
kynnti framboð
sitt á hádegisfundi
hjá CCP á Granda-
garði. Í stað þess að halda hefð-
bundnar ræður leggur Herdís
áherslu á að setjast niður með fólki
og ræða málin. Heitar umræð-
ur spunnust um forsetaembættið
og framtíðarhorfur landsins yfir
gúllas súpunni sem borin var á
borð í starfsmannamötuneytinu.
Viðmælendum Herdísar varð
tíðrætt um efnahagshorfurnar,
hrunið og spillingu og spurðu Her-
dísi hvernig hún sem forseti gæti
beitt sér gegn henni. „Við þurfum
að tala hreint út um ákveðna hluti
eins og spillingu og þöggun og
mikilvægi þess að fólk hafi rödd.“
Herdís sagðist sjálf hafa mikið
rannsakað einmitt þessa þætti.
„Ég byrjaði mjög ung að skrifa
um sjálfsritskoðun og þöggun.
Mínar rannsóknir hafa gengið út á
þetta og ég er viðurkenndur fræði-
maður á þessu sviði. Hér á Íslandi
í aðdraganda hrunsins gilti þögg-
un. Þess vegna er svo mikilvægt
að það sé alltaf einhver málpípa
opin fyrir almenning.“ Því hlut-
verki segist Herdís vel geta sinnt,
enda sé hún óháð.
„Þess vegna held ég að ég gæti
orðið góður forseti. Af því að ég
er ekki tengd neinum stjórnmála-
flokki, ég er ekki með nein stór-
fyrirtæki á bak við mig og ég er
ekki með neinar valdablokkir. Ég
er ekki með nein hagsmunatengsl.“
Viðmælendur Herdísar voru
einnig áhugasamir um viðhorf
hennar til málskotsréttarins og
spurðu hana hvort hún sem for-
seti myndi skjóta málum í þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Þessu svaraði
Herdís játandi.
„Ef þingið myndi ákveða að
setja einhver lög, sem orkuðu mjög
tvímælis og þjónuðu skammtíma-
hagsmunum á kostnað verulegra
langtímahagsmuna, getur forset-
inn veitt aðhald með því að vísa
slíkum lögum í þjóðaratkvæði.“
Herdís benti á að þrátt fyrir að
á Íslandi sé fulltrúalýðræði væri
mikilvægt að muna að þjóðin hefur
ekki þar með afsalað sér öllum
völdum.
„Þó svo að við kjósum fulltrúa á
þing fyrir okkur, erum við ekki að
afsala okkur réttinum til að eiga
síðasta orðið í afar mikil vægum
málum.“
katrin@frettabladid.is
Tölum hreint út um
spillingu og þöggun
Herdís Þorgeirsdóttir, heimsótti CCP á dögunum. Hún sagði mikilvægt að fólk
gæti leitað til forseta sem væri hlutlaus og minnti á að almenningur sé ekki
búinn að afsala sér rétti til að eiga síðasta orðið, þrátt fyrir fulltrúalýðræðið.
HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR heimsótti CCP á dögunum og ræddi um forsetaframboðið
við starfsfólk fyrrtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þó svo að við kjósum
fulltrúa á þing fyrir
okkur, erum við ekki að
afsala okkur réttinum til að
eiga síðasta orðið í afar
mikilvægum málum.
EKTA ÍSLENSKT SUMAR
Sigurjón M. Egilsson
stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur
SAMFÉLAGSMÁL „Ég veit að börn
hafa hætt í íþróttum vegna rass-
skellinganna,“ segir Þorlákur
Helgason, framkvæmdastjóri
Olweusar-áætlunarinnar gegn ein-
elti. „Þetta er alveg eins og hvert
annað ofbeldi þar sem krakkar eru
að reyna að komast inn í hópana.
Þetta á að afnema með öllu og það á
ekki að fara neina millileið.“
Nýliðavígslur í landslið Íslend-
inga í hinum ýmsu íþróttagreinum
hafa tíðkast lengi. Í íslenska karla-
landsliðinu í handknattleik hefur
mikið borið á rassskellingum nýliða
undir því yfirskyni að þannig séu
þeir boðnir velkomnir. Þorlákur
segir brýnt að landsliðin sýni gott
fordæmi.
„Þarna eru fyrirmyndirnar og
krakkarnir apa þetta eftir. Það á
ekki að vera gantast eitthvað með
svona,“ segir Þorlákur. „Nýliðar
í íslenska landsliðinu tala um það
undir rós að þeir séu fegnir því að
Sigfús Sigurðsson sé ekki lengur
þar því þá yrðu þeir barðir enn þá
fastar.“
„Ég veit að þetta tíðkast í yngri
flokkum. Svona niðurlæging á sér
stað og foreldrar hafa hringt í mig
og sagt mér af því,“ segir Þorlákur.
„Þetta er bara niðurlægjandi, þetta
er ofbeldi og þetta er útilokun sem
á ekki að eiga sér stað í íþróttum.“
„Það er regla með alla krakka
að þeir reyna að telja foreldrum
sínum trú um að þetta sé leiðin til
að verða ekki útundan.“
Þorlákur segir að taka eigi á móti
nýliðum í íþróttahópum með virð-
ingu en ekki niðurlægingu. Hann
kallar ennfremur eftir því að
íþróttasamböndin setji siðareglur
um nýliðavígslurnar.
„Það verður samt sem áður að
hrósa þeim íþróttafélögum sem
hafa afnumið ofbeldið,“ segir Þor-
lákur að lokum. - bþh
Framkvæmdastjóri Olweusar-áætlunarinnar segir börn hætta í íþróttum af ótta við busavígslur:
Rassskellingar á að afnema með öllu
Þetta er bara niður-
lægjandi, þetta er
ofbeldi og þetta er útilokun
sem á ekki að eiga sér stað í
íþróttum.
ÞORLÁKUR HELGASON
FRAMKVÆMDASTJÓRI
OLWEUSARÁÆTLUNARINNAR