Fréttablaðið - 15.06.2012, Page 24
FÓLK|BÍLAR
Nýr Yaris Hybrid er væntanlegur í ár en bíl-
inn er bylting í mengunarlitlum akstri. Loks-
ins hefur Toyota þróað minni hybrid-vél sem
passar í Yarisinn án þess að minnka plássið
inni í bílnum. Bíllinn var kynntur fyrr á árinu
og hefur fengið mjög góða dóma. Prufuferðir
sem farnar voru á Yaris Hybrid sýna að allt
að 66% af tíma og 58% af vegalengd ferðanna
var hægt að aka eingöngu á rafmagni. Nú
hefur stærsti kúnnahópur Toyota aðgengi
að hybrid-tækninni. Toyota gerir ráð fyrir að
20% af öllum seldum Yarisum verði hybrid-
bílar og þess vegna er miklum peningum eytt
í að auglýsa hann erlendis. Gott pláss er í
bílnum og í T3 og T4 útgáfunni er snertiskjár
hjá framsætinu. Bílinn hefur fengið fullt hús
stiga fyrir öryggi hjá Euro NPA. Gagnrýnend-
ur segja að gott sé að keyra bílinn þó hann
sé tiltölulega kraftlítill en þeir eru þó ánægð-
astir með hversu fallegur bíllinn er, bæði að
utan og innan.
YARIS HYBRID VÆNT-
ANLEGUR Í SUMAR
Toyota hefur loksins þróað hybrid vél fyrir smá-
bílinn Yaris sem er öflugri en þær fyrri.
BYLTING
Þessi bíll er bylting í
mengunarlitlum akstri
og hefur fengið fullt hús
stiga fyrir öryggi.
BÍLL SEM GENGUR FYRIR KAFFI
Mörgum finnst kaffi ómissandi til að koma sér í gang á morgnana
en myndu þó líklega seint splæsa bolla á bílinn sinn. Það á þó
ekki við alla því árið 2010 breytti hópur breskra vísindamanna
1998-árgerð af Volkswagen Scirocco í frumlega útgáfu sem þeir
nefndu Car-puccino. Ástæðan fyrir að þeir völdu Scirocco teg-
undina var sú að þeim þótti hún líkjast tímavélinni DeLorian úr
vinsælu myndunum Aftur til framtíðar. Tilraunin var hluti af sjón-
varpsþáttaröðinni Bang Goes the Theory sem BBC framleiðir.
Til að knýja bílinn áfram er malað kaffi hitað upp með kolum
þangað til það brotnar niður í vetnisgas og kolmónoxíð. Gasið
er síðan kælt og síað og leitt inn í vélina þar sem það brennur og
knýr vélina áfram.
Í fyrstu ferð bílsins notuðu vísindamennirnir úrgangskaffi frá
kaffiverksmiðju. Ferðin náði frá London til Manchester og bilaði
bíllinn nokkrum sinnum á leiðinni.
Þessi kaffibrennslubíll sigraði síðar heimsmeistarakeppnina um
hraðskreiðasta bílinn sem gengur fyrir lífrænum úrgangi. Ólíklegt
er þó að framleiðendur sækist eftir framleiðsluréttinum þar sem
eldsneytið á kaffibílinn er á bilinu 25 til 50 sinnum dýrara en á
sambærilegan bensínbíl.
Bílaþvottur er tilvalinn kvöld- og
helgarskemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna og ekki skemmir fyrir
að hafa duglega litla aðstoðar-
menn. Við bílaþvott heima fyrir
er gott að hafa nokkur atriði í
huga.
VEÐRIÐ
Skemmtilegast er að þvo bíl og
bóna í góðu veðri þegar sólin
skín þótt það sé að sjálfsögðu
ekkert skilyrði. Séu bíleigendur
svo lánsamir að eiga bílskúr, eða
hafa aðgang að einum slíkum, er
rigning og kuldi engin afsökun. Í
sól og hita má klæða sig í stutt-
buxur og bol og sprauta smá
vatni óvart á vinnufélaga sína.
DUGLEGIR AÐSTOÐARMENN
Bílaþvottur getur auðveldlega
orðið hin besta fjölskyldu-
skemmtun. Börn og unglingar
hafa gott af því að kynnast
vinnu og fjölmörg verkefni eru í
boði fyrir ungar hendur. Samfara
bílaþvotti og bóni má taka til í
bílnum og strjúka af og hreinsa
bílinn að innan. Einnig er hægt
að fela ungviðinu sérstök verk-
efni, til dæmis að þvo bílfelgur
og henda drasli sem safnast
hefur undir sætum eða í rusla-
pokum.
HRESSING
Hollur og góður biti hressir
og kætir duglega vinnumenn á
öllum aldri auk þess sem kaldir
drykkir svala þorsta þegar hlé er
tekið á vinnu. Það er þó ekkert
sem bannar óhollan bita enda
eiga allir duglegir bílaþvotta-
menn skilið glaðning við og við.
Ef ungir aðstoðarmenn eru með
í för er tilvalið að skera niður
ávexti og grænmeti í litla bita
og bjóða upp á kalt vatn eða
svaladrykki.
GÓÐ TÓNLIST
Góður vinnudagur verður enn
betri ef vel valin tónlist fær að
hljóma. Valið ræðst auðvitað af
aldri vinnumanna en það liggur
beinast við að mæla með tónlist
úr kvikmyndinni Car Wash frá
1976. Gripurinn inniheldur
meðal annars eitt af vinsælli
lögum diskótímabilsins, „Car
Wash“ sungið af Rose Royce.
Af öðrum sem hljóma vel undir
bílaþvotti mætti nefna Guns N‘
Roses, Miles Davis og Sykur. Út-
varp Latibær hvetur síðan unga
vinnumenn til dáða.
GÓÐ RÁÐ VIÐ BÍLÞVOTTINN
Bíleigendum bjóðast margir kostir þegar kemur að bílþvotti hérlendis. Þó er
lítið mál að þvo og bóna bílinn heima fyrir.
GAMAN Bílþvottur er hin besta skemmtun fyrir alla aldurshópa. MYND/GETTY
CAR-PUCCINO
Bíllinn gengur
fyrir kaffi.
ÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Evrópski draumurinn hefst í júní
Evrópski draumurinn er einn af ótalmörgum frábærum innlendum
þáttum á Stöð 2 í sumar. Misstu ekki af frábærri dagskrá!
Tryggðu þér áskrift í síma 512 5100 eða á stod2.is
MISSTU EKKI AF FJÖRINU
Í ALLT SUMAR!
FÍ
TO
N/
SÍ
A
VÆNTANLEG SNILLD SEM ÞÚ MISSIR EKKI AF!
#STÖÐ2
SPURNINGABOMBAN
Einn vinsælasti og léttasti
spurningaþátturinn í dag!
Föstudaga kl. 20.10
DALLAS
Frægasta fjölskylda sjónvarps-
sögunnar er komin aftur!
Hefst 17. júní
SPRETTUR
Nýr þáttur um reiðmennsku
með Helga Björns og Vilborgu.
Hefst 10. júní
STÓRA ÞJÓÐIN
Vandaðir heimildaþættir um
sístækkandi vandamál á Íslandi.
Miðvikudaga kl. 20.10
SO YOU THINK YOU
CAN DANCE
Veldu þér dansfélaga!
Hefst 8. júní
THE KILLING
Mögnuð endurgerð á dönsku
þáttunum Forbrydelsen.
Sunnudaga kl. 22.05
GIRLS
Ný gamanþáttaröð frá HBO og
leikstjóra 40 Year Old Virgin.
Hefst 5. júní
BONES
Kynþokkafyllsti réttarmeina-
fræðingur heims!
Hefst 26. júní
GLEE
Einn vinsælasti unglingaþáttur
allra tíma!
Hefst 18. júní
HORFÐU HVAR SEM ER, HVENÆR SEM ER.
Í bústaðnum • í snjallsímanum • á spjaldtölvunni • í tölvunni
BARNAEFNI
Frábært skemmtiefni fyrir
þá yngri – allt á íslensku!
Alla virka daga og allar helgar
NÝ
TT
NÝ
TT
NÝ
TT
NÝ
TT
NÝ
TT
NÝ
TT
NÝ
TT