Fréttablaðið - 15.06.2012, Side 34
8 • LÍFIÐ 15. JÚNÍ 2012
urnar eru komnar í sumarfrí og
svo koma stóru börnin í heimsókn
og þá gerum við mikið af því að
halda súpuveislur og Bubbi bakar
brauð. Ég er að hvetja hann til að
láta verða af því að búa til brauð-
bók því brauðin hans eru með því
allra besta sem ég hef smakkað.
Það nýjasta nýtt er brauð næstum
án samviskubits því það er sykur
og gerlaust.“
Oft erfitt að finna jafnvægi
„Ég er í góðu starfi í Háskólanum í
Reykjavík þar sem ég er verkefna-
stjóri MBA-námsins sem er meist-
aranám fyrir stjórnendur. Þar nýtur
reynsla mín sín vel en ég tók gráðu
í markaðsfræði í Kúala Lúmpúr í
Malasíu og BA í almanntengslum
á Nýja-Sjálandi. Ég ákvað að taka
mér í fyrsta sinn ár í fæðingarorlof
því það er oft erfitt að finna jafn-
vægi milli þess að vera í ábyrgð-
armiklu og krefjandi starfi og vera
mamma. Því ákvað ég að taka mér
þennan tíma og ætla að njóta þess
að gefa stelpunum mínum 100% at-
hygli þennan dýrmæta tíma sem ég
er heima. Oft er svo brjálað að gera
hjá okkur mömmunum. Við klárum
vinnuna, brunum að ná í börnin,
verslum og svo komum við heim
með alla pokana og þá er farið í að
ganga frá, taka til og elda.“
Hrafnhildur segist þó hafa tamið
sér það að fara inn í herbergi með
dætrum sínum eftir vinnudaginn
og leika við þær. „Það þarf ekki að
vera langur tími, bara setjast niður
og leika í örlitla stund og spjalla um
daginn. Það er ótrúlegt hvað þetta
tengir alla saman eftir langan dag.
Við erum líka með mjög skemmti-
lega hefð við matarborðið á kvöld-
in en þá förum við hringinn og allir
segja frá því skemmtilegasta sem
gerðist þann dag – þetta er orðinn
fastur liður hjá okkur og allir segja
frá deginum sínum.“
Safnar fallegum minningum og
myndum
Lífið spurði Hrafnhildi nánar út
myndirnar fallegu sem fylgja þessu
viðtali en Hrafnhildur deildi þeim á
Facebook fyrir nokkru til vina sinna
og vöktu myndirnar mikla athygli.
„Myndirnar eru eftir Elenu Litsova
ljósmyndara en hún sérhæfir sig
í að taka myndir af ungum börn-
um. Eftir að hafa séð myndir eftir
hana varð ég gjörsamlega heilluð
af notkun hennar á litum og þeirri
tilfinningu sem myndirnar vöktu. Ég
pantaði tíma í myndatöku og dreif
alla fjölskylduna til hennar þegar
Aþena Lind var aðeins 17 daga.
Það er svolítið erfitt að drífa alla
af stað og með svona lítinn unga
en Elena er algjör fagmanneskja
og þetta varð bara að skemmtileg-
um degi en hún tekur myndirnar í
heimahúsi og notar aðeins náttúru-
lega birtu. Hún hitar einnig húsið
upp með hitara svo að litlu krílunum
verði ekki kalt og hugsar fyrir öllu.“
Hrafnhildur er mikil áhugamann-
eskja um myndir og segir það að
eiga fallegar myndir, og þá sérstak-
lega af börnunum litlum, afar dýr-
mætt. „Þessi tími er fljótur að líða
og þau að stækka svo fljótt. Það
er svo gaman að skoða gamlar
myndir og segja sögur af dýrmæt-
um augnablikum til að halda þeim
lifandi og eins og sagt er þá segir
mynd oft meira en þúsund orð. Eitt
af markmiðunum mínum núna er að
klára að sortera allar þessar mörg
þúsund myndir sem ég hef tekið
í gegnum árin og ekki prentað út,
klára myndaalbúmin, búa til minn-
ingabækur og setja upp mynda-
vegginn sem á að vera prýddur
myndum af fjölskyldunni og öllum
börnunum.“
Gott að láta sig dreyma
Hvers óskar svo Hrafnhildur Haf-
steinsdóttir, margra barna móðir
og framakona, sér í framtíðinni?
„Það er gaman að segja frá því
að ég á fallegan óskakassa sem
vinkona mín gaf mér fyrir nokkrum
árum og reglulega skrifa ég niður
markmið, drauma og óskir og set í
kassann. Stærsta óskin mín er að
fjölskyldan mín sé heilbrigð og er
ég þakklát fyrir hvern dag sem svo
er. Ég á líka fullt af veraldlegum
óskum eins og að geta ferðast með
fjölskyldunni og sýnt börnunum
heiminn; pýramídana í Egyptalandi,
hringleikahúsið í Róm, fara til Ríó á
karnival og til Indlands að læra að
elda góðan mat. Ég á fullt af falleg-
um óskum en á hverjum morgni tek
ég stutta hugleiðslu og bæn og svo
þakka ég alltaf fyrir það sem ég á.
Það er gott að láta sig dreyma - því
draumar geta ræst.“
Framhald af síðu 7
Stærsta óskin mín er að
fjölskyldan mín sé heilbrigð
og er ég þakklát fyrir hvern
dag sem svo er.
Stóri dagurinn. Stórfjölskyldan á brúðkaupsdegi Hrafnhildar og Bubba.
MYND/EINKASAFN
MYND/ELENA LITSOVA
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu,
jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri
hversdagsins.