Fréttablaðið - 15.06.2012, Page 44
15. júní 2012 FÖSTUDAGUR24
BAKÞANKAR
Magnús
Þorlákur
Lúðvíksson
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. kaups, 6. í röð, 8. persónufornafn,
9. veitt eftirför, 11. í röð, 12. ábót, 14.
spaug, 16. skóli, 17. kverk, 18. stansa,
20. ung, 21. flokka.
LÓÐRÉTT
1. smyrsl, 3. kraðak, 4. land, 5. sár,
7. verkfæri, 10. að, 13. aldur, 15.
greinilegur, 16. slunginn, 19. til.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sölu, 6. rs, 8. sín, 9. elt,
11. bd, 12. meira, 14. glens, 16. fg, 17.
kok, 18. æja, 20. ný, 21. raða.
LÓÐRÉTT: 1. krem, 3. ös, 4. líbanon,
5. und, 7. sleggja, 10. til, 13. rek, 15.
skýr, 16. fær, 19. að.
Hefur þú
stjórn á
þessu?
Algjör-
lega!
Bjarni er
hugsanlega fyrsti
hundurinn sem fer
út að pissa í eigin
flugvél!
Já, hugsanlega!
Rólega og
örugglega, bara
rétt að skógar-
jaðrinum!
Láttu hann
gera bæði
númer 1 og
númer 2!
Sorry, smá
óstöðugur á
fjarstýring-
unni!
Held að hann
sé búinn að
gera númer 1!
Æji,
mamma!
Það ætla allir
að vera
þarna!
Guð minn
almáttugur! Palli, ef „allir“ myndu stökkva fram af kletti, myndir þú gera það líka?
Ef það myndi verða til þess að
ég heyrði aldrei aftur þessa
klisju, já.
Hann er svona 160
sentimetrar á hæð.
Með hár sem standa
út úr nösunum,
bjórbumbu, skalla ...
Hmm – við skulum
bara sleppa þessu.
TÝNT
FÓLK.
Við vorum að
spjalla saman
um mannasiði
í skólanum í
dag.
Trausti sagði að þeir skiptu
engu máli og ég var ósam-
mála.
Allir sögðu
að ég hefði
unnið.
Ég vissi ekki að
þú værir góður í
rökræðum.
Ég vissi
ekki að ég
gæti öskrað
svona hátt.
Til er saga af hermanni frá Balkanskag-anum sem barðist í seinni heimsstyrj-
öldinni og upplifði í stríðinu ólýsanlegan
hrylling. Stuttu eftir að stríðinu lauk hætti
hann að tala. Læknar fundu enga líkam-
lega áverka á manninum né greindu þeir
heilaskaða. Hann gat lesið, skrifað, skilið tal
annarra og fylgt skipunum. Sjálfur talaði
hann hins vegar ekki við nokkurn mann,
ekki einu sinni vini og fjölskyldu. Að lokum
var manninum komið fyrir á sjúkraheimili
fyrir slasaða hermenn og dvaldi hann þar í
áratugi.
EINN daginn var starfsmaður á sjúkra-
heimilinu að hlusta á útvarpslýsingu frá
fótboltaleik þar sem við áttust lið úr heima-
borg hermannsins og erkifjendurnir úr
nágrannaborginni. Á lykilaugnabliki í
leiknum dæmdi dómarinn víti á liðið úr
heimaborg hermannsins. Þögli hermaður-
inn stökk þá upp úr stólnum sem hann sat
í og öskraði á útvarpið sín fyrstu orð í þrjá
áratugi: „Heimski fáviti, ertu að reyna að
gefa þeim leikinn!“ Síðan settist hann
aftur niður og mælti aldrei annað orð
svo lengi sem hann lifði.
MIKILL er máttur knattspyrnunnar
yfir tilfinningalífi áhugafólks um
leikinn. Ég þekki það af eigin raun
eftir að hafa verið nær óvinnufær allt
sumarið 2007 vegna skelfilegs gengis
KR í íslensku deildinni það sumarið.
Að sama skapi virtist veröldin sérstaklega
fögur síðasta sumar þegar allt gekk upp hjá
mínum mönnum. Flestir þekkja dæmi af
því að íþróttin hafi haft áhrif sem þessi á
einstaklinga en hún getur líka haft áhrif á
heilu þjóðirnar. Þannig auka stórmót í knatt-
spyrnu viðskipti á milli keppnisþjóðanna. Þá
fyllir sigur í stórmóti íbúa þess lands sem
sigrar bjartsýni og ýtir þar með merkjan-
lega undir umsvif í viðkomandi hagkerfi.
Þess vegna vonast hagfræðingar hollenska
bankans ABN-AMRO eftir frönskum sigri í
sumar því þeir telja efnahagslega mikilvæg-
ast fyrir Evrópu að skuldakreppan á evru-
svæðinu læsi ekki klónum í Frakkland.
FYRIR hina sem ekki hafa áhuga á fótbolta
gæti líka verið gagnlegt að hafa í huga að
það hægist á flestri starfsemi í landi þegar
viðkomandi landslið spilar á stórmóti. Þann-
ig hefur komið í ljós að viðskipti í kaup-
höllum minnka til muna þegar landslið þess
lands, sem viðkomandi kauphöll er staðsett
í, spilar. Hver veit nema íslenskir miðlarar
reyni að nýta sér það þegar Ísland spilar á
EM 2016. Þá munu nefnilega 24 lið spila en
ekki 16 eins og á mótinu í sumar.
ÞESSA dagana leika færustu knattspyrnu-
menn Evrópu um næststærstu verðlaun
knattspyrnuheimsins. Þetta er veisla og það
þarf ekkert að skammast sín fyrir að sýna
smá ástríðu fyrir mótinu og fegurð hins fal-
lega leiks.
Óður til knattspyrnunnar
Meistari melódíunnar
sjötugur
Bítillinn Paul McCartney hefur afrekað fleira en flestir
aðrir í tónlistarheiminum.
Meðal annars efnis:
Tónlistin fyrir trimmið
Sex forfallnir hlaupagikkir velja bestu hlaupalögin.