Fréttablaðið - 15.06.2012, Page 58
15. júní 2012 FÖSTUDAGUR38
sport@frettabladid.is
RÚNAR KÁRASON fékk það staðfest í gær að hann sé með slitið fremra krossband. Hann verður frá í að
minnsta kosti hálft ár vegna meiðslanna. Þetta er mikið áfall fyrir þennan unga og sterka leikmann sem var að ná
sér vel á strik í Þýskalandi síðasta vetur. Hann meiddist á landsliðsæfingu og getur lagt ÓL-drauminn á hilluna í bili.
1-0 Davíð Þór Ásbjörnsson (60.)
Skot (á mark): 11-12 (7-6)
Varin skot: Bjarni 6 - Ögmundur 6.
FYLKIR (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson 6 -
Andri Þór Jónsson 7, Kristján Valdimarsson 6,
David Elebert 7*, Tómas Þorsteinsson 6 - Ásgeir
Börkur Ásgeirsson 5, Davíð Þór Ásbjörnsson 7,
Oddur Ingi Guðmundsson 7 (85., Kjartan Ágúst
Breiðdal -) - Ingimundur Níels Óskarsson 5,
Magnús Þórir Matthíasson 3 (63., Finnur Ólafs-
son 6), Björgólfur Takefusa 4 (88., Árni Freyr
Guðnason -)
FRAM (4-5-1): Ögmundur Kristinsson 6 - Almarr
Ormarsson 5, Hlynur Atli Magnússon 5, Kristján
Hauksson 7, Alan Lowing 6 - Jón Gunnar Ey-
steinsson 5, Sam Hewson 6, Orri Gunnarsson 3
(88. Ingvi Þór Hermannsson -) - Kristinn Ingi Hall-
dórsson 4 (78., Daði Guðmundsson -) , Hólmbert
Aron Friðjónsson 3 (85. Stefán Birgir Jóhannsson
-), Steven Lennon 6 * MAÐUR LEIKSINS
Fylkisvöllur. Guðmundur Á. Guðmunds. (8)
1-0
EM í knattspyrnu:
Ítalía-Króatía 1-1
1-0 Andrea Pirlo (39.), 1-1 Mario Mandzukic (72.).
Spánn-Írland 4-0
1-0 Fernando Torres (4.), 2-0 David Silva (48.), 3-0
Fernando Torres (70.), 4-0 Cesc Fabregas (83.).
STAÐAN Í C-RIÐLI:
Spánn 2 1 1 0 5-1 4
Króatía 2 1 1 0 4-2 4
Ítalía 2 0 2 0 2-2 2
Írland 2 0 0 2 1-7 0
LEIKIR DAGSINS:
Svíþjóð - England kl. 16.00
Úkraína - Frakkland kl. 18.45
ÚRSLIT
GOLF Tilkynnt var um stofnun
afrekssjóðsins Forskots á blaða-
mannafundi hjá Golfsambandi
Íslands í gær. Sjóðurinn hefur það
að markmiði að styðja við þá kylf-
inga, atvinnumenn sem og áhuga-
menn, sem stefna á að komast í
fremstu röð í heiminum í íþrótt-
inni.
Auk GSÍ eru stofnendur sjóðsins
Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og
Icelandair Group en 15 milljónir
verða veittar til fimm íslenskra
afrekskylfinga árið 2012.
Fimm kylfingar njóta góðs af
styrknum í ár. Þeir eru Birgir
Leifur Hafþórsson úr GKG, Tinna
Jóhannsdóttir úr GK og Ólafur
Björn Loftsson NK auk GR-mann-
anna Stefáns Más Stefánssonar og
Þórðar Rafns Gissurarsonar.
Ólympíusæti góð afmælisgjöf
15 milljónir eru miklir peningar
í íslensku afreksíþróttastarfi. Til
samanburðar fær frjálsíþrótta-
konan Ásdís Hjálmsdóttir tæpar
tvær milljónir króna úr Afreks-
sjóði Íþrótta- og ólympíusambands
Íslands en hún er ein á A-styrk. B-
styrkhafar, sem eru þrettán, fá
tæpa milljón í styrk.
Birgir Leifur segir stofnun
sjóðsins hafa mikla þýðingu fyrir
íslenska kylfinga.
„Það er alltaf þessi hjalli hjá
öllum íþróttamönnum að fá fjár-
magn til að keppa úti og láta
drauminn rætast. Þegar það er
komið verður eftirleikurinn auð-
veldari,“ segir Birgir Leifur.
Keppt verður í golfi á Ólympíu-
leikunum í Ríó de Janeiro í Brasi-
líu árið 2016 eftir 112 ára hlé.
Afrekssjóðurinn styður íslenska
kylfinga til að ná því markmiði að
komast þangað.
„Eftir fjögur ár verð ég fertugur
þannig að það væri ágætis afmæl-
isgjöf,“ segir Birgir Leifur.
Í stjórn sjóðsins situr einn
fulltrúi frá hverjum stofnaðila en
fimm manna fagteymi gerir tillög-
ur um úthlutanir úr sjóðum.
Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari,
er einn þeirra sem á sæti í teym-
inu. Hann segir það hafa verið
erfitt að velja kylfingana fimm.
„Þessi hópur sem sjóðurinn styrk-
ir verður alltaf mjög þröngur.
Markmiðið er ekki að styrkja 10-15
manns heldur verða alltaf 2-5 kylf-
ingar sem fá styrk úr sjóðnum,“
segir Úlfar og leggur áherslu á að
eftirsóknarvert og erfitt eigi að
vera að komast í hópinn.
Huglægt mat að baki valinu
„Við viljum að það sé eftirsókn-
arvert og erfitt að komast að. Kylf-
ingar þurfa að hafa mjög mikið til
brunns að bera. Vera metnaðar-
fullir í markmiðasetningu sinni en
einnig mjög duglegir. Vinna þeirra
á bakvið markmiðin skiptir einn-
ig máli og þannig er mat okkar í
teyminu að einhverju leyti hug-
lægt. Þessir kylfingar hafa sýnt
að þeir vinna mjög agað og skipu-
lega,“ segir Úlfar.
Tinna Jóhannsdóttir segir það
mikinn heiður að vera fulltrúi
kvenna í hópnum.
„Ég er ótrúlega stolt og vona að
þetta verði hvatning fyrir hinar
stelpurnar sem eru að velta því
fyrir sér að keppa erlendis. Þær
eiga ekki að vera hræddar við að
taka stökkið,“ segir Tinna.
kolbeinntumi@365.is
Milljónastyrkur til kylfinga
Umhverfi íslenskra afrekskylfinga tók stakkaskiptum í gær þegar afrekssjóður-
inn Forskot var stofnaður. Fimm kylfingar skipta með sér 15 milljón króna
styrkinum en markmiðið er að koma á íslenskum kylfingi á ÓL í Ríó 2016.
SAMNINGNUM FAGNAÐ
Birgir Leifur og Tinna auk fulltrúa fyrir-
tækjanna fjögurra og forsvarsmanna
Golfsambands Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Lilleström er búið að
selja Björn Bergmann Sigurðar-
son til enska liðsins Wolves. Það
staðfesti umboðsmaður hans,
Jerry de Koning, við norska fjöl-
miðla í gær. Björn mun skrifa
undir fjögurra ára samning við
Úlfana. Wolves kaupir Björn á
473 milljónir króna sem gera
framherjann að einum dýrasta
leikmanni Íslandssögunnar.
Það er þó ekki alveg klárt að
Björn fari til Úlfanna. Hann þarf
nefnilega að spila með Lilleström
fram í miðjan júli. Meiðist hann
í þeim leikjum verður ekkert af
sölunni. Síðasti leikur Lilleström
er þann 13. júlí.
Björn mun fara í læknisskoðun
hjá enska félaginu þann 16. júlí.
Gangi allt vel þar mun hann spila
með Wolves næsta vetur. - hbg
Björn á leiðinni til Wolves:
Seldur á tæpar
500 milljónir
BJÖRN BERGMANN Má ekki meiðast
í næstu leikjum ef hann ætlar til Eng-
lands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Spánn og Króatíu eru
efst í C-riðli EM eftir leiki gær-
dagsins. Ítalir eru þó alls ekki
úr leik enda mætast Spánn og
Króatía á meðan Ítalía leikur
gegn Írlandi í lokaumferð riðils-
ins.
Spánverjar léku við hvurn sinn
fingur í gær. Fernando Torres
fékk tækifæri í byrjunarliðinu
og skoraði tvö mörk og hefði
hæglega getað skorað fleiri. Næg
voru færin en góð tíðindi fyrir
Spánverja að Torres sé komin í
gang.
Írar áttu nákvæmlega ekkert
erindi í Spánverjana. Gæðamun-
urinn var lygilegur.
Leikur Króata og Ítala var
ekki sérstaklega opinn. Andrea
Pirlo skoraði mark beint úr
aukaspyrnu en Mario Mandzu-
kic jafnaði metin með góðu skoti
í teignum. Nokkuð sanngjörn
niðurstaða á endanum. - hbg
Önnur umferð C-riðils á EM:
Torres stimpl-
aði sig inn
HEITUR Torres fagnar hér öðru marka
sinna í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Davíð Þór Ásbjörns-
son skoraði mark Fylkismanna
úr skrautlegri aukaspyrnu í 1-0
sigri á Fram í Lautinni í Árbæn-
um. Spyrna Davíðs Þórs fann sér
leið í gegnum varnarmúr Framara
en breytti um leið algjörlega um
stefnu og hafnaði í markmanns-
horni Ögmundur, markvarðar
Framara.
Fylkir reif sig upp í sjötta sæti
deildarinnar með sigrinum en
Fram er í tíunda sæti og hefur
tapað fimm af fyrstu sjö leikjum
sínum í deildinni. Ekki beint sú
byrjun sem menn áttu von á frá
Frömurum.
Í jöfnum og frekar hægum
knattspyrnuleik voru Fylkismenn
skömminni skárri og uppskáru
sanngjarnan sigur. Liðið var alltaf
líklegra og lítið lífsmark hjá Fröm-
urum fram á við ef frá er talinn
Steven Lennon.
Skotinn átti góða spretti en
endur tekið sendi hann fyrir mark-
ið þar sem engan Framara var að
finna.
„Sagan endurtekur sig í hverri
viku. Við spilum alltof hægan
bolta. Fyrir framherja er auð-
vitað pirrandi að vera kennt um að
skora ekki mörkin. Ég get bent á
suma miðjumennina og kennt þeim
um að vera ekki mættir í teiginn
eftir hlaupin mín. Menn geta ekki
reiknað með því að ég gangi fram
hjá þremur leikmönnum og skori,“
sagði Lennon svekktur og pirraður
í leikslok. - ktd
Fylkir vann sætan sigur á Fram í Lautinni í gær:
Davíð Þór hetja Fylkis
BUGAÐUR Þorvaldi Örlygssyni gengur
ekkert að trekkja Fram-liðið í gang.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI