Fréttablaðið - 15.06.2012, Page 62
15. júní 2012 FÖSTUDAGUR42
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Ég hef verið aðdáandi hryllings-
mynda síðan ég var krakki,“ segir
Erlingur Óttar Thoroddsen, meist-
aranemi í kvikmyndaleikstjórn
við Columbia-háskóla í New York.
Stuttmynd hans Child Eater hefur
hlotið nokkra athygli vestra þrátt
fyrir að hafa einungis verið sýnd
einu sinni.
„Þetta er hrollvekja í anda
gömlu hryllingsmyndanna frá
1980, til dæmis Halloween-mynd-
anna,“ segir Erlingur. Hann segir
fáar slíkar myndir hafa verið
gerðar á Íslandi. „Það er kannski
helst Reykjavik Whale Watching
Massacre og Morðsaga frá 1977,
sem er svona fyrsta íslenska hryll-
ingsmyndin.“ Í sömu mund segist
hann gjarnan vilja koma af stað eða
taka þátt í hryllingsmyndabylgju
hér á landi.
„Myndin fjallar um barnfóstru
sem vill eiga notalegt kvöld en
krakkinn hættir ekki að kvarta
yfir því að það sé einhver inni í
skápnum hans. Eftir því sem líða
fer á kvöldið fara undarlegir hlutir
að gerast þar til allt fer til fjand-
ans,“ segir Erlingur sem byrjaði að
skrifa handritið í febrúar í fyrra.
Til að auka á hryllinginn var
notuð frumsamin tónlist Einars
Sverris Tryggvasonar. Myndin var
sýnd á Columbia University Film
Festival í virtu listamiðstöðinni
Lincoln Center og hlaut áhorfenda-
verðlaun hátíðarinnar. „Við fengum
strax mjög góðar viðtökur. Fulltrú-
ar tveggja stórra kvikmyndahátíða
komu til okkar eftir sýninguna og
báðu um myndina. Maður frá fram-
leiðslufyrirtæki kom einnig til mín
og sagðist vilja gera hryllings-
mynd. Hann sýndi fyrirtækinu sínu
myndina og við höfum verið í sam-
bandi. Næst á dagskrá er að skrifa
handrit að þessari mynd í fullri
lengd,“ segir Erlingur vongóður
um framhaldið.
hallfridur@frettabladid.is
Hryllingsmynd Erlings vekur athygli
UNGUR LEIKSTJÓRI Erlingur hlaut áhorf-
endaverðlaunin á Columbia University
Film Festival. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00
Glæný Bláskel
frá Stykkishólmi
Ferskur Túnfiskur
Alla föstudaga og laugardaga
Humar 2.350 kr.kg
Óbrotinn fyrsta flokks humar
Fiskibollur
að dönskum hætti
(lax, þorskur, dill, rjómi, krydd)
Harðfiskurinn
frá Stykkishólmi
Þessi sjúklega góði
Humarsoð
frá
Hornarfirði
„Þessa dagana skellum við
skuggasystur á laginu Sur la
Planche með hljómsveitinni
La Femme til að koma okkur í
gírinn.“
Sólveig Ragna Guðmundsdóttir og Gunn-
hildur Edda Guðmundsdóttir, fatahönn-
uðir Shadow Creature.
„Ég er orðinn þreyttur á þessu,“
segir bassaleikarinn Jakob Smári
Magnússon.
Hann er hættur að spila með
hljómsveitunum SSSól og Reið-
mönnum vindanna og ætlar yfir-
höfuð að draga sig út úr allri
spilamennsku á böllum eftir rúm-
lega þrjátíu ár í bransanum. „Ég
hef verið að reyna að hafa þetta
sem mína aðalvinnu en ég ætla að
hætta því. Það er rosalega erfitt
að lifa á tónlistinni hérna heima.
Það eina sem gefur pening er að
spila á böllum og ég bara nenni
því ekki lengur,“ segir Jakob
Smári, sem hefur lengi verið tal-
inn einn besti bassaleikari þjóð-
arinnar. Hann er búinn að fá starf
sem sölumaður hjá Ásbirni Ólafs-
syni og verður bassaleikurinn því
í aukahlutverki hjá honum þangað
til annað kemur í ljós.
Jakob Smári hóf feril sinn fyrir
31 ári með hljómsveitinni Tappi
tíkarrass. Þegar hann var tvítug-
ur sagði hann upp dagvinnunni og
hellti sér út í spilamennsku með
rokksveitinni Das Kapital og
hefur verið atvinnumaður í fag-
inu nánast óslitið síðan. Meðal
annarra sveita sem hafa notið
krafta hans eru Grafík og Egó,
auk Bubba Morthens.
„Ég ætlaði að gera eins og Brad
Pitt sem ætlar að hætta að leika
þegar hann verður fimmtugur en
ég gat það ekki,“ segir hinn 48 ára
Jakob. Hann er þó enn með nokk-
ur verkefni í bakhöndinni, þar á
meðal með Láru Rúnarsdóttur og
bandaríska tónlistarmanninum
John Grant.
Hann spilar með Grant á næstu
plötu hans sem kemur út í janú-
ar og á tónleikum í Háskólabíói í
júlí. „Það er rosalega gaman að
fá að vinna með honum og mikill
heiður. Maður bara buktar sig og
beygir.“ - fb
Þreyttur eftir þrjátíu ár í bransanum
„Við erum bara mjög spenntir og
setjum markið hátt,“ segir leikar-
inn Þorsteinn Guðmundsson, en
hann og grínistinn Pétur Jóhann
Sigfússon vinna nú að gerð nýrra
gamanþátta.
Þættirnir eru gamanþættir með
söguþræði í anda sjónvarpsþátt-
anna vinsælu Seinfeld og Klovn.
Aðalhlutverkin eru í höndum Pét-
urs Jóhanns og Þorsteins en þætt-
irnir hafa verið í bígerð í dágóðan
tíma. Þorsteinn segir að ekkert
vinnuheiti sé enn komið en búið
er að taka upp einn prufuþátt, eða
svokallaðan „pilot“, sem mæltist
vel fyrir.
„Þetta gekk vel en ég hef aldrei
gert prufuþátt nánast í fullri lengd.
Prufuþátturinn var gerður til að sjá
hvernig karakterarnir og aðstæð-
ur unnu saman. Það var gott því
þá gátum við séð hvað var að virka
og hvað ekki og mér sýndist flest-
ir hafa gaman af,“ segir Þorsteinn
en hann og Pétur Jóhann hefjast
handa við skriftir í haust ásamt
markverðinum knáa, Hannesi Þór
Halldórssyni, sem leikstýrir þátt-
unum. „Hann verður okkur innan
handar í skrifunum og svo stefnum
við á að fara í tökur næsta vor.“
Þættirnir hafa verið í þróun af
Saga Film í samvinnu við Stöð 2 en
Þorsteinn vill ekki gefa of mikið
uppi varðandi söguþráðinn sjálfan.
Hann segir karakterana þó að mikl-
um hluta byggða á þeim sjálfum.
„Söguþráðurinn er enn þá í þróun.
Við Pétur verðum að nota sumarið
til að fara ofan í okkar sálarfylgsni
og göngum aðeins lengra en venju-
lega. Við ætlum að kanna okkar
svörtustu sálarhliðar og draga
fram atburði og það sem við höfum
lent í í lífinu,“ segir Þorsteinn. Þeir
Pétur eru góðir vinir og hafa verið
með uppistand í Gamla bíói undan-
farna mánuði.
„Ég er ekki viss um að við höfum
leikið saman áður en við höfum
grínast mikið saman og haldið
ágætis sambandi.
Við eigum vel saman og hlökk-
um mikið til samstarfsins næsta
haust.“
alfrun@frettabladid.is
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON: KARAKTERAR BYGGÐIR Á OKKUR SJÁLFUM
Pétur Jóhann og Þorsteinn
saman í nýjum þáttum
HÆTTUR Jakob Smári Magnússon er
hættur að spila á böllum og hefur
fengið starf sem sölumaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við viljum sanna að leiðinlegt
fólk geti haldið skemmtilega fyrir-
lestra,“ segir myndlistarneminn
Sigrún Hlín Sigurðardóttir um
verkefni sitt og nýútskrifuðu leik-
konunnar Sögu Garðarsdóttur en
þær vinna í sumar við að kanna
fyrirlestraformið og mannsheilann.
Verkefnið hlaut styrk frá Nýsköp-
unarsjóði námsmanna hjá Rann-
ís og lýkur með fræðilegum fyrir-
lestri sem verður hálfgerð sýning.
„Við sáum strax að heilinn er
engin smásmíði. Við erum núna
að skoða hvað við erum órökrétt
og hegðum okkur að mestu í sam-
ræmi við geðshræringar,“ segir
Saga, en umfang heilans er hluti af
áskorun verkefnisins. „Listamenn,
fávitar og annað venjulegt fólk er
svo smeykt við að tækla eitthvað
svona flókið og óáþreifanlegt eins
og heilann. Því langaði okkur að
gera heiðar lega tilraun til þess að
rannsaka hann og koma með okkar
eigin tilgátur.“
Með verkefninu ætla þær að búa
til nýja sýn á það hvernig þekkingu
er miðlað. „Það eru margir að gera
spennandi rannsóknir en eiga bágt
með að tala fyrir framan aðra. Við
viljum sanna að það þarf ekki að
segja brandara eða brjóta upp fyrir-
lestur með laufléttum atriðum til
að hann verði skemmtilegur,“ segir
Sigrún og bætir við að þær stöllur
séu með bók í bígerð. „Hún verður
hugvekja um heilann fyrir venju-
legt fólk til að skilja betur sjálft
sig.“ - hþt
Fyrirlestur og bók
um mannsheilann
BRJÓTA HEILANN Saga og Sigrún Hlín rannsaka heilann, hið flókna og óáþreifanlega
líffæri mannsins, í allt sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GOTT TEYMI
Pétur Jóhann Sigfússon
og Þorsteinn Guð-
mundsson leiða saman
hesta sína í nýjum
gamanþáttum en
landsliðsmarkvörðurinn
Hannes Þór Halldórs-
son verður þeim innan
handar í skrifunum og
leikstýrir. Þættirnir eiga
að vera í líkingu við
Seinfeld og Klovn.