Fréttablaðið - 21.06.2012, Blaðsíða 2
21. júní 2012 FIMMTUDAGUR2
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Grillosturinn bráðnar betur en aðrir ostar og
hentar því einstaklega vel á hamborgara eða
annan grillaðan mat.
alveg grillaður!
ALÞINGI Þingsalur Alþingishússins
hefur nú verið rýmdur í kjölfar þing-
loka á þriðjudag. Húsgögn, borð og
ræðustóll voru flutt í gám fyrir utan
húsið í gær. Salurinn er tæmdur á
fjögurra ára fresti því þar fer fram
formleg innsetningarathöfn forseta í
embætti. Sá frambjóðandi sem verður
hlutskarpastur í forsetakjörinu í lok
þessa mánaðar verður settur í emb-
ætti í þingsalnum þann 1. ágúst.
Það eru því hátt í sex vikur þar til
sú athöfn verður en sá tími verður
nýttur í endurbætur á þingsalnum.
Bera þarf á gólf og sinna ýmsu mikil-
vægu viðhaldi. Salurinn verður þó
ekki í hers höndum allan þann tíma
því þann 8. júlí koma saman allar þær
konur sem kosnar hafa verið á Alþingi
í tilefni 90 ára kosningarafmælis Ingi-
bjargar H. Bjarnason. Hún var fyrst
íslenskra kvenna til að gegna þing-
mennsku árið 1922. - bþh
Þingsalur Alþingis var rýmdur svo sinna mætti viðhaldi og setja forseta í embætti:
Þingsalur Alþingis rýmdur
ÚT Í GÁM Innréttingar þingsalarins í Alþingishúsinu voru bornar út í gám til
geymslu þar til þing kemur saman á ný í september. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS
María, ertu ekki bara að
teygja lopann?
„Það er hægt að þæfa fleira en
mál.“
María Guðmundsdóttir í Kringlumýri í
Blönduhlíð í Skagafirði er afkastamikil
handverkakona sem vinnur aðallega
með ull.
DÓMSMÁL Einar „boom“ Marteins-
son, fyrrum leiðtogi Vítisengla,
var í gær sýknaður af ákæru
um að hafa skipulagt hrottalega
líkamsárás á konu í lok síðasta
árs. Að því er fram kemur á Vísi
voru fjórir aðrir sakfelldir í mál-
inu, þar á meðal Andrea Unnars-
dóttir sem fékk fjögurra og hálfs
árs fangelsisdóm, þann þyngsta
í málinu. Það var Héraðsdómur
Reykjaness sem kvað upp dóm-
inn en fórnarlambinu voru dæmd-
ar tvær milljónir króna í skaða-
bætur.
Samkvæmt heimildum Vísis
hlutu dóm auk Andreu Jón Ólafs-
son, kærasti hennar, sem var
dæmdur í fjögurra ára fangelsi,
Elías Jónsson, sem fékk einnig
fjögurra ára fangelsisdóm, og
Óttar Gunnarsson, sem var
dæmdur í tveggja ára fangelsi.
Auk Einars var sjötti einstakling-
urinn sem var sýknaður í málinu.
Sakborningarnir voru ákærðir
fyrir hrottafengna líkamsárás og
nauðgun á konu á heimili hennar
á höfuðborgarsvæðinu skömmu
fyrir jól. Einari var gefið að sök
að hafa skipulagt verknaðinn og
gefið fyrirmæli en þeim Andreu,
Jóni og Elíasi að hafa framkvæmt
árásina. Óttari var gefið að sök að
hafa ekki komið fórnarlambinu til
bjargar og þá var sjötti maðurinn
ákærður fyrir að hafa tekið á móti
poka eftir árásina sem innihélt
kylfu og grímu.
Einn ákæruliðanna varðaði þátt-
töku sakborninganna í skipulagðri
glæpastarfsemi en enginn þeirra
var dæmdur fyrir þann lið ákær-
unnar. Allir voru sak borningarnir
taldir tengjast Vítis englum með
einum eða öðrum hætti.
Jón Egilsson, verjandi Elíasar,
sagði við Vísi eftir að dómur féll
að hann hygðist áfrýja málinu en
saksóknari sagði að ekki hefði
verið tekin ákvörðun um áfrýjun.
Einar, sem Héraðsdómur sýkn-
aði, hefur setið í gæsluvarðhaldi í
rúma sex mánuði vegna málsins.
Oddgeir Einarsson verjandi hans
sagði í samtali við Vísi mjög lík-
legt að höfðað yrði skaðabótamál
vegna gæsluvarðhaldsins, stað-
festi Hæstiréttur dóminn.
magnusl@frettabladid.is
Þungir dómar vegna
grófrar líkamsárásar
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær fjóra einstaklinga í tveggja til fjögurra
og hálfs árs fangelsi vegna hrottalegrar líkamsárásar í heimahúsi á höfuðborg-
arsvæðinu stuttu fyrir jól. Fyrrum leiðtogi Vítisengla var hins vegar sýknaður.
HÉRAÐSDÓMI REYKJANESS Í GÆR Einar „boom“ Marteinsson var sýknaður af ákæru um að hafa skipulagt grófa líkamsárás.
Andrea Unnarsdóttir fékk hins vegar þyngstan dóm fjögurra sem voru sakfelldir, fjögurra og hálfs árs fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HÁTÍÐARHÖLD Hjálmar Jónsson
dómkirkjuprestur vísar ásök-
unum á bug um að dagskrá á
Austurvelli á 17. júní hafi riðlast
vegna þess hversu snemma guðs-
þjónustu í
Dómkirkjunni
lauk. Henni
hafi aðeins
lokið fjórum
mínútum fyrr
en áætlað var.
Greint frá
því á mánudag
að einhverjir
hefðu einfald-
lega misst af hátíðarhöldunum
vegna hnökra á dagskrá.
Dómkirkjan er aðili að undir-
búningi hátíðarhaldanna að
morgni 17. júní. Hjálmar segir
að einfalt hefði verið að tíma-
jafna dagskrána ef ástæða hefði
þótt til.
„Hafi eitthvað farið úrskeiðis
við framkvæmd hátíðarhaldanna
þarf að leita skýringa annars
staðar,“ segir Hjálmar. - bþh
Dómkirkjuprestur ósáttur:
Messunni lauk
á tilsettum tíma
HJÁLMAR JÓNSSON
ÞJÓÐKIRKJAN Solveig Lára Guð-
mundsdóttir hefur verið valin
vígslubiskup á Hólum. Atkvæði
voru talin í
síðari umferð
kosninga til
embættisins í
gær.
Kristján
Björnsson og
Solveig Lára
voru tvö í kjöri
í seinni umferð
kosninganna.
Solveig Lára
hlaut 96 atkvæði þeirra 174 sem
greiddu atkvæði. Kristján fékk
70 atkvæði. Á kjörskrá var 181 og
kjörsókn því 96 prósent. -bþh
Vígslubiskup á Hólum kjörinn:
Solveig kjörin
vígslubiskup
SOLVEIG LÁRA
GUÐMUNDSDÓTTIR
NÁTTÚRA Strendur Suðurskauts-
landsins voru grónar fyrir fimm-
tán milljónum ára en þá hlýnaði
vegna aukins koltvísýrings í and-
rúmsloftinu. Vísindamenn telja
þessar niðurstöður rannsókna á
plöntuleifum á hafsbotni geta gefið
vísbendingu um þróun mála þegar
loftslag hlýnar á ný.
Í grein í vísindatímaritinu Nat-
ure Geoscience kemur fram að
bæði hafi verið hlýrra og vætu-
samara á Suðurskautslandinu en
nú. „Þegar plánetan hlýnar verða
mestu breytingarnar við heim-
skautin. Þegar úrkoman færðist
suður á bóginn urðu strendur
Suðurskautslandsins líkari Íslandi
dagsins í dag en frosnu heim-
skautalandslagi,“ segir vísinda-
maðurinn Jun-Eun Lee í samtali
við sænska ríkisútvarpið. - óþs
Hlýskeið fyrir 15 milljónum ára:
Suðurskautið
líktist Íslandi
SUÐURSKAUTIÐ Nú gæti aftur hlýnað
hjá mörgæsunum. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Röksemdir fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins (ESB) og eftirlitsstofn-
unar EFTA (ESA) í Icesave-málinu
halda engu vatni og sú leið sem
ESB vill fara hefði fáránlegar
afleiðingar. Þetta kemur fram í
harðorðu svari Íslands við meðal-
göngustefnu framkvæmdastjórnar
ESB sem sent var til Brussel í gær.
Í svarinu, sem Vísir fjallaði um
í gær, segir að sömu grundvallar-
gallar séu á röksemdum og grein-
ingu framkvæmdastjórnar ESB
og sé að finna í greinargerð ESA.
Væri það ábyrgð ríkissjóðs að
tryggja að nægir peningar væru
í Tryggingasjóði innistæðueig-
enda til að greiða Icesave-skuldina
myndi það setja fordæmi í öðrum
tilvikum þar sem slíka ábyrgð sé
tæplega að finna.
Sem fyrr leggur Ísland áherslu
á að eina skylda íslenska ríkisins
hafi verið að koma á fót innistæðu-
tryggingarkerfi og hafa eftirlit
með því. Hins vegar hafi það ekki
verið skylda íslenska ríkisins að
tryggja greiðslur í þeim tilvikum
þar sem peningar í sjóðnum nægja
ekki til að greiða kröfur inni-
stæðueigenda vegna falls banka.
Icesave-málið verður flutt fyrir
EFTA-dómstólnum 18. september
næstkomandi. - þþ
Meðalgöngustefnu framkvæmdastjórnar ESB í Icesave-málinu svarað:
Stjórnvöld svara stefnu ESB af krafti
Verðlækkun á Akranesleið
Strætó lækkar verð á fari frá Reykjavík
til Akraness. Almennt gjald verður
600 krónur fyrir fullorðna, 230 fyrir
unglinga og 90 krónur fyrir börn.
STRÆTÓFERÐIR
Hraðakstur minnkar
Brot 21 ökumanns voru mynduð á
Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í gær. Á
einni klukkustund óku 102 ökutæki
þessa leið og voru rúm 20 prósent á of
miklum hraða. Við fyrri hraðamælingar
lögreglunnar á þessum stað hefur
brotahlutfallið verið 31 til 39 prósent.
LÖGREGLUFRÉTTIR
EFTA-DÓMSTÓLINN Icesave-málið
verður flutt fyrir EFTA-dómstólnum 18.
september næstkomandi.
SLYS Tveir voru fluttir á slysa-
deild í gærkvöldi eftir fjögurra
bíla árekstur sem varð á gatna-
mótum Grensásvegar og Miklu-
brautar. Loka þurfti Grensásvegi
frá Miklubraut að Fellsmúla um
stund eftir áreksturinn.
Bílarnir sem rákust saman
eru allir fólksbílar en beita
þurfti klippum til að ná öku-
manni einnar bifreiðarinnar út
úr henni.
Tildrög slyssins eru óljós en
þau er til rannsóknar hjá lög-
reglu. - mþl
Tveir fluttir á slysadeild:
Fjórir bílar
skullu saman