Fréttablaðið - 21.06.2012, Side 6
21. júní 2012 FIMMTUDAGUR6
Dagskrá málþingsins í Hörpu,
föstudaginn 22. júní
9:00 Arnar Guðmundsson,
form. auðlindastefnunefndar kynnir skýrsluna og
helstu tillögur nefndarinnar.
9:30 Dr. Daði Már Kristófersson,
dósent í auðlindahagfræði við hagfræðideild
Háskóla Íslands mun gefa yfirlit yfir helstu sjónarmið
sem taka þarf tillit til við gerð auðlindastefnu og
rýna í tillögur auðlindastefnunefndarinnar.
10:00 Kaffihlé
10:15 Philip J. Daniel
fjallar um leiðir við skattlagningu auðlinda.
Philip er yfirmaður skattastefnusviðs Alþjóða
gjald eyrissjóðins og sérfræðingur í skattlagn-
ingu auðlinda.
10:55 Fulltrúar þingflokka
Eygló Harðardóttir, Framsóknarflokki
Birgitta Jónsdóttir, Hreyfingunni
Tryggvi Þór Herbertsson, Sjálfstæðisflokki
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Samfylkingunni
Bergur Sigurðsson, framkvæmdastj. þingflokks VG
11:30 Spurningar og pallborðsumræður
Fundarstjóri er dr. Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við
lagadeild Háskóla Íslands.
M Á L Þ I N G I Ð E R Ö L LU M O P I Ð
Nefnd forsætisráðherra um auðlindastefnu boðar til
málþings í Hörpu, föstudaginn 22. júní frá kl. 9 til 12 í
salnum Rímu. Á málþinginu verða kynnt drög að skýrslu
auðlindastefnunefndarinnar.
MÁLÞING UM
AUÐLINDASTEFNU
Arður af
auðlindum
SANNGIRNI, JAFN-
RÆÐI, GEGNSÆI
Jóhanna Sigurðardóttir kallaði eftir afsögn Björns Bjarna-
sonar úr embætti dómsmálaráðherra eftir að kærunefnd
jafnréttismála úrskurðaði að hann hefði brotið jafnréttislög
með því að ráða karlmann í stöðu hæstaréttar-
dómara. Kona sem sótti um sama starf var
ekki ráðin þrátt fyrir að vera talin hæfari en
sá sem ráðinn var. Þá var svipuð staða uppi
því karlkyns hæstaréttardómarar voru fleiri
en kvenkyns. Nefndin úrskurðaði einnig um
lögmæti ráðningar í stöðu skrifstofustjóra skrif-
stofu stjórnsýslu- og samfélagsþróunar. Í dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að
kvenkyns skrifstofustjórar í Stjórnarráðinu
hafi verið mun færri en karlkyns.
Árið 2004, þegar mál Björns Bjarna-
sonar kom upp, sagði Jóhanna í ræðustól á
Alþingi: „Hjá öðrum lýðræðisþjóðum hefði
ráðherra sem brýtur svo gróflega lög og
reglur verið látinn fjúka. En hér á landi er allt
leyfilegt hjá ráðherrum og þeir komast upp
með allt. Ef ráðherrar eru ósáttir við lög eiga
lögin bara að víkja en ekki þeir að þeirra mati.“
Síðar í sömu ræðu spurði hún: „Hver er
pólitísk ábyrgð ráðherrans? Er henni fullnægt
að mati ráðherra með því að brotaþola verði
dæmdar skaðabætur eða á ráðherra að segja
af sér?“
BRETLAND, AP Julian Assange, forsprakki
Wikileaks, verður handtekinn ef hann yfir-
gefur sendiráð Ekvadors í Lundúnum, þar
sem hann dvelur. Meðan hann heldur sig þar
inni getur breska lögreglan hins vegar ekk-
ert aðhafst.
Assange kom í sendiráðið á þriðjudag og
óskaði eftir pólitísku hæli í Ekvador. Verið er
að fara yfir beiðni hans í Ekvador og á meðan
fær hann að dvelja í sendiráðinu í Lundúnum.
Framselja á Assange til Svíþjóðar þann
28. júní þar sem hann á yfir höfði sér kærur
vegna kynferðisbrota. Með því að dvelja
yfir nótt í sendiráðinu braut hann skilorð,
og verður því handtekinn ef hann yfirgefur
sendiráðið. Lögreglumenn bíða þar fyrir utan.
Stuðningsmenn Assange segja hann óttast
að hann verði framseldur til Bandaríkjanna
og að þar verði hann dæmdur til langrar
fangelsisvistar. Þá er hann sagður óttast um
líf sitt.
Einn fyrrverandi lögmanna hans sagði
hann mögulega vera að reyna að semja við
sænsk stjórnvöld um að þau lofi að hann
verði ekki framseldur frá Svíþjóð til Banda-
ríkjanna. Ef það gangi eftir muni hann mögu-
lega fara sjálfviljugur til Svíþjóðar. - þeb
Julian Assange dvelur nú í sendiráði Ekvadors í Lundúnum og verður handtekinn ef hann fer þaðan:
Óttast að verða framseldur til Bandaríkjanna
SENDIRÁÐIÐ Í LUNDÚNUM Lögreglumenn vakta nú
sendiráð Ekvadors í Lundúnum. Auk þeirra hefur fjöldi
blaðamanna og ljósmyndara tekið sér stöðu fyrir utan.
NORDICPHOTOS/AFP
MENNING „Við sjáum allavega eina
smiðju ef ekki tvær, en einnig
kolagrafir og járnbræðsluofna,“
segir Vala Garðarsdóttir, uppgraft-
arstjóri á Alþingisreitnum sem er á
horni Tjarnargötu og Kirkjustræt-
is. Þar hefur frá árinu 2008 verið
grafið eftir fornminjum á sumrin.
„Svo virðast vera þarna bygg-
ingar þar sem annars konar verk
hafa verið unnin, svo sem gripa-
smíðar úr viði og grjóti. Sennilega
líka ullarvinnsla og brugggerð, þar
sem fólk hefur bruggað og bakað.“
Vala segir uppgröftinn nokkuð sér-
stakan.
„Við erum að fá umfangs mikið
svæði sem tilheyrir ekki bara
húshaldi eða bæjarstæði frá fjöl-
skyldu. Þetta er vísir að stærra
samfélagi en við erum vön að sjá
frá víkingaöld á Íslandi.“
Uppgröfturinn hófst 1. júní og
áætluð verklok eru um miðjan sept-
ember. - ktg
Áfram er grafið og rannsakað á Alþingisreitnum í miðbæ Reykjavíkur:
Samfélag frá víkingaöld fundið
UNNIÐ Á ALÞINGISREITNUM Vala Garðarsdóttir og hennar fólk að störfum við upp-
gröft fornleifa á Alþingisreitnum svonefnda í miðbæ Reykjavíkur í gær. Reiturinn er á
horni Tjarnargötu og Kirkjustrætis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Jóhanna Sigurðar dóttir
forsætisráðherra braut lög um
jafna stöðu og jafnan rétt kvenna
og karla þegar Arnar Þór Másson
var ráðinn í stöðu skrifstofustjóra
skrifstofu stjórnsýslu- og sam-
félagsþróunar og tekinn fram yfir
Önnu Kristínu Ólafsdóttur. Þetta
er niður staða Héraðsdóms Reykja-
víkur sem kveðinn var upp í gær.
Forsætisráðuneytið var í Hér-
aðsdómi dæmt til að greiða Önnu
Kristínu 500 þúsund krónur í
miskabætur. Forsætisráðuneytið
hafði boðið Önnu Kristínu sömu
upphæð í kjölfar úrskurðar kæru-
nefndar jafnréttismála.
Anna Kristín höfðaði skaða-
bótamál á hendur ríkinu eftir að
ráðuneytið hafnaði kröfu hennar
um fimm milljóna króna miska-
og skaðabætur. Kærunefnd jafn-
réttismála hafði úrskurðað að með
ráðningu Arnars Þórs hefði for-
sætisráðherra brotið ákvæði laga
um jafna stöðu kynjanna. Þar kom
fram að ekki hefði verið sýnt fram
á að annað en kynferði hefði ráðið
því að Arnar Þór var ráðinn fram
yfir Önnu Kristínu. Hún hefði
verið að minnsta kosti jafnhæf í
stöðuna.
Anna Kristín krafðist tæplega
16 milljóna króna í skaðabætur,
auk vaxta. Byggði hún kröfu sína
á því að starfsveitingin hefði verið
ólögmæt og að með skipuninni
hefðu jafnréttislög verið brotin.
Forsætisráðuneytið var sýknað
af skaðabótakröfum því ekki var
sannað að Önnu Kristínu hefði
borið að fá starfið umfram þá sem
raðað var ofar en henni í hæfismati
ráðuneytisins. Önnu var raðað í
fimmta sæti við hæfismatið.
Jóhanna dæmd fyrir
brot á jafnréttislögum
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í máli Önnu Kristínar Ólafsdóttur gegn ís-
lenska ríkinu í gær. Jóhanna Sigurðardóttir braut jafnréttislög þegar hún veitti
Arnari Þór Mássyni starf skrifstofustjóra í ráðuneytinu fram yfir Önnu Kristínu.
Kallaði sjálf eftir afsögn ráðherra
Í dómnum kemur fram að krafa
Önnu Kristínar um miskabætur
hafi byggst á að henni hafi verið af
hálfu forsætisráðherra sýnd lítils-
virðing, hún hafi verið niðurlægð
á opinberum vettvangi og vegið
hafi verið að starfsheiðri hennar,
reynslu og hæfni. Dómurinn féllst
á miskabótakröfu hennar að upp-
hæð 500 þúsund krónur. Einnig
fær Anna Kristín greiddar 1.600
þúsund krónur í málskostnað.
Anna Kristín byggði meðal
annars mál sitt á því að þegar for-
sætisráðherra ákvað að nýta ekki
heimild sína til frestunar réttar-
áhrifa hafi hún viðurkennt brot
sitt.
Í yfirlýsingu á vef forsætisráðu-
neytisins um málið kemur fram að
„í dóminum er hvorki lagt sjálf-
stætt né efnislegt mat á það hvort
jafnréttislög hafi verið brotin við
skipun í embættið“. Í dóminum
er þó fullyrt að forsætisráðherra
hafi brotið lög númer 10/2008 um
jafna stöðu og jafnan rétt kvenna
og karla. birgirh@frettabladid.is
JAFNRÉTTISLÖG
BROTIN
Dómurinn
telur Jóhönnu
hafa með
stjórnvalds-
ákvörðun
sinni
brotið jafn-
réttislög.
Ert þú ánægð(ur) með að
þingmenn hafi komist að sam-
komulagi um þinglok?
JÁ 37,1%
NEI 62,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefur þú gengið á Esjuna?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN