Fréttablaðið - 10.08.2012, Síða 48
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR32
sport@frettabladid.is
ÍSLENSKU LANDSLIÐSKONURNAR Hólmfríður Magnúsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir voru á skotskónum í 6-0 stórsigri
Avaldsnes á Grand Bodö í norsku b-deildinni í gær. Hólmfríður skoraði þrennu og Kristín Ýr var með tvö mörk. Hólmfríður hefur skorað
13 mörk og Kristín Ýr er með 12 mörk í deildinni en þær hafa skorað 25 af 35 deildarmörkum Avaldsnes-liðsins í 11 leikjum í sumar.
Björk Björnsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir voru einnig í byrjunarliðinu í þessum leik. Avaldsnes er á góðri leið upp í úrvalsdeildina.
Pepsi-deild kvenna
Stjarnan - Valur 2-3
0-1 Svava Rós Guðmundsdóttir (49.), 1-1 Ásgerður
S. Baldursdóttir (54.), 1-2 Johanna Rasmussen
(60.), 2-2 Edda María Birgisdóttir (73.), 2-3 Elín
Metta Jensen (90.+1).
Þór/KA - FH 6-0
1-0 Arna Sif Ásgrímsdóttir (17.), 2-0 Lára
Einarsdóttir (19.), 3-0 Sandra María Jessen (31.),
4-0 Katrín Ásbjörnsdóttir (54.), 5-0 Arna Sif
Ásgrímsdóttir (75.), 6-0 Sandra María Jessen (82.)
Selfoss - Breiðablik 3-3
1-0 Anna María Friðgeirsdóttir (10.), 1-1 Rakel
Hönnudóttir (19.), 1-2 Rakel Hönnudóttir (23.), 2-2
Valorie O’Brien (40.), 2-3 Petrea Björt Sævarsdóttir
(75.), 3-3 Guðmunda Brynja Óladóttir (81.).
KR - Fylkir 3-2
1-0 Monika Siskovic (20.), 2-0 Anna Garðarsdóttir
(44.), 2-1 Ruth Þórðar Þórðardóttir (55.), 2-2 Anna
Björg Björnsdóttir (66.), 3-2 Anna Garðarsd. (69.)
STAÐAN Í DEILDINNI
Þór/KA 13 10 2 1 38-13 32
Stjarnan 13 8 2 3 35-17 26
Breiðablik 13 7 3 3 33-15 24
Valur 13 7 2 4 32-18 23
ÍBV 12 7 1 4 28-18 22
FH 13 4 2 7 19-32 14
Selfoss 13 3 3 7 24-54 12
Fylkir 13 3 2 8 16-28 11
Afturelding 12 3 2 7 11-26 11
KR 13 1 3 9 13-28 6
ÚRSLITIN Í GÆR FÓTBOLTI Valur sigraði Íslands-
meistara Stjörnunnar á útivelli í
gær 3-2. Þar með er Stjarnan sex
stigum á eftir toppliði Þór/KA
þegar fimm umferðir eru eftir og
verður nú erfitt fyrir Stjörnuna að
verja Íslandsmeistaratitil sinn.
Fyrri hálfleikur var mjög bragð-
daufur og fátt um fína drætti.
Fá færi litu dagsins ljós og var
markalaust í hálfleik.
Allt annað var uppi á tengingn-
um í seinni hálfleik sem var bráð-
fjörugur og fimm mörk skoruð auk
þess sem bæði lið fengu fín færi
sem fóru forgörðum.
Valur komst þrisvar yfir í leikn-
um. Stjarnan jafnaði í tvígang en
ekki gafst tími til að jafna eftir að
ungstirnið Elín Metta Jensen skor-
aði á 91. mínútu leiksins.
„Þetta var ótrúlega mikill vinnu-
sigur. Við vorum þolinmóðar og
höfðum trú á þessu allan tímann.
Fyrir leik og allan leik. Það gekk
allt upp sem við lögðum upp með,“
sagði Rakel Logadóttir, miðjumað-
ur Vals, eftir leikinn en hún telur
að Stjarnan geti ekki unnið upp
sex stiga forskot Þórs/KA á toppi
deildarinnar.
„Það er langt í Þór/KA og ef þær
halda áfram að skora eins og þær
hafa verið að gera þá eru þær að
fara að vinna þetta. Ég held að
þetta sé leikurinn sem tryggi Þór/
KA titilinn, þær eru nú sex stigum
á undan Stjörnunni og fimm leik-
ir eftir,“ sagði Rakel en Ásgerður
Stefanía Baldursdóttir sem skoraði
fyrra mark Stjörnunnar hefur enn
trú á að liðið geti varið titilinn.
„Ég vil ekki halda að titilvonirn-
ar hafi farið þarna. Það eru fimm
leikir eftir og við verðum að halda
áfram og hugsa um okkur, ekki
pæla í öðrum leikjum. Það er allt
hægt í þessu,“ sagði Ásgerður.
„Mér fannst þær skapa sér fjög-
ur til fimm færi og klára þrjú.
Þetta eru alltaf jafnir leikir gegn
Val og úrslitin ráðast alltaf undir
lokin. Þetta datt þeirra megin í
dag,“ sagð Ásgerður að lokum.
Þór/KA fór illa með FH
Þór/KA-konur gefa ekkert eftir
á toppi Pepsi-deildar kvenna en
þær náðu sex stiga forskoti eftir
6-0 sigur á FH.
Sandra María Jessen skoraði
tvö mörk fyrir norðanliðið og er
markahæst í deildinni með fjór-
tán mörk í þrettán leikjum.
Botnliðin í deildinni bitu frá sér
í gær. KR vann 3-2 heimasigur á
Fylki og Selfoss gerði 3-3 jafntefli
við Blikakonur sem eru í 3. sæti
deildarinnar.
KR-konur voru þarna að vinna
sinn fyrsta sigur í deildinni í
sumar en Anna Garðarsdóttir
skoraði sigurmarkið 21 mínútu
fyrir leikslok þegar hún gerði sitt
annað mark í leiknum.
Umferðinni lýkur í kvöld á leik
milli ÍBV og Aftureldingar í
Eyjum. - gmi, -óój
Lið Þór/KA er komið með sex stiga forskot á toppi Pepsi-deildar kvenna í fótbolta eftir leiki gærkvöldsins:
Elín Metta slökkti í vonum Stjörnukvenna
HETJA VALSMANNA Í GARÐABÆNUM Elín Metta Jensen skoraði sigurmark í upp-
bótartíma á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
GOLF Íslandsmóti unglinga í holu-
keppni, sem leikið var á Þorláks-
hafnarvelli, lauk í gær.
Íslandsmeistarar í flokki 14 ára
og yngri urðu þau Þóra Kristín
Ragnarsdóttir og Atli Már Grét-
arsson úr Keili. Í flokki 15-16 ára
urðu Gunnhildur Kristjánsdóttir
úr GKG og Birgir Björn Magn-
ússon úr Keili Íslandsmeistarar.
Íslandsmeistarar í elsta flokkn-
um 17-18 ára urðu þau Guðrún
Brá Björgvinsdóttir úr Keili og
Stefán Þór Bogason úr GR. - óój
Holukeppni unglinga lokið:
Keilisfólk með
fjögur gull
ÓL 2012 Jamaíkamaðurinn
Usain Bolt endurskrifaði
Ólympíusöguna í gærkvöldi
þegar hann bætti við gulli í
200 metra hlaupi við það sem
hann vann í 100 metrunum á
sunnudagskvöldið.
Engum öðrum hafði tekist að
vinna Ólympíugull í 100 og 200
metra hlaupum á tveimur leikum
í röð. Bolt kom í mark á 19,32
sekúndum en Jamaíkamenn
urðu í þremur efstu sætunum
í hlaupinu. Yohan Blake varð
annar í hlaupinu á 19.44 sek. og
þriðji varð Warren Weir.
Usain Bolt kom vissulega í
mark á frábærum tíma en eins
og oft áður hægði hann á sér í
markinu og missti þá líklega
af Ólympíumetinu og jafnvel
heimsmetinu. Heimsmet hans er
19,19 sekúndur en Ólympíumetið
er 19,30 sekúndur frá því í
Peking. - óój
200 metra hlaup karla á ÓL:
Sögulegur sigur
hjá Usain Bolt
USAIN BOLT Sá fljótasti í heimi brást ekki
í London í gærkvöldi. NORDICPHOTOS/AFP
Vilhjálmur Einarsson, Melbourne 1956
Silfurverðlaun í þrístökki
Vala Flosadóttir, Sydney 2000
Bronsverðlaun í stangarstökki
Vilhjálmur Einarsson, Róm 1960
5. sæti í þrístökki
Sigurður Einarsson, Barcelona 1992
5. sæti í spjótkasti
Þórey Edda Elísdóttir, Aþena 2004
5. sæti í stangarstökki
Einar Vilhjálmsson, Los Angeles 1984
6. sæti í spjótkasti
Guðrún Arnardóttir, Sydney 2000
7. sæti í 400 metra grindahlaupi
Hreinn Halldórsson, Moskvu 1980
10. sæti í kúluvarpi
Óskar Jakobsson, Moskvu 1980
11. sæti í kúluvarpi
Vésteinn Hafsteinsson, Barcelona 1992
11. sæti í kringlukasti
Sigurður Sigurðsson, Berlín 1936
11. sæti í þrístökki
Ásdís Hjálmsdóttir, London 2012
11. sæti í spjótkasti
ÓL 2012 Ásdís Hjálmsdóttir hafn-
aði í ellefta sæti í spjótkasts-
keppni kvenna á Ólympíuleik-
unum í London í gærkvöldi. Hún
kastaði 59,08 m strax í fyrstu til-
raun og reyndist það lengsta kast
hennar.
„Þetta er alls ekki lélegur
árangur þó svo að ég hafi verið
að kasta 62,77m fyrir tveimur
dögum,“ sagði Ásdís í gærkvöldi
en hún setti glæsilegt Íslands-
met í undankeppninni á þriðju-
dag. Hún neitaði því þó ekki að
hún ætlaði sér meira.
„Að sjálfsögðu er þetta pínulítið
svekkjandi. Ég er keppnismann-
eskja og það er það sem kom mér
hingað. Ég er svekkt í kvöld en á
morgun verð ég ánægð, enda ekki
annað hægt en að komast í úrslit
og enda í ellefta sæti.“
Heimsmeistarinn í 10. sæti
Átta efstu eftir fyrstu þrjú köst-
in fengu að halda áfram og taka
önnur þrjú köst. Ásdís var ekki í
þeim hópi en ekki heldur heims-
meistarinn Maria Abakumova.
„Það segir mikið um þessa
grein og hvernig hún er. Þess
fyrir utan náði stelpa sem hefur
ekki verið að kasta vel í sumar í
brons,“ sagði hún og átti þar við
Lindu Stahl frá Þýskalandi.
Heimsmethafinn Barbora
Spotakova frá Tékklandi varði
Ólympíutitil sinn í greininni með
kasti upp á 69,55m og önnur varð,
Christina Obergföll, með 65,16m
en hún er einnig frá Þýskalandi.
Ásdís kastaði 57,35m í annarri
tilraun en gerði viljandi ógilt í
þriðju. Hún sá um leið að spjót-
ið færi ekki langt enda reis það
mjög hátt og varð fyrir vikið mun
styttra en ella. „Það var rosalega
gott kast – betra en á þriðjudag-
inn. En ég reif aðeins í það – það
kom smá hreyfing í úlnliðinn
sem varð til þess að spjótið reis
of mikið upp,“ sagði hún.
„Upphitunin hafði gengið mjög
vel og mér leið vel. Ég var of rög
í fyrsta kastinu og svo geymdi
ég hægri höndina ekki nógu vel í
öðru kastinu, svo ég vísi í tækni-
málið. Ég ætlaði svo að negla
þriðja kastið en svo fór það svona.
Það þarf smá heppni og þýðir ekki
að dvelja lengur við það.“
Ætla að toppa í Ríó
Ásdís er 26 ára gömul og er hvergi
nærri hætt. „Undirbúningurinn
fyrir [Ólympíuleikana] í Ríó hefst
á morgun. Ég er ekki einu sinni að
hugleiða að hætta. Spjótkastarar
eru oft að toppa í kringum þrítugt
og ég ætla mér að toppa í Ríó.“
Nú hefst undirbúningurinn fyrir Ríó
Ásdís Hjálmsdóttir hafnaði í ellefta sæti í spjótkasti kvenna á Ólympíuleikunum í London. Hún kastaði
59,08 m sem er nokkuð frá Íslandsmetinu sem hún setti á þriðjudag. „Alls ekki lélegur árangur,“ segir hún.
FÉKK BARA ÞRJÚ KÖST Ásdís Hjálmsdóttir sést hér eftir þriðja og síðasta kastið sitt á Ólympíuleikvanginum í London í gær en þá
varð ljóst að hún yrði ekki meðal þeirra átta sem fengu þrjú köst til viðbótar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Besti árangur Íslendinga í frjálsum á ÓL:
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
og Valgarður
Gíslason
fjalla um ÓL 2012
eirikur@frettabladid.is - valli@frettabladid.is