Fréttablaðið - 12.09.2012, Side 25

Fréttablaðið - 12.09.2012, Side 25
KYNNING − AUGLÝSING Handavinna & föndur12. SEPTEMBER 2012 MIÐVIKUDAGUR 3 Heimilisiðnaðarskólinn Prjón, hekl, þjóðbúningasaumur, baldýring, útsaumur, orkering, knipl, jurtalitun, tóvinna, námskeið fyrir börn, vefnaður, leðursaumur, og margt fleira. Verslun Mikið úrval af íslensku prjónabandi og lopa, prjónum, prjónabókum og blöðum. Efni og tillegg fyrir þjóðbúningasaum og jurtalitun. Garn ofl. fyrir vefnað og efni til jurtalitunar. Gjafakort. Opið alla virka daga kl. 12 – 18. Verið velkomin.   Heimilisiðnaðarfélag Íslands Nethyl 2e 110 Reykjavík Símar 5517800/5515500 hfi@heimilisiðnaður.is www.heimilisidnadur.is Amma mús – handavinnuhús var opnað í byrjun ágúst árið 2010. Lagt var upp með að opna alhliða hann- yrðavöruverslun með prjón og útsaum. „Við horfðum til fyrri tíma verslana þar sem hægt var að fá mikið úrval vara á einum stað. Í Ömmu mús erum við með nánast allt sem viðkemur prjóni og saumum, til dæmis dásamlegt prjónagarn og upp skriftir á íslensku frá Rauma í Noregi og danskar prjónabækur og garn frá Isager í Danmörku. Í Ömmu mús eru miklir reynsluboltar á bak við borðið sem geta aðstoðað með nán- ast hvað sem er. Við erum sérverslun með þekkingu og þjónustu,“ segir Hildur Guðna- dóttir, eigandi Ömmu músar. Sú nýbreytni verður í haust hjá Ömmu mús að boðið verður upp á stutt námskeið sem miða að því að ná færni í því sem kennt er það kvöldið. „Hugsunin er sú að þeir sem ekki hafa áhuga á að binda sig í mörg skipti eða langar bara að læra eitthvað eitt til að koma sér af stað geti það með góðu móti. Þetta gæti líka verið góð tilbreyting fyrir saumaklúbbinn eða vinkonuhópinn. Sem dæmi um námskeið má nefna prjónaðar jólakúlur, heklaðar jólabjöllur og hekl fyrir byrjendur, líka örvhenta.“ Námskeiðin verða á miðvikudagskvöldum frá klukkan sjö til tíu og þau hefjast þann 26. september næstkomandi. Allt efni sem þarf að nota á námskeiðunum fæst á staðnum. Hildur segir að margt hafi breyst í þjóð- félaginu á síðustu árum. Kunnátta í hann- yrðum hafi minnkað eftir að húsmæðra- skólum landsins fækkaði en eftir að kreppan skall á hafi þrýstingur á fólk að fara að prjóna og sauma sjálft aukist. „Við finnum vel fyrir þessum mikla áhuga og í fyrra urðum við líka varar við vaxandi áhuga fyrir útsaumnum. Það er greini- legt að nú á að sauma meira fyrir jólin en mörg undanfarin ár. Við erum búnar að fá jólaútsauminn í hús og ný útsaumsefni í bland við þau hefðbundnu. Nýjar mynstur- bækur og strammamyndirnar gömlu og góðu koma inn eins og haustlægðirnar. Fyrir þær sem ekki hafa of mikinn tíma eða vilja skapa sjálfar sín verk þá má benda á að það eru ekki alltaf stærstu stykkin sem gera mesta lukku. Smá útsaumur í fal legum ramma getur líka glatt.“ Ásamt því að bjóða upp á áðurnefnd námskeið heldur starfsfólk Ömmu músar prjónakaffi annan hvern laugardag á milli tíu og tólf. „Þá kemur hingað fullt af fólki og prjónar saman. Okkur finnst gaman að heyra frá viðskiptavinum okkar hvað þá langar að gera og læra og höfum stundum orðið við óskum um ákveðin námskeið. Það er til dæmis á döfinni að halda mæðgnakvöld þar sem stelpur koma með mæðrum sínum og læra grunninn í prjóni. Við ætlum líka að vera með grunn- námskeið í hekli og finnum fyrir auknum áhuga á því hjá ungum konum. Við reynum að verða við óskum viðskiptavinanna og reynum eftir fremsta megni að leysa úr þeim vandamálum sem til okkar er leitað með,“ segir Hildur. Nánari upplýsingar um verslunina má finna á Facebook-síðu hennar. Fjölbreytt námskeið haldin í vetur Amma mús – handavinnuhús býður mikið úrval prjóna- og útsaumsvöru og er starfsfólk verslunarinnar fullt af þekkingu og reynslu af hannyrðum. Jólaútsaumurinn er kominn í hús og ný útsaumsefni. Verslunin mun standa fyrir fjölbreyttum námskeiðum í vetur. Starfsfólk Ömmu músar býr yfir mikilli reynslu. MYND/ANTON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.