Fréttablaðið - 12.09.2012, Page 25
KYNNING − AUGLÝSING Handavinna & föndur12. SEPTEMBER 2012 MIÐVIKUDAGUR 3
Heimilisiðnaðarskólinn
Prjón, hekl, þjóðbúningasaumur, baldýring, útsaumur,
orkering, knipl, jurtalitun, tóvinna, námskeið fyrir börn,
vefnaður, leðursaumur, og margt fleira.
Verslun
Mikið úrval af íslensku prjónabandi og lopa, prjónum,
prjónabókum og blöðum.
Efni og tillegg fyrir þjóðbúningasaum og jurtalitun.
Garn ofl. fyrir vefnað og efni til jurtalitunar.
Gjafakort.
Opið alla virka daga kl. 12 – 18.
Verið velkomin.
Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Nethyl 2e
110 Reykjavík
Símar 5517800/5515500
hfi@heimilisiðnaður.is
www.heimilisidnadur.is
Amma mús – handavinnuhús var opnað í byrjun ágúst árið 2010. Lagt var upp með að opna alhliða hann-
yrðavöruverslun með prjón og útsaum. „Við
horfðum til fyrri tíma verslana þar sem
hægt var að fá mikið úrval vara á einum
stað. Í Ömmu mús erum við með nánast
allt sem viðkemur prjóni og saumum, til
dæmis dásamlegt prjónagarn og upp skriftir
á íslensku frá Rauma í Noregi og danskar
prjónabækur og garn frá Isager í Danmörku.
Í Ömmu mús eru miklir reynsluboltar á
bak við borðið sem geta aðstoðað með nán-
ast hvað sem er. Við erum sérverslun með
þekkingu og þjónustu,“ segir Hildur Guðna-
dóttir, eigandi Ömmu músar.
Sú nýbreytni verður í haust hjá Ömmu
mús að boðið verður upp á stutt námskeið
sem miða að því að ná færni í því sem kennt
er það kvöldið. „Hugsunin er sú að þeir sem
ekki hafa áhuga á að binda sig í mörg skipti
eða langar bara að læra eitthvað eitt til að
koma sér af stað geti það með góðu móti.
Þetta gæti líka verið góð tilbreyting fyrir
saumaklúbbinn eða vinkonuhópinn. Sem
dæmi um námskeið má nefna prjónaðar
jólakúlur, heklaðar jólabjöllur og hekl fyrir
byrjendur, líka örvhenta.“ Námskeiðin
verða á miðvikudagskvöldum frá klukkan
sjö til tíu og þau hefjast þann 26. september
næstkomandi. Allt efni sem þarf að nota á
námskeiðunum fæst á staðnum.
Hildur segir að margt hafi breyst í þjóð-
félaginu á síðustu árum. Kunnátta í hann-
yrðum hafi minnkað eftir að húsmæðra-
skólum landsins fækkaði en eftir að
kreppan skall á hafi þrýstingur á fólk að
fara að prjóna og sauma sjálft aukist. „Við
finnum vel fyrir þessum mikla áhuga og
í fyrra urðum við líka varar við vaxandi
áhuga fyrir útsaumnum. Það er greini-
legt að nú á að sauma meira fyrir jólin en
mörg undanfarin ár. Við erum búnar að fá
jólaútsauminn í hús og ný útsaumsefni í
bland við þau hefðbundnu. Nýjar mynstur-
bækur og strammamyndirnar gömlu og
góðu koma inn eins og haustlægðirnar.
Fyrir þær sem ekki hafa of mikinn tíma eða
vilja skapa sjálfar sín verk þá má benda á að
það eru ekki alltaf stærstu stykkin sem gera
mesta lukku. Smá útsaumur í fal legum
ramma getur líka glatt.“
Ásamt því að bjóða upp á áðurnefnd
námskeið heldur starfsfólk Ömmu músar
prjónakaffi annan hvern laugardag á
milli tíu og tólf. „Þá kemur hingað fullt
af fólki og prjónar saman. Okkur finnst
gaman að heyra frá viðskiptavinum okkar
hvað þá langar að gera og læra og höfum
stundum orðið við óskum um ákveðin
námskeið. Það er til dæmis á döfinni að
halda mæðgnakvöld þar sem stelpur koma
með mæðrum sínum og læra grunninn í
prjóni. Við ætlum líka að vera með grunn-
námskeið í hekli og finnum fyrir auknum
áhuga á því hjá ungum konum. Við reynum
að verða við óskum viðskiptavinanna og
reynum eftir fremsta megni að leysa úr
þeim vandamálum sem til okkar er leitað
með,“ segir Hildur.
Nánari upplýsingar um verslunina má
finna á Facebook-síðu hennar.
Fjölbreytt námskeið haldin í vetur
Amma mús – handavinnuhús býður mikið úrval prjóna- og útsaumsvöru og er starfsfólk verslunarinnar fullt af þekkingu og reynslu
af hannyrðum. Jólaútsaumurinn er kominn í hús og ný útsaumsefni. Verslunin mun standa fyrir fjölbreyttum námskeiðum í vetur.
Starfsfólk Ömmu músar býr yfir mikilli reynslu. MYND/ANTON