Fréttablaðið - 20.09.2012, Side 11
FIMMTUDAGUR 20. september 2012 11
50% afsláttur af
öllu leigðu efni í
Sjónvarpi Símans á
Mögnuðum miðviku-
dögum í september.
Ljósnetið færir þér kraftmeiri nettengingu
Þú getur tengt allt að fimm háskerpulykla
fyrir Sjónvarp Símans þar sem hægt
er að leigja kvikmyndir og horfa á yfir
100 íslenskar og erlendar sjónvarpsrásir.
Kynntu þér áskriftarleiðirnar á siminn.is
eða í 800 7000.
Ævintýralegt úrval
af kvikmyndum og sjónvarpsefni
í Sjónvarpi Símans
Ljósnetið er allt að 50 Mb/s
Mánaðarverð
4.690 kr.
Mánaðarverð
5.690 kr.
Mánaðarverð
6.790 kr.
Ljósnet 1
10GB
Ljósnet 2
40GB
Ljósnet 3
80GB
Ljósnet 4
140GB
Mánaðarverð
8.090 kr.
Vinsælasta
leiðin
50Mb • 10
GB
12Mb • 40
GB
50 12Mb • 80
GB
50
12Mb • 140
GB
50
FRAKKLAND, AP Birting nýrra skopmynda af
Múhameð spámanni í franska tímaritinu
Charlie Hebdo hefur aukið enn á þá spennu
sem verið hefur út af ögrandi myndbandi
sem gert var í Bandaríkjunum.
Frönsk stjórnvöld brugðust við birtingu
skopmyndanna með því að herða öryggisráð-
stafanir og verða frönsk sendiráð í um tutt-
ugu löndum lokuð á föstudaginn, bænadag
múslíma. Þá hafa frönsk stjórnvöld bannað
mótmæli gegn bandaríska myndbandinu,
sem fyrirhuguð voru í París á laugardag.
„Það er óþarfi að láta átök sem varða
Frakkland ekkert koma hingað til lands,“
sagði Jean-Marc Ayrault, forsætisráðherra
Frakklands. Ofbeldi af hálfu móðgaðra mús-
líma og ögranir af hálfu Vesturlandabúa
hafa enn á ný vakið upp umræðu um tján-
ingarfrelsið og mörk þess í mörgum Evrópu-
löndum.
Ayrault forsætisráðherra sagði að frönsk
stjórnvöld myndu eftir sem áður tryggja
tjáningarfrelsið, en hvatti menn til að „beita
því af ábyrgð og með virðingu“.
Ofbeldi í tengslum við mótmælin gegn
bandaríska myndbandinu hafa kostað að
minnsta kosti þrjátíu manns lífið í sjö lönd-
um. - gb
Frakkar herða öryggi eftir að grínblað birti nýjar skopmyndir af Múhameð:
Um tuttugu sendiráðum lokað á morgun
RITSTJÓRINN CHARB Þrátt fyrir sprengjuárás á rit-
stjórnarskrifstofur Charlie Hebdo fyrir ári hikar Charb
ekki við að birta fleiri myndir. NORDICPHOTOS/AFP
ÖRYGGISMÁL Ríkisstjórnin sam-
þykkti á þriðjudag, að tillögu
Ögmundar Jónassonar innan-
ríkisráðherra, að segja upp sam-
starfssamningi við Norðmenn um
kaup á björgunarþyrlu, en samn-
ingurinn var gerður í nóvember
2007. Þess í stað verður boðin út
langtímaleiga á tveimur þyrlum
til viðbótar við núverandi þyrlu
Landhelgisgæslunnar.
Í sameiginlegri yfirlýsingu
Ögmundar og dómsmálaráðherra
Noregs, Grete Faremo, segir að
ástæðan sé mikið aðhald í ríkisút-
gjöldum á Íslandi. „Kaup á nýjum
björgunarþyrlum krefjast mikilla
fjárfestinga sem ekki er hægt að
ábyrgjast á næstu árum.“ - kóp
Langtímaleiga boðin út:
Hættir við
kaup á þyrlu
NEYTENDUR Toyota á Íslandi hefur
nú innkallað 1480 Avensis- og
RAV4-bifreiðar. Neytendastofu
barst tilkynning þess efnis og
birti á síðu sinni í gær.
Ástæða innköllunarinnar er að
stilliró á þverstífu á afturhjóli
getur losnað og hjól losnað undan
bílum. Um er að ræða hundrað
Avensis-bifreiðar framleiddar
á tímabilinu nóvember 2008 til
janúar 2011 og 1.380 RAV4-bif-
reiðar frá nóvember 2005 til ágúst
2010. Eigendur bifreiðanna fá sent
bréf á næstu dögum. - sv
Toyota á Íslandi innkallar bíla:
Afturhjól getur
losnað undan
SVÍÞJÓÐ Sænska húsgagnaversl-
unin Ikea ætlar sér að verða
tæplega tvöfalt stærri fyrir árið
2020. Til stendur að opna 20 til 25
nýjar verslanir á hverju ári fram
til ársins 2020. Nú eru um sex
til tíu nýjar verslanir opnaðar á
hverju ári.
Þetta kemur fram í sænska
blaðinu Dagens Industri. Fram-
kvæmdastjóri Ikea, Mikael
Ohlsson, segir við blaðið að Ikea
hafi vaxið hraðar en gert hafi
verið ráð fyrir og þar á bæ sjái
menn enn meiri möguleika, bæði
í þeim löndum þar sem verslanir
eru fyrir og í nýjum löndum.
297 Ikea-verslanir eru í heim-
inum. Þær eru staðsettar í 26
löndum og 655 milljónir manna
versla þar árlega. - þeb
Opna allt að 25 búðir á ári:
Ætla að tvö-
falda stærðina
IKEA Nú eru tæplega 300 Ikea-verslanir
í heiminum. Þessi er í Bandaríkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NOREGUR Íhaldsflokkurinn Høyre í
Noregi vill að byggt verði sérstakt
fangelsi fyrir útlenda fanga.
Bent Høie, varaformaður
flokksins, sagði í samtali við
Aftenposten að engin þörf væri
á því að eyða peningum í endur-
hæfingu fanga sem myndu aldrei
koma aftur inn í norskt samfé-
lag, heldur yrði vísað úr landi.
„Við þurfum ekki heldur að bjóða
þeim menntun eða aðra aðstoð til
að undirbúa þá fyrir líf í Noregi.“
Høie sagði að flokkurinn vildi
koma í veg fyrir þá tilhneigingu
að útlendir fangar litu á refsingu í
norskum fangelsum sem frí. - þeb
Íhaldsmenn í Noregi:
Vilja sérfangelsi
fyrir útlendinga