Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 33
KYNNING − AUGLÝSING Kaffi20. SEPTEMBER 2012 FIMMTUDAGUR 3
Senseo kaffi kom á markað-inn hérlendis árið 2004 og sló um leið rækilega í gegn
hjá kaffiþyrstum Íslendingum. Í
dag eru um sjötíu þúsund Senseo
kaffivélar á meirihluta íslenskra
heimila.
Farsælt samstarf
Forsagan að Senseo-bylgjunni er
sú að um síðustu aldamót tóku
saman höndum raftækjarisinn
Philips og Douwe Egberts en Ís-
lendingar gjörþekkja framleiðslu
þess fyrirtækis undir merkinu
Merrild. „Þetta samstarf þeirra,
Philips og Douwe Egberts, átti
eftir að umturna kaffimenning-
unni svo um munaði þegar fyrsta
Senseo kaffivélin kom á mark-
að árið 2001. Þessi uppfinning
hrinti af stað miklum breyting-
um hjá hinum almenna kaffi-
neytanda sem gat nú lagað sér
einn bolla í einu af gæðakaffi á
einfaldan og fljótlegan hátt á hóf-
legu verði. Senseo sló strax í gegn
og eftir aðeins þrjú ár höfðu selst
um tíu milljón kaffivélar í Evrópu.
Í dag eru vélarnar orðnar nálægt
35 milljónum talsins og Senseo er
enn leiðandi og stærsta merkið á
„single serve“ kaffimarkaðnum,“
segir Sveinn Waage, vörumerkja-
stjóri Senseo á Íslandi.
Fjölbreytt og gott úrval
Hann segir fjölbreytt og gott úrval
vera stóran þátt í vinsældum Sen-
seo. Neytendur geta valið úr Medi-
um og Dark Roast, sem eru vinsæl-
ustu tegundirnar og blöndur eins
og Colombia, Kenya og Brazil eiga
sína tryggu neytendur. Cappucc-
ino og kakó eru einnig í vörulín-
unni og loks er hið rómaða Café
Noir sem er uppáhald margra í
Senseo. „Kaffilögunin í Senseo-
vélum er lokað ferli undir þrýst-
ingi, líkt og í espressovélum, sem
skilar fullum gæðum í bollann.
Útkoman er kaffi með silkimjúkri
áferð og froðutoppi, sem einkenn-
ir ekta Senseo kaffi.“
Ný Senseo tegund
Í ár komu tvær nýjar tegundir í
nýrri línu frá Senseo sem kallast
INTENSE. „Senseo var með þessari
línu að svara kalli þeirra neytenda
sem vilja enn meira og fyllra bragð,
líkara því sem fæst með uppáhell-
ingu eða á kaffihúsum. Senseo In-
tense, Classic og Forte, hafa hlot-
ið frábærar viðtökur hjá íslenskum
neytendum og eru þessar tegund-
ir komnar í fast vöruúrval í flestum
verslunum. Allir ættu því að finna
sér gott kaffi við hæfi í Senseo-lín-
unni,“ segir Sveinn og bætir við
að fleiri spennandi nýjungar séu
væntanlegar næstu misserin.
Senseo kaffi fyrir Senseo vélar
Frábær árangur á Íslandi og á
heimsvísu kallaði á harða sam-
keppni frá öðrum framleiðendum
og eftir mikla baráttu í réttarsöl-
um var sérleyfi Senseo á kaffipúð-
um endanlega afturkallað hjá Evr-
ópsku einkaleyfastofnuninni 2006.
Philips og Senseo höfðu fram
að því og allar götur síðan hann-
að vélar og kaffipúða í samein-
ingu til þess að útkoman yrði sem
allra best. „Eftir að Senseo missti
sérleyfi sitt komu inn á markað-
inn ódýrar eftirlíkingar sem gjör-
breyttu upplifun neytenda á notk-
un Senseo-kaffivéla til hins verra.
En með stöðugu þróunarstarfi
hafa nýjar kaffivélar, fleiri tegund-
ir og betrumbættir púðar komið á
markaðinn sem tryggja sérstöðu
og samstarf Philips og Senseo.
Neytendur munu ætið fá langbestu
útkomuna með því að nota kaffið
sem er hannað fyrir vélina.“
Gæðakaffi á 27 krónur
„Sölutölur sýna okkur að f lest-
ir eigendur Senseo véla velja ekta
Senseo kaffi en framboð á eftirlík-
ingum hefur aukist á undanförn-
um árum“, segir Sveinn. „Okkur
hjá Senseo er bæði ljúft og skylt að
upplýsa neytendur. Gamla, góða
slagorðið „varist eftirlíkingar“ er
í fullu gildi þegar kemur að Sen-
seo. Það er í raun frekar dapur-
legt þegar neytendur, sem fjárfest
hafa í Senseo kaffivél, láta plata
sig í annað þegar hægt er að fá sér
ósvikinn ilmandi Senseo kaffi-
bolla á 27 krónur úr sömu kaffi-
vél.“
Ósvikin gæði í Senseo kaffinu
Senseo kaffi hefur verið á markaði á Íslandi síðan 2004 og hefur það unnið hug og hjörtu landsmanna. Meirihluti íslenskra heimila
státar af Senseo kaffivél og þegar Senseo kaffipúðar eru valdir í vélina er útkoman kaffi með silkimjúkri áferð og froðutopp sem
einkennir ekta Senseo kaffi.
Sveinn Waage, vörumerkjastjóri Senseo á Íslandi, mælir með því að þeir sem vilja kaffi með fullum gæðum í bollann sinn velji Senseo kaffipúða í Senseo-vélarnar. MYND/GVA
Tvær nýjar tegundir í nýrri
línu frá Senseo, sem kallast
INTENSE, eru komnar á mark-
að. Senseo Intense, Classic
og Forte, hafa hlotið frábærar
viðtökur hjá íslenskum neyt-
endum en af þeim er meira
og fyllra bragð.