Fréttablaðið - 22.09.2012, Qupperneq 36
Grand Hótel Reykjavík er stærsta funda- og
ráðstefnuhótel landsins með fjórtán ráðstefnu-
og veislusali. Hótelið eru um leið fyrsta flokks
glæsihótel með 312 herbergi í öllum stærðar-
flokkum, frá einstaklings herbergjum upp í
glæsilegar svítur. Á hótelinu er einnig að finna
fyrsta flokks veitingastað, Brasserie Grand, sem
býður upp á gott úrval íslenskra sjávarrétta og
alþjóðlegra rétta.
G læsilegur 14 hæða turn var opnaður árið 2007. Hann er tengdur hótelinu með glerbyggingu og
hýsir rúmlega 200 herbergi. Þar er að finna gestamóttöku
hótelsins og Miðgarð, sem er 600 fermetra svæði og getur
hýst stórar móttökur.
Herbergin á Grand Hótel Reykjavík eru rúmgóð og búin
öllum nútíma þægindum, meðal annars háhraðatengingu
og sjónvarpsleigu. Á 13. hæð hótelsins eru tvær forseta-
svítur með 94 m2 stofu og móttökusvæði og 40 m2 svefn-
herbergi. Útsýnið á efri hæðum turnsins er stórkostlegt og
nær yfir alla borgina og sundin.
Grand Hótel Reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins
með 14 ráðstefnusali og fundarherbergi sem henta við öll
tækifæri. Stærsti salurinn er 345 m2 og tekur um 470 manns
í sæti. Allir salirnir eru útbúnir nýjum og fullkomnum
tækja búnaði og henta sumir salirnir einnig til sýningar-
halds. Huginn og Muninn eru fundarsalir á efstu hæð í
turninum. Hvor salur er 30 m2 að stærð og rúmar 12 manns
við borð með einstöku útsýni yfir höfuð borgar svæðið.
Grand Hótel Reykjavík er aðili að alþjóðlegu hótel-
samtökunum Great Hotels of the World. Í samtökunum
eru einungis 4 til 5 stjörnu hótel sem bjóða upp á úrvals
þjónustu fyrir almenna ferðamenn og ráðstefnugesti.
Fjöldi bílastæða er við hótelið sem hótelgestir geta nýtt
sér að kostnaðarlausu. Aðgengi fyrir fatlaða er til jafns við
aðra hvar sem er á hótelinu.
Nýlega var opnuð heilsulind á hótelinu undir nafninu
Reykja vík Spa. Aðstaðan er ætluð hótelgestum og þar eru
líkamsræktartæki, heitir pottar, snyrtistofur, hvíldarsvæði
og gufubað.
Grand alla leið
Nýr ráðstefnupakki hjá Grand Hótel Reykjavík
Grand Hótel Reykjavík
Sigtúni 38, 105 Reykjavík
Sími: 514 8000
www.grand.is
info@grand.is
Nú býðst fyrirtækjum og stofnunum nýr og bættur
ráðstefnupakki hjá Grand Hótel Reykjavík sem miðar að
því að fundarmenn haldi orku og einbeitingu yfir dag-
inn. Boðið er upp á hollan og góðan mat frá því gestir
koma í hús og þar til ráðstefnu eða fundi lýkur. Salvör
Brandsdóttir, ráðstefnustjóri Grand Hótel Reykja vík,
segir þessa nýjung hafa mælst vel fyrir hjá fundar- og
ráðstefnugestum enda geti verið lýjandi að sitja heilan
dag. „Í upphafi dags fá fundargestir sérstakt orkuskot.
Á meðan ráðstefnur eða fundir standa yfir er reglulega
boðið upp á hollan og góðan mat sem hjálpar gestum
okkar að halda einbeitingunni og ná hámarksafköstum
yfir daginn. Enda köllum við nýja ráðstefnupakkann
Orkuboltann.“
Á morgunverðarhlaðborði hótelsins er m.a. lífrænn
matur og einnig er hluti af kaffiveitingunum lífrænn, og
segir Salvör sífellt meiri eftirspurn eftir slíkum valkosti.
„Síðan búum við svo vel að hafa faglærða bakara í eld-
húsinu. Boðið er upp á heimabakað brauð, rúnstykki og
annað meðlæti yfir daginn. Meira að segja kleinurnar
okkar eru bakaðar hér. Við erum afar montin af því að
geta boðið upp á jafn hollar og fjölbreyttar veiting ar.
Einnig verðum við meira vör við það en áður að erlen-
dum fyrirtækjum og gestum finnist þessir hlutir skipta
máli við val á hóteli sem ráðstefnu kosti.“ Vottunar stofan
Tún hefur staðfest að Grand Hótel Reykja vík uppfylli
allar reglur um meðferð lífrænna matvæla og segir
Salvör hótelið vera fyrsta sinnar tegundar hérlendis til
að hljóta slíka vottun.
Sumarið var nýtt í að taka stærsta ráðstefnusalinn í
gegn fyrir veturinn að sögn Salvarar . „Við lögðum ný
teppi í Gullteig, stærsta salnum okkar, máluðum salinn
og skiptum um borð svo dæmi séu nefnd. Hann verður
því enn glæsilegri en áður.“