Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 46

Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 46
22. september 2012 LAUGARDAGUR6 Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK S. 510 1700 F. 510 1717 WWW.VR.IS Laus er til umsóknar staða ráðgjafa á sviði starfsendurhæfingar í Vestmannaeyjum Um er að ræða samvinnuverkefni VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, VR auk annarra stéttarfélaga í Vestmannaeyjum. Ráðgjafinn mun halda utan um starfsendurhæfingarmál félagsmanna í Vestmannaeyjum sem eru óvinnufærir vegna slysa eða sjúkdóma, í þeim tilgangi að aðstoða þá við að auka vinnugetu sína og varðveita vinnusamband þeirra. Um er að ræða mjög krefjandi starf í umhverfi sem er enn í mótun og uppbyggingu. Helstu verkefni ráðgjafans verða: - Stuðningur, ráðgjöf og hvatning fyrir einstaklinga - Upplýsingaöflun og mat skv. viðurkenndum aðferðum - Umsjón, eftirfylgni og leiðsögn varðandi endurhæfingaráætlanir einstaklinga, í samstarfi við fagaðila - Samstarf við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir vegna verkefnisins Helstu hæfniskröfur vegna starfsins eru: - Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda sem nýtist í starfi (t.d. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, náms- og starfsráðgjafar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar) - Víðtæk reynsla og þekking á sviði starfsendurhæfingar er æskileg - Fagmennska, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum - Mjög góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund - Áhugi á að vinna með einstaklingum og geta til að skilja og setja sig inn í mismunandi aðstæður einstaklinga - Sveigjanleiki, færni og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð - Geta til að koma frá sér efni í ræðu og riti Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2012. Umsókn skal skila til virkumsokn@vr.is STARFSENDURHÆFINGARSJÓÐUR Um Þörungaverksmiðjuna Þörungaverksmiðjan rekur þurrkverksmiðju á Reykhólum, þar sem þang og þari eru þurrkuð í mjöl í háum gæðaflokki. Bæði framsleiðsla og hráefnisöflun fyrirtækisins hafa lífræna vottun. Meginhluti framleiðslunnar er seldur á erlendum mörkuðum, þar sem hún er m.a. nýtt í framleiðslu í lyfja- og snyrtivöruiðnaði auk framleiðslu á fóðurbæti, áburði og fleiru. Verksmiðjan gerir út þangflutningaskipið Gretti BA, tvo dráttarbáta og sex slátturpramma til þangskurðar í og við Breiðafjörð. Þörungaverksmiðjan er í eigu FMC BioPolymer (71%) og Byggðastofnunar (28%). Ársverk eru um 14 auk starfa verktaka við þangslátt. Rekstur Þörungaverksmiðjunnar gengur vel og er fyrirhugað að efla hann enn frekar á komandi árum. Þörungaverksmiðjan hf. óskar eftir að ráða í starf yfirvélstjóra og viðhaldsstjóra á Reykhólum. Starfið felst aðallega í vélstjórn og viðhaldi um borð í þangflutningaskipinu Gretti BA, auk þess sem viðkomandi sér um viðhald á þangskurðarprömmum félagsins, viðhaldi í verksmiðjunni á Reykhólum og önnur tilfallandi störf hjá fyrirtækinu. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um. Aðstoð óskast á tannlæknastofu í Reykjavík Tannlæknastofa í Reykjavík óskar eftir aðstoð/tanntækni til starfa. Um er að ræða 70% starf til klukkan 18 alla virka daga. Umsóknir skuli berast í box@frett.is merktar Aðstoð/tanntæknir og umsóknarfrestur er til 27. september.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.