Fréttablaðið - 22.09.2012, Qupperneq 55
15
Deildarstjóri reikningshalds
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða deildarstjóra í reiknings-
hald bæjarins . Deildarstjórinn ber ábyrgð á bókhaldi
Hafnarfjarðarbæjar, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins og
starfið heyrir undir fjármálastjóra. Um er að ræða fullt starf.
Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
• Yfirumsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi
• Umsjón með fjárhagskerfinu Dynamics NAV
• Afstemmingar og lokafrágangur mánaðaruppgjöra
• Vinnur að árshlutauppgjörum og ársreikningum
Hafnarfjarðarbæjar
• Innra eftirlit
• Vinnur við almennt rekstrareftirlit
• Veitir ráðgjöf í bókhalds- og uppgjörsmálum
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
• Viðskiptafræðimenntun og meistarapróf í reikningsskilum
og endurskoðun eða löggilding til endurskoðunarstarfa
• Reynsla af störfum á endurskoðunarstofu
• Þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningsskil
sveitarfélaga
• Góð þekking á Dynamics Nav og Excel
• Nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar
Frekari upplýsingar
Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningum Sambands
íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Með vísan í jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem
konur hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gerður Guðjónsdóttir,
fjármálastjóri í síma 585-5500 og á netfangið
gerdurg@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 27. september og umsókn-
um skal skila til Þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu
6, 220 Hafnarfjörður merkt „Deildarstjóri reikningshalds“
Iðjuþjálfun
sviðsstjóri iðjuþjálfa á
tauga- og hæfingarsviði
Laus er til umsóknar afleysingarstaða sviðsstjóra á tauga-
og hæfingarsviði. Um er að ræða 95% stöðu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.nóvember 2012
eða samkvæmt nánara samkomulagi. Sviðsstjóri ber ábyrgð á
skipulagi, þróun og framkvæmd iðjuþjálfunar á sviðinu.
Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegri teymisvinnu þar sem
áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna
sýn. Krafist er frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum, skipu-
lagshæfileika og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir iðjuþjálfa að starfa með hæfu og
metnaðarfullu fólki sem vinnur saman í öflugri teymisvinnu að
því að auka færni og lífsgæði einstaklinga með skerðingu vegna
taugasjúkdóma og fötlunar.
Hæfnikröfur: Próf í iðjuþjálfun frá skóla viðurkenndum af
Heimssamtökum iðjuþjálfa (WFOT) og með íslenskt starfsleyfi
og löggildingu. Æskilegt er að sviðsstjóri hafi að lágmarki
þriggja ára starfsreynslu.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og
fjármálaráðherra auk stofnanasamnings Iðjuþjálfafélags Íslands
og Reykjalundar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Jónsdóttir
aðstoðarforstöðuiðjuþjálfi í síma 585-2154,
netfang; siggaj@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 5.október 2012
Umsóknareyðublað og upplýsingar um Reykjalund má finna á
heimasíðunni www.reykjalundur.is
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Sími 585 2000 –
www.reykjalundur.is
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
S
E
C
6
11
91
0
9.
20
12
ÓSKUM EFTIR
ÖRYGGISVÖRÐUM
ÖRYGGISVERÐIR Í FARANDGÆSLU.
Vilt þú vinna við fjölbreytt og skemmtilegt starf?
Vegna aukinna verkefna getum við bætt við okkur fólki í öryggisgæslu.
Umsækjendur þurfa að vera heiðarlegir, ábyrgir og geta unnið sjálfstætt.
Lágmarksaldur: 25 ára. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
HÆFNISKRÖFUR
Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta
Heiðarleiki
Snyrtimennska
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Stundvísi
Umsækjendur þurfa að geta unnið sjálfstætt og skipulega og vera til-
búnir til þess að læra nýja og spennandi hluti. Allir umsækjendur þurfa
að geta framvísað hreinu sakavottorði, gildu ökuskírteini og vera reiðu-
búnir til að leggja fram upplýsingar úr málaskrá lögreglu verði óskað
eftir því. Um er að ræða 100% starfshlutfall, öruggt framtíðarstarf sem
hentar jafnt körlum sem konum.
Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu okkar www.securitas.is
Nánari upplýsingar gefur Kristín Dögg Höskuldsdóttir, fulltrúi á starfs-
mannasviði, kristind@securitas.is
Umsóknarfrestur er til 13. október 2012
Securitas hf. er þjónustufyrirtæki sem hóf starfsemi árið 1979.
Hjá Securitas starfa um 400 manns og eru starfsstöðvar félagsins
og dótturfélaga í Reykjavík, Akureyri, Reykjanesbæ og Reyðarfirði.
Gildi Securitas eru: Heiðarleiki – Árvekni – Hjálpsemi.
Securitas er
fyrirmyndarfyrirtæki
VR 2011
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | 580 7000 | securitas.is