Fréttablaðið - 22.09.2012, Síða 74
22. september 2012 LAUGARDAGUR34
Krossgáta
Lárétt
1. Glöðust varstu þessa ánægjutíma (11)
11. Annars fer Elín til Erlings (4)
12. Fel spillingargæslu að sinna skítaskoðun (17)
13. Á bænaborði er pilla og biblíumynd þar
fyrir ofan (12)
14. Andaðist lík hinna föllnu og steig dans? (9)
15. Drukkin set ég ofhlaðin á flot (10)
16. Hægindi fagmanns hvar skallar tóra (11)
17. Geimveran frá Melmac nötraði er sá
ósnertanlegi birtist (9)
18. Djarfara barnið finnur kápu fyrir guð (8)
22. Þvert á móti heitir að standa á sínu (12)
26. Konu Baldurs varð hverft við þetta blóm (8)
27. Lúinn franskur smábíll eða
lélegt húsnæði? (12)
29. Rugluðu rotnum mörðunum við bjóra (7)
30. Greina örlítið haf elektróna í þartilgerðu
tæki (14)
32. Heili meiði Óla (8)
33. Vesen ef Mustang er í rugli (7)
34. Skriðu ungnautakjöts var fargað með
þessum hætti (5)
35. Blek tengist snyrtilegri svo úr
verður skriffæri (9)
36. Sat bara í einhverju rugli (7)
Lóðrétt
1. Sat fróður sel til forna en er nú kex? (8)
2. Happatapparnir tönuðu skildu hross og
knaparassa uns þeim var skilað (14)
3. Fjörfuglar draga úr höggi (8)
4. Vísa í óplanað spjallið um töluna (20)
5. Skrímslasvæði fyrir þolendur ofbeldis (9)
6. Lón fullt af óskrifuðum orðum? (9)
7. Bíða boðs enda mega þau ekki
fara á án þess (11)
8. Veraldarbeygur vitjaði mín (9)
9. Fjallsheiði – eða öfugt – sem Kaninn
skildi eftir í rusli (11)
10. Rifjar upp miðpunkt og starfsfólk (8)
18. Vel búin fræ hræðslu við hið sigtaða (11)
19. Legg aulagang að jöfnu við durgseðli (10)
20. Keyrir í kross og harðneitar (9)
21. Brýni málmdrekanna (11)
23. Tognar gras fyrir þær er mest
hælast um (10)
24. Gríp til hanalagar er þorstinn
sækir að (10)
25. Ræsti iðnað fyrir stóna (10)
28. Sé rollupissið renna saman við
kaffihlandið (8)
31. Þessi dans er algjör sósa (5)
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist sögufrægt
örnefni að vestan. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 26. september
næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „22. september“.
Lausnarorð síðustu viku var
Vikulega er dregið úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Hermiskaði frá Forlaginu.
Vinningshafi síðustu viku var
Herdís Tegeder, Vestmanna-
eyjum.
U P P Þ V O T T A L Ö G U R
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11
12
13
14
15
16
17
18 19 20 21
22 23 24 25
26
27 28
29
30
31
32 33
34
35
36
S T U N D A R B R J Á L Æ Ð I H K
K N U Ó A A Á L Ú T I
A N D A G I F T F X G A M
R I L A S N A E Y R U N U M I
K Ú R B Í T U R S L Ð P Þ
A S T É K O D D A S L A G U R
L I T L I P U T T I I Ó S M
A A L T P Ú Ð U R T U N N A N
G Æ Ð A L E G U T L T A L
A A O R K U B O L T I T Í
T Ó N V I S S O J A S A N N I
A Í L S A U R A F Á R A
H Ú S A K O S T U R F L E F
R U K A G E H A M P A R
S Ö N N U N A R G A G N I N U L Á
K D H R E T G A M A L T
K U Á G I R N D I N A A
S Á L R Æ N T P G A R S E N A L
L Í M U G U S T U R Í D
S A L A T I Ð R R M Ó T E F N I
H
Á þessum degi fyrir réttum 32 árum, hinn 22. september árið 1980, réðust íraskar hersveitir inn í Íran og upphófst þar stríð
milli nágrannaþjóðanna, sem stóð til árins 1988 og kostaði allt að
600 þúsund manns lífið.
Ríkin höfðu lengi eldað grátt silfur vegna deilna um landsvæði.
Deilan hafði stigmagnast þar sem Íranar höfðu skömmu áður gert
sprengjuárásir á landamærastöðvar Íraka.
Saddam Hussein Íraksforseti hafði augastað á Kúsestan-héraði
þar sem eru auðugar olíulindir og vildi sölsa þær undir sig. Annað
veigamikið atriði er að Saddam óttaðist að klerkastjórn Ajatolla
Komeinis, sem tók völdin í byltingu árið áður, hygðist æsa upp
íraska sjía, sem eru í meirihluta þar í landi, til uppreisnar.
Írakar hófu innrásina með loftárásum í þeim tilgangi að lama
flugher Írans, en það gekk ekki eftir. Daginn eftir hélt landherinn
inn í Kúsestan en mætti harðri mótspyrnu. Innrásin var stöðvuð
um það bil 100 kílómetra inni í Íran og lengra náðu Írakar ekki.
Íranski herinn hrakti innrásarliðið smátt og smátt aftur, þar til
árið 1982 þegar Írakar yfirgáfu hernumdu svæðin og sóttust eftir
því að semja frið.
Komeini var alls ekki á því, enda hafði hann persónulegan ímu-
gust á Saddam, og stríðsátök héldu áfram. Víglínan festist í skorð-
um rétt innan við landamærin í Írak og fóru átökin almennt þannig
fram að Íranar sendu hóp hermanna yfir víglínuna, en þeim var
svo stökkt á flótta af hinum vel tækjum búna íraska her.
Írak naut stuðnings Sádi-Arabíu, Kúveit og annarra arabaríkja,
auk þess sem Bandaríkin og Sovétríkin studdu Saddam á bak við
tjöldin. Íranar nutu hins vegar aðeins stuðnings Sýrlands og Líbíu.
Stuðningurinn við Írak fór hins vegar þverrandi þegar upp
komst að Írakar höfðu beitt efnavopnum gegn Íran og líka íröskum
Kúrdum, sem Saddam taldi halla undir Íran.
Í einni slíkri árás, árið 1988, féllu allt að fimm þúsund manns, en
á milli 50 og 100 þúsund Kúrdar voru drepnir í stríðinu.
Ríkin gerðu vopnahlé árið 1988 og stríðinu lauk formlega í ágúst
1990.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar í Persaflóa, en fanga-
skiptum ríkjanna lauk ekki fyrr en árið 2003. Samskipti ríkjanna í
dag eru almennt góð. - þj
Heimild: Britannica
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1980
Írak gerir innrás í Íran
Hersveitir Saddams Hussein réðust inn í Íran eftir mánaðalangar deilur um
landamærasvæði. Stríðið stóð í átta ár og kostaði hundruð þúsunda lífið.
RÉÐST INN Í ÍRAN
Hersveitir Saddams
Hussein réðust inn í
Íran á þessum degi
árið 1980. Stríðinu
lauk átta árum síðar
og þá lágu allt að
600.000 manns í
valnum.
- Ekkert um okkur án okkar
„Ég hef verið í fjölbreyttum störfum í gegnum tíðina,
starfað t.d. á sjó og við sorphirðu en ákvað svo að
verða blikksmiður og var byrjaður í námi. Þá fékk
ég brjósklos og eftir aðgerð sem mistókst er ég í
hjólastól. Það ætlar sér auðvitað enginn að verða
öryrki en þegar það gerist þá vill maður ekki vera
álitinn annars flokks.“
Hilmar Guðmundsson
Langflestir sem verða öryrkjar hafa unnið í áratugi
og óska þess að geta tekið virkan þátt í samfélag-
inu. Örorka er ekki val eða lífsstíll.
Ég borgaði skatta í
37 ár og borga enn
Ég valdi ekki að verða öryrki
www.obi.is