Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 78

Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 78
22. september 2012 LAUGARDAGUR38 timamot@frettabladid.is RAGNAR BJARNASON söngvari „Þögnin er svo dýrmæt fyrir þá sem hafa það að starfi að rjúfa hana.“ 78 „Síminn hefur þagað í dag enda er þetta fyrsti dagurinn sem hann er virkur en í næstu viku býst ég við að hann taki við sér. Þetta er alveg ný þjónusta sem hefur ekki verið í boði áður,“ segir Anna Berg Samúelsdótt- ir um símatímann sem Dýraverndar- samband Íslands hefur tekið upp. Hún hefur verið ráðin í 40% starf fram að áramótum hjá sambandinu en fram til þessa hefur það reitt sig á sjálfboða- liða og öll störf félagsins verið unnin af þeim. „Áherslurnar eru ekkert að breyt- ast heldur verður Dýraverndarsam- bandið sýnilegra en áður og virkara í að sinna velferð bæði búfjár og gælu- dýra,“ segir Anna Berg sem er mennt- aður búfræðingur frá Bændaskólanum á Hólum, bútæknifræðingur frá Dalum Tekniskeskole, bachelor í náttúrufræð- um frá Landbúnaðarháskóla Íslands og mastersnemi við Háskóla Íslands þar sem verkefni hennar snýst um grein- ingu á hugtakinu velferð búfjár. Dýraverndarsamband Íslands bygg- ir afkomu sína á árgjöldum félaga og frjálsum framlögum einstaklinga og fyrirtækja. Það heldur úti síðunni www.dyravernd.is og síminn hjá því er 770 6070. Símatímar eru þriðju- og fimmtudaga frá 16 til 18 og miðviku- daga frá 10 til 12. Að sögn Önnu Berg er öllum frjálst að hringja til spjalls og ráðagerða en einkum eru símatímarnir ætlaðir þeim sem hafa ábendingar um illa meðferð á dýrum. „Ef fólk hefur séð hesta í uppnöguðum hólfum eða litlar kisur vannærðar og illa hirtar einhvers staðar,“ tekur hún sem dæmi. Hvað gerir hún þá? Drífur hún sig á staðinn? „Nei, við erum ekki lögga. Héraðsdýralæknarnir eru eftirlitsað- ilar og hafa umsjón með því að dýra- velferðar sé gætt. Ef við fáum ábend- ingu um óviðunandi aðbúnað dýra höfum við samband við þann dýra- lækni sem við á og rannsökum hvort tilfellið sé raunverulegt og þá hvort verið sé að vinna í málinu. Umhverf- isstofnun fer með velferð gæludýra og Matvælastofnun með velferð búfjár samkvæmt lögum. Þó margir dýra- læknar og annað vel menntað fólk sé innan Dýraverndarsambands Íslands hefur sambandið ekki leyfi til að senda fólk á staðinn. En við verðum með auk- inn þrýsting og eftirfylgni,“ lofar Anna Berg. Hún segir vitað að mörg mál hafi verið látin dankast. „Stundum dregst það alltof lengi að skepnur séu teknar af fólki eða fundnar einhverjar lausn- ir,“ segir hún. gun@frettabladid.is ANNA BERG: FYRSTI STARFSMAÐUR DÝRAVERNDARSAMBANDS ÍSLANDS VAKIR YFIR VELFERÐ DÝRANNA HUNDURINN FRAKKUR Í GÓÐUM HÖNDUM „Áherslurnar eru ekkert að breytast heldur verður Dýraverndarsambandið sýnilegra en áður og virkara í að sinna velferð bæði búfjár og gæludýra,“ segir Anna Berg. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Sundkonan Sigrún Huld Hrafnsdótt- ir hreppti flest verðlaun allra kepp- enda á Ólympíuleikum þroskaheftra sem haldnir voru í Madrid á Spáni og lauk þennan dag fyrir tuttugu árum. Hún hlaut níu gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun. Auk þess setti hún fjögur heimsmet í einstaklings- greinum og var í boðsundssveitinni sem setti fjögur heimsmet. Þetta var einstætt afrek í íþróttasögunni. Um 2.500 þátttakendur frá 72 þjóð- um voru á þessum fyrstu Ólympíu- leikum þroskaheftra. Íslendingar voru þar sigursælir og hlutu tutt- ugu og ein verðlaun, tíu gull, sex silfur og fimm brons. Þeir urðu í öðru sæti í sundi á eftir Áströlum og fengu hlýjar móttökur þegar þeir komu heim. ÞETTA GERÐIST: 22. SEPTEMBER 1992 Sigrún Hrafnsdóttir fékk níu gull 60 ára afmæli Reynir Carl Þorleifsson Reynir Carl Þorleifsson er fæddur 25. september 1952 í Vestmannaeyjum. Gekk hann þar í barna- og gagnfræði- skóla og síðar í iðnskóla en árið 1969 hóf hann nám í bakaraiðn hjá Sigmundi Andréssyni bakarameistara í Magnúsarbakarí þar í bæ. Árið 1973, í gosinu mikla, fluttist hann til Reykjavíkur og kláraði námið í Snorrabakarí. Eftir iðnnámið hefur hann ætíð starfað við bakaraiðnina, á tímabili sem sölumaður og bakari hjá Efnagerð Lauganess og einnig til margra ára bakari í Bernhöftsbakaríi. Þá hefur hann gegnt störfum til margra ára hjá Landssambandi bakara meistara, þ.m.t. formennsku sambandsins. Árið 1976 kvæntist Reynir Jenný Þóru Eyland og eru börn þeirra fjögur og barnabörnin sex. 1994 opnuðu þau hjónin bakaríið að Dalvegi 4 Kópavogi sem þau reka saman í dag ásamt börnum sínum en fjölskyldan hefur í samvinnu komið að þeim rekstri frá upphafi. Í tilefni tímamótanna býður Reynir vinum og vandamönnum að gleðjast með sér föstu- dagskvöldið 28. september milli kl. 20 og 23 að skemmtistaðnum Spot, Bæjarlind 6, Kópavogi. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, FANNEY ELÍN ÁSGEIRSDÓTTIR Kóngsbakka 14, 109 Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnu- daginn 16. september. Útför hennar fer fram fimmtudaginn 27. september kl. 13.00 frá Fossvogskirkju. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð Landspítalans Von 0513-26-3147 kt. 490807-1010. Orri Ragnar Árnason Amin Helgi Pétur Ágúst Ólafur Kristjana Ragnheiður Steinunn Ingibjörg Rakel Ósk Sigurður Árni Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORGERÐUR JÖRUNDSDÓTTIR áður til heimilis að Bakkavör 9, Seltjarnarnesi, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir miðviku- daginn 19. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. október kl. 15. Anna María Hilmarsdóttir Þorsteinn Hilmarsson Guðrún Sóley Guðjónsdóttir Þorgerður Jörundsdóttir Þorsteinn Jörundsson Þuríður Elfa Jónsdóttir Jörundur Jörundsson Jóhanna Símonardóttir Steinunn Guðmundardóttir Hilmar Þorsteinsson Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem heiðruðu minningu elskulegrar eiginkonu minnar, dóttur, móður, tengdamóður, systur og ömmu, BIRNU INGIBJARGAR TOBÍASDÓTTUR Rimasíðu 29g, Akureyri, með nærveru ykkar, heimsóknum og hlýhug. Sérstakar þakkir sendum við Heimahlynningu á Akureyri og starfsfólki á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri fyrir einstaka umönnun. Gísli Karl Sigurðsson Guðrún Ingibjörg Björnsdóttir Guðrún Gísladóttir Ottó Magnússon Hulda Gísladóttir Sigþrúður Tobíasdóttir Sigurlaug Anna Tobíasdóttir Gísli, Guðrún Birna, Ágústa, Svana, Páll og Teitur Okkar ástkæra, AGNES EIRÍKSDÓTTIR Garðabraut 8, Akranesi, lést 18. september. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 25. september kl. 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahús Akraness. Jón Jóns Eiríksson Rut Hallgrímsdóttir Sigrún Eiríksdóttir Kolbrún Eiríksdóttir Sigurjón Guðmundsson og fjölskyldur þeirra. Innilegar þakkir til allra fyrir samúð, hlýju og kveðjur við andlát og útför GUÐMUNDAR PÁLS ÓLAFSSONAR Ingunn K. Jakobsdóttir Blær Guðmundsdóttir Finni Jóhannsson Ingibjörg Snædal Guðmundsdóttir Ragnar B. Jóhannsson Halla Brynhildur Guðmundsdóttir Mads Thygesen Rökkvi Steinn, Salka og Þórkatla
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.