Fréttablaðið - 22.09.2012, Page 80

Fréttablaðið - 22.09.2012, Page 80
22. september 2012 LAUGARDAGUR40 Fossvogsskóli fékk í gær Hjólaskálina, viðurkenningu fyrir eflingu hjólreiða. Það var Jón Gnarr borgarstjóri sem afhenti Óskari S. Einarssyni skólastjóra og fulltrúum nemenda og kennara viðurkenninguna við upphaf ráð- stefnu um hjólreiðar. „Nemendur eru hvattir til þess að koma í skólann árið um kring á reiðhjóli og síðustu þrjú ár hefur verið haldin sérstök hjólavika þar sem nemendur eru meðal annars hvattir til að fara í hjólaferðir í frímínútum,“ segir á vef borgarinnar um reiðhjólamenninguna í Fossvogsskóla. - gar Minn ástkæri eiginmaður og stjúpfaðir okkar, VALGEIR G. VILHJÁLMSSON kennari, Árskógum 8, Reykjavík, lést 20. september á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 28. september kl. 15. Anna D. Magnúsdóttir og börn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SESSELJA SVANA EGGERTSDÓTTIR GUÐMUNDSSON lést 19. september sl. í Louisville í Kentucky í Bandaríkjunum. Bálförin fer fram í Louisville þriðjudaginn 25. september. Örn Eggert Guðmundsson Susan Varga Guðmundsson Jórunn Hilda Guðmundsson Davis Jón Sigurður Guðmundsson Susan Sweeney Guðmundsson barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÞRÁINS KRISTINSSONAR fyrrverandi skipstjóra, Fagrahjalla 3, Kópavogi. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks gjörgæsludeildar LSH. Björg Helgadóttir Þorbjörg Þráinsdóttir Magnús Ásgeirsson Geir Þráinsson Kristín Sigurðardóttir Halldór Þráinsson Steinunn Þ. Júlíusdóttir barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna. Ástkær eiginkona mín, móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN PÁLSDÓTTIR (CHRISTEL) Drafnarstíg 2a, Reykjavík, lést að Droplaugarstöðum aðfaranótt 13. september. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Kristinsson Helga Gabriella Guðmundsdóttir Þórir Ólafsson Harpa Bryndís Brynjarsdóttir Sigurjón Guðmundsson Guðmundur Þórir Þórisson Kolbrún Sigurðardóttir Kristel Björk Þórisdóttir Hörður Kr. Hálfdánarson Anton, Andri, Aldís, Bryndís, Lilja og Guðmundur Ísar. Þökkum þeim fjölmörgu sem hafa látið í ljós samúð vegna andláts GUÐRÚNAR BJARNADÓTTUR Grundarási 12, Reykjavík, og sýnt minningu hennar hlýju og virðingu. Hörður Gíslason Helga Harðardóttir Haraldur Skarphéðinsson Gunnar Harðarson Emil Dagsson Álfrún Haraldsdóttir Ásta Árnadóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FANNEY HJARTARDÓTTIR lést á Dvalarheimilinu Víðihlíð í Grindavík 17. september. Jarðsungið verður frá Ytri- Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 25. september kl. 13.00. Bjarnfríður Jónsdóttir Pétur Vilbergsson Karl Taylor Ása Skúladóttir Eðvarð Taylor Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar dóttur okkar, systur, mágkonu og frænku, ELÍNAR REYNISDÓTTUR sambýlinu Mururima 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við fyrrverandi og núverandi starfsfólki Mururima 4, Bjarkaráss og Perlufestarinnar. Einnig læknum, hjúkrunarfólki LSH og öðrum þeim er sinntu Elínu í veikindum hennar. Njótið Guðs blessunar í störfum ykkar. María Ólafson og Reynir Kjartansson. Þuríður og fjölskylda. Viðar og fjölskylda. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, NANNA SIGFÚSDÓTTIR Höfðabraut 5, Akranesi, lést 18. september. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 27. september kl. 14.00. Sigurður Guðmundsson Magnús Sigurðsson Ómar Sigurðsson Jórunn Friðriksdóttir Elínborg Sigurðardóttir Ásgeir Gunnarsson Hugrún Sigurðardóttir Eyjólfur M. Eyjólfsson Sigurgeir Sigurðsson Herdís Jónsdóttir Marteinn Sigurðsson og ömmubörn. Kær tengdafaðir minn, SIGURÐUR EINARSSON frá Tjörnum undir Eyjafjöllum, lengst af búsettur á Nýja-Sjálandi, er látinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun í veikindum hans fær starfsfólk 11G á Landspítalanum svo og starfsfólk á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Fyrir hönd aðstandenda, María Sif Sveinsdóttir Íslandsdeild Evrópusambands sjó- stangaveiðimanna – EFSA (European Federation of Sea Anglers) – stendur fyrir Evrópumeistaramóti í strand- stangveiðum í Eyjafirði 24. til 29. sept- ember. Þetta er fyrsta mót sinnar teg- undar sem haldið er í landinu. Sextíu og sex veiðimenn frá átta Evr- ópulöndum taka þátt í mótinu. Löndin eru: Gíbraltar, Holland, Þýskaland, England, Skotland, Wales, Írland og Ísland. Mótið tekur þrjá daga og veitt er á ýmsum stöðum við Eyjafjörð. Á fyrsta degi mótsins þriðjudaginn 25. septem- ber verður til dæmis veitt meðfram Drottningarbrautinni á Akureyri allt frá Höfner að Torfunefsbryggju. Keppt er í karla- og kvennaflokki, unglingaflokki og flokki eldri veiði- manna, í tveggja manna og fjögurra manna sveitum auk þess að þjóðirnar tefla fram landsliði sínu. Ísland send- ir tvö fimm manna landslið, A- og B- landslið, skipuð konum og körlum. Keppnin felst í að veiða sem flesta fiska yfir ákveðinni lágmarkstærð og sá vinnur mótið sem flest stig fær fyrir fiskafjölda og samanlagða lengd fiska. Strandstangveiðar eru fámenn en sífellt vaxandi íþrótt á Íslandi en stendur á gömlum merg í flestum öðrum Evrópulöndum. Vonast Íslands- deild EFSA til að mótið efli þessa grein stangveiðiíþróttarinnar á Íslandi. Evrópumót í strandstangveiði Merkisatburðir 1930 Ferðafélag Íslands tekur fyrsta sæluhús sitt í notkun í Hvítárnesi við Langjökul. 1957 Árbæjarsafn er opnað almenningi. 1960 Frakkar viðurkenna sjálfstæði Malí. 1964 Söngleikurinn Fiðlar- inn á þakinu er frumsýndur á Broadway. 1973 Menntaskólinn í Kópavogi er settur í fyrsta skipti. 1980 Írak ræðst á Íran og hefur þar með átta ára stríð. 2006 Fréttastöðin NFS hættir útsendingum. Nýtt hefti Múla- þings er komið út. Í því er meðal annars fjallað um brúar- gerð Sigurðar Jóns- sonar, íslenska Bing & Gröndahl-platt- ann og mb. Sæborgu sem hvarf í seinni heimsstyrjöldinni með átta mönn- um innanborðs. Einnig er fjallað um glímumanninn séra Stefán Péturs- son á Desjarmýri, gönguferð í Víði- dal 1981 og flug- slysið á Valahjalla við Reyðarfjörð árið 1941 þegar þýsk herflugvél fórst. Þá eru og greinar um menningar- arf Vopnfirðinga og líðan og framtíðarsýn ungmenna á Austurlandi. Höfundar efnis eru tólf talsins og ritstjórar eru Jóhann G. Gunnarsson, joigutt@simnet.is, og Rann- veig Þórhallsdóttir, sagnabrunnur@simnet.is. -gun Austfirsk saga STRANDSTANGVEIÐI Frá Íslandsmeistaramótinu í strandveiði. Hjólaskálin til Fossvogsskóla HJÓLASKÁLIN AFHENT Mikil áhersla er á hjólreiðar í Fossvogsskóla.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.