Fréttablaðið - 22.09.2012, Page 84
22. september 2012 LAUGARDAGUR44
1. Hvað finnst þér skemmti-
legast að baka? Afmælisköku
fyrir Hérastubb, hann verður svo
glaður.
2. Bakar þú einhvern tíma
vandræði? Ekki viljandi, en ég
er stundum svolítið óheppinn.
3. Ef þú værir ekki bakara-
drengur hvað myndir þú vilja
gera? Söngvaradrengur eða leik-
aradrengur.
4. Hver er besti vinur þinn?
Paddi broddgöltur, en hann er
stundum svolítið erfiður, held það
sé af því hann hefur aldrei verið
faðmaður, það er ekki hægt því
hann er með svo marga brodda.
5. Hvernig myndir þú lýsa
Mikka ref? Hann hefur tekið
miklum stakkaskiptum og er orð-
inn hugrakkur og hjálpfús.
6. Hefurðu platað marga eins
og þú gabbaðir Mikka ref? Ég
faldi mig einu sinni fyrir Héra-
stubbi en ég sofnaði og vaknaði
ekki fyrr en um kvöldið þegar
hann hafði lokað og læst bak-
aríinu og ég var læstur inni.
7. Hver er uppáhaldsmatur-
inn þinn? Upphaldið mitt eru
hunangskökur, piparkökur, kanil-
snúðar, kleinuhringir, kleinur,
kremkökur, randalínur, ástar-
pungar, berlínarbollur og rófur.
8. Hvað er vinsælasta bakkels-
ið og brauðmeti hjá Dýrunum í
Hálsaskógi? Hunangskökur selj-
ast best þessa dagana.
9. Þurfið þið bakarameistar-
inn að baka á nóttunni eins og
bakarar hér? Þegar mikið stend-
ur til þá gerum við það og höld-
um okkur vakandi með söng og
bröndurum.
10. Hver er uppáhaldsárstíðin
þín í Hálsaskógi. Vetur, því þá
fær maður að sofa alla daga.
11. Ertu nokkuð hræddur við að
pipra? Já mjög, stundum dreymir
mig chili og ég vakna í svitabaði.
krakkar@frettabladid.is
44
Upphaldið mitt
eru hunangs-
kökur, piparkökur,
kanilsnúðar, kleinu-
hringir, kleinur, krem-
kökur, randalínur,
ástarpungar, berlínar-
bollur og rófur.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Nafn og aldur: Ragnhildur
Rúnarsdóttir, ellefu ára.
Í hvaða skóla ertu: Árbæjar-
skóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu:
Meyjunni.
Áttu happatölu? Já 6 og 13.
Helstu áhugamál? Söng-
ur, handbolti og að vera með
vinum.
Eftirlætissjónvarpsþáttur:
The Biggest Loser og fullt af
öðrum.
Besti matur? Soðin ýsa.
Eftirlætisdrykkur? Ananas-
djús.
Hvaða námsgrein er í upp-
áhaldi? Tónmennt og íþróttir.
Áttu gæludýr? Já, tíkina
Skottu.
Skemmtilegasti dagurinn og
af hverju? Föstudagur, af því
þá er að koma helgi og svo er
handboltaæfing.
Eftirlætistónlistarmaður eða
hljómsveit? Svo margir.
Uppáhaldslitur? Blár.
Hvað gerðirðu í sumar? Fór til
Spánar og í útilegur.
Skemmtilegasta bók sem þú
hefur lesið? Hunger Games og
Harry Potter.
Hvað langar þig að verða
þegar þú ert orðin stór?
Söngkona.
Langar að verða söngkona
Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
HOLLAR UPPSKRIFTIR Eldað með Ebbu í Latabæ
er ný matreiðlsubók fyrir alla fjölskylduna. Þar eru
meðal annars 18 tillögur að himneskum hafragraut.
100
HRÆDDUR VIÐ AÐ PIPRA
Bakaradrengnum í Hálsaskógi þykir skemmtilegast að baka afmælisköku fyrir
Hérastubb bakara og hann hefur gabbað fleiri en Mikka ref eins og krakkasíðan
komst að þegar hún lagði fyrir hann nokkrar spurningar.
BAKARADRENGURINN Í HÁLSASKÓGI Bakar ekki oft vandræði en er samt svolítið óheppinn að eigin sögn.
Teikningar og texti Bragi Halldórsson
10
„Þið getið nú glímt við
þessa sudoku þraut,“ sagði
Róbert rogginn. „Ég er svo
klár í þeim að þið mynduð
ekki vera byrjuð þegar
ég væri búinn,“ bætti
hann við. Kata dæsti, hún
var að verða búin að fá
Róberts og grunaði hann
um að láta svona bara af
því að hann kynni þetta
ekki. En hvað með það.
„Takk fyrir það Róbert
minn,“ sagði Lísaloppa.
„Við Konráð og Kata
leysum hana þá bara.“
Getur þú hjálpað þeim að
leysa þess sudoku þraut?
9 1 2 8 7
4 7 6 8 2 9
4 5
5 6 2 7 9 1
9 7 8 5 6
1 8 4 5 3
7 3 2 8 5 4
8 9 4 1 3
1 2 8 5 6 7 9
Steini: Þekkirðu mann úr
Hafnarfirði með gervifót sem
heitir Egill?
Kalli: Manstu hvað hinn fót-
urinn heitir?
Kennarinn var að innrita
ungan mann inn í háskóla.
Hann tók niður nafn og fleira
og sagði svo: „Þetta verð-
ur allt í lagi en þú verður að
velja þér einhverja grein.“
Ungi maðurinn (með áhyggju-
svip): „Má ég ekki sitja í stól
eins og aðrir?“
Gulla: Er það satt mamma
að mennirnir séu komnir af
öpum?
Mamma: Svo er sagt, Gulla
mín.
Gulla: Hver ætli hafi fattað
það fyrst að hann væri api?