Fréttablaðið - 22.09.2012, Qupperneq 86
22. september 2012 LAUGARDAGUR46
BAKÞANKAR
Tinnu Rósar
Steinsdóttur
Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali.
Suðurgata 7, 101 Reykjavík - www.hibyli.is - hibyli@hibyli.is - Sími: 585 8800 - Fax: 585 8808
OPIÐ HÚS
LANGHOLTSVEGUR 12 - OPIÐ HÚS
Mjög gott 227 fM, tvílyft einbýlishús sem í
dag eru tvær samþykktar íbúðir. Á efri hæð
er íbúð með sérinngangi, þar eru stórar
samliggjandi stofur, svefnherbergi, eldhús með útgangi út á hellulagða verönd
og flísalagt baðherbergi. Geymsluloft yfir íbúð. Í kjallara er 2ja herb. íbúð, þ.e.
stór stofa, svefnherbergi, eldhús með nýrri innrétt-ingu og flísalagt baðherbergi,
full lofthæð í kjallara. Stór bílskúr fylgir. Lóð er falleg og gróin. Húsið er laust til
afhendingar. VERÐ 44,5 MILLJ.
HÚSIÐ ER TIL SÝNIS Í DAG, LAUGARDAG MILLI KL. 13 OG 14 OG Á MORGUN,
SUNNUDAG MILLI KL. 16-17.
23. september.
BOLTAVAKTIN
Staða og úrslit leikja í beinni
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. útdeildu, 6. hvort, 8. beiskur, 9.
móðurlíf, 11. íþróttafélag, 12. drós,
14. smáu, 16. grískur bókstafur, 17.
ætt, 18. keyra, 20. í röð, 21. tikka.
LÓÐRÉTT
1. trúi, 3. hæð, 4. pensillín, 5. dýra-
hljóð, 7. geysistórt, 10. töffari, 13.
stykki, 15. ungur fugl, 16. fálm, 19.
frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. ef, 8. súr, 9. leg,
11. kr, 12. dræsa, 14. litlu, 16. pí, 17.
kyn, 18. aka, 20. fg, 21. tifa.
LÓÐRÉTT: 1. held, 3. ás, 4. fúkalyf, 5.
urr, 7. ferlíki, 10. gæi, 13. stk, 15. ungi,
16. pat, 19. af.
Sæl, Gulla Jóna!
Í hverju ætlar þú
í kvöld?
Ekki hug-
mynd! Ég á
EKKERT til
að fara í!
Láttu mig þekkja
það Gulla Jóna!
Ég er að glíma við
sama vandamál!
Hvað
nú?
Gelgjuskeiðið og
breytingaskeiðið
eiga ekki
vel saman.
Takk fyrir
komuna,
en ég held að
þú yrðir ekki
hamingjusamur
starfsmaður hér.
Speglar
ehf.
Mér leiðist. Nennirðu að stöðva
framgang lífs þíns til að bjarga því?
„Vissir þú að stór hluti fólks á elliheim-ilum fær aldrei neinn í heimsókn
til sín,“ sagði afi minn við mig í barnaaf-
mæli í sumar. „Já, hugsaðu þér,“ svaraði ég
hneyksluð á meðan ég hrósaði sjálfri mér í
huganum fyrir að vera betri afkomandi en
það.
FLJÓTLEGA byrjaði ég þó að efast. Ég
reyndi að rifja upp hvenær ég hafði síðast
droppað í heimsókn til ömmu og afa að
ástæðulausu en gat ómögulega munað hve-
nær það var, svo langt var síðan. Hugurinn
hélt áfram að reika og mér leið eins og ég
væri stödd í bíómynd þar sem samræður
sem ég hafði átt við fólk helltust yfir mig
(með viðeigandi dramatískri tónlist í for-
grunni).
ÉG mundi eftir samtali sem ég hafði átt
við vinkonu mína stuttu áður þar sem
hún hafði enn einu sinni rætt það við mig
hvernig ég hefði aldrei tíma til að gera
neitt og léti aldrei í mér heyra. Álíka
samtal hafði ég átt við systur mína
og í kjölfarið hélt snjóbolti minn-
inganna áfram að bæta við sig
fleiri samtölum. Öllum hafði ég
svarað á sama hátt: „Þú veist
alveg hvað þú skiptir mig
miklu máli. Ég er bara svo
rosalega upptekin.“
EFTIR þetta samtal við afa
minn ákvað ég að nú skyldi ég
taka mig á. Viku síðar fór ég í heimsókn til
ömmu og afa. Þar sat ég í dágóða stund og
borðaði heimatilbúna rækjusalatið þeirra
(uppáhalds!) og spjallaði við þau í rólegheit-
unum á meðan amma stoppaði í sokkabux-
urnar mínar af mikilli list. Hún hafði tekið
eftir tánni sem stakkst út. Næst keyrði
ég til mömmu og pabba. Bæði fylltust þau
undrun yfir því að ég væri mætt á þrösk-
uldinn og biðu líklega alla heimsóknina
eftir að heyra ástæðuna að baki henni. Hún
var engin, nema þá að eiga dásemdarkvöld
umvafin þeim sem ég elska – og svo sannar-
lega átti ég það.
ÉG á ótrúlega mikið af frábæru fólki allt
í kringum mig en alltof oft tek ég því sem
sjálfsögðum hlut. Það er nauðsynlegt að
rækta sambandið við fólkið sitt – og það er
bæði skemmtilegt og gefandi í leiðinni.
„ÞAÐ liggur enginn banaleguna og óskar
þess að hafa eytt meiri hluta ævi sinnar í
vinnunni,“ var önnur gullin setning sem
afi minn vitur lét falla í ofangreindu sam-
tali okkar. Margir meta verðleika sína eftir
því hversu duglegir þeir eru að gefa af sér
í vinnu eða í sjálfboðastörf. Ég þekki þá til-
finningu vel. En eru það þeir staðir sem á
að gefa hvað mest í? Þegar ég dey, vil ég að
í minningargreinunum standi: „Tinna Rós
Steinsdóttir, afburðastarfskraftur og dugn-
aðarforkur“ eða „Tinna Rós Steinsdóttir,
yndisleg manneskja og vinur“?
Ég held ég velji það seinna.
Ég er bara svo upptekin
Ferilskrá