Fréttablaðið - 13.10.2012, Blaðsíða 2
13. október 2012 LAUGARDAGUR2
ÍÞRÓTTIR Þrátt fyrir grófar alhæf-
ingar um Albani sem glæpaþjóð hélt
Aron Einar Gunnarsson, fyrir liði
íslenska knattspyrnu landsliðsins,
sæti sínu í byrjunarliðinu þegar
Íslendingar léku við Albani ytra í
gær.
Ummælin umdeildu lét landsliðs-
fyrirliðinn falla í aðdraganda leiks-
ins. „Það er mikil fátækt í þessu
landi og þetta eru mestmegnis
glæpamenn,“ sagði Aron meðal
annars um gestgjafaþjóðina í viðtali
við knattspyrnuvefinn Fotbolti.net.
Bætti hann við að albanska þjóðin
væri „ekki upp á marga fiska“.
Ummæli Arons stangast aug-
ljóslega á við siðareglur Knatt-
spyrnusambands Íslands sem
tóku gildi í ársbyrjun 2010:
„Fulltrúar mega ekki misbjóða
virðingu einstaklinga, eða hópi
einstaklinga með orðum eða
athæfi sem bera í sér fyrir-
litningu, manngreinarálit eða
mannorðsspjöll hvað varðar
kynferði, þjóðerni, kynþátt,
litar haft, menningu, tungumál,
trúarbrögð eða kynhneigð,“
segir í 5. grein siðareglna KSÍ.
Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, sagði fyrir leikinn að ekki
kæmi til greina að draga Aron
út úr liðinu þar sem búið væri að
stilla því upp fyrir leikinn. Hann
var þó alls ekki ánægður. „Það er
enginn ánægður með þessa stöðu
sem upp er komin. Það er nánast
eins og liðið hafi gert sjálfsmark
áður en leikurinn byrjaði,“ sagði
Geir, sem kvaðst hafa beðið
forseta albanska knattspyrnu-
sambandsins og einn albanskan
þingmann að auki afsökunar.
Sjálfur baðst Aron afsökunar
í yfirlýsingu fyrir leikinn. „Vil
ég hér með biðjast auðmjúklega
afsökunar á þessum ummælum,
sem eru ekki fyrirliða íslenska
landsliðsins sæmandi,“ sagði
hann. „Aron hefur beðist afsök-
unar en þessu máli er ekki lokið,“
voru viðbrögð formanns KSÍ.
„Við höfum ekki rætt um
hvort að hann eigi að stíga
til hliðar sem fyrir liði,“ sagði
Lars Lagerbäck landsliðsþjálf-
ari. „En vonandi verður þetta til
þess að Aron hafi lært af sínum
mistökum og muni haga sér óað-
finnanlega í framtíðinni.“
- gar, esá / sjá síðu 68
Elliði, er þetta ekki óttalegt
jarm í þeim?
„Nei, við hljótum að vísa þessu
kindarlega máli til fjármálaráðherra.“
Um fjörutíu lambshræ fundust í Elliðaey
við Vestmannaeyjar í sumar. Veiðimenn
vilja þau burt og bæjaryfirvöld vilja
skýringar frá fjáreigandanum. Elliði Vignis-
son er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
KOSNINGAR 236.944 kjósendur
eru á kjörskrá fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðsluna vegna til-
lagna stjórnlagaráðs hinn 20.
október. Þetta kemur fram á vef
Þjóðskrár Íslands.
Við alþingis kosningarnar 25.
apríl 2009 voru 227.843 kjósend-
ur á kjörskrá og nemur fjölgun-
in 9.048, eða fjórum prósentum.
16.433 nýir kjósendur hafa náð
kosningaaldri frá 2009 og eru það
um sjö prósent af kjósendum.
Kjósendur með lögheimili
erlendis eru 12.964 eða 5,5 pró-
sent af kjósendum. Þeim hefur
fjölgað rúm þrjú
þúsund frá
síðustu alþing-
iskosningum
eða um rúm
þrjátíu pró-
sent. - þj
Þjóðskrá Íslands:
Fjölgun á kjör-
skrá frá 2009
KJÖRKASSI
236.433 eru á kjör-
skrá fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðsluna
20. október.
Þverbraut siðareglur
en lék þó við Albani
Fyrirliði íslenska landsliðsins braut siðareglur Knattspyrnusambands Íslands
gróflega með ummælum um Albani en lék þó í leik liðanna í gær eftir að hafa
beðist „auðmjúklega afsökunar“. Málinu er samt ekki lokið segir formaður KSÍ.
ARON EINAR GUNNARSSON Fyrirliðinn
missteig sig hrapallega í viðtali fyrir
landsleikinn við Albani í gær en segist
munu læra af reynslunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég, Aron Einar Gunnarsson, vil
koma eftirfarandi á framfæri.
Mér urðu á mikil mistök í viðtali
við Fótbolta.net þar sem ég lét
hafa eftir mér afar óviðeigandi
og ósönn ummæli í eintómum
kjánaskap. Ég hef enga afsökun og
sé mjög eftir þessu.
Albanía og albanska þjóðin eru
rík af sögu og menningu og fyrir
því á að bera virðingu. Vil ég hér
með biðjast auðmjúklega afsökun-
ar á þessum ummælum, sem eru
ekki fyrirliða íslenska landsliðsins
sæmandi.
Ég mun læra af þessari reynslu
og gera betur í framtíðinni, fyrir
Ísland og íslenska knattspyrnu.
Með vinsemd og virðingu,
Aron Einar Gunnarsson“
Eintómur kjánaskapur
NOREGUR Sjö af hverjum tíu Norð-
mönnum eru mótfallnir því að
veiðar á úlfum verði gefnar
frjálsar, tæpur fjórðungur er
fylgjandi.
Villti úlfastofninn í Noregi er
aðeins um þrjátíu dýr, og þegar
eru sjö dýr felld árlega sam-
kvæmt sérstöku leyfi. Eftir að
nokkur svæðisráð gáfu út leyfi
til að veiða tólf dýr í viðbót tóku
yfirvöld í taumana og bönnuðu
veiðarnar. Náttúruverndarsam-
tök telja óverjandi að auka veiðar
úr ekki stærri stofni. - þj
Skoðanakönnun í Noregi:
Fjórðungur vill
óhefta úlfaveiði
ÚLFUR, ÚLFUR Í Norska úlfastofninum
eru nú um þrjátíu dýr.
STJÓRNMÁL Pétur Blöndal þing-
maður hyggst bjóða sig fram í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík fyrir komandi kosningar.
Pétur greindi frá ákvörðun sinni
í tilkynningu í
gær. Þar greindi
hann einnig
frá því að hann
hefði greinst
með blöðruháls-
krabbamein
fyrir þremur
árum síðan sem
hann berðist
enn við. Erfitt
væri að segja til um batahorfur.
Pétur hefur setið á þingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn síðan árið
1995. - þeb
Berst við krabbamein:
Pétur Blöndal
býður sig fram
PÉTUR H. BLÖNDAL
LÖGREGLUMÁL Lögregla leitaði enn
í gærkvöldi tveggja manna vegna
árásar í Bankastræti nóttina
áður, þar sem 28 ára maður var
stunginn með skærum í ennið.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var sá stungni á gangi
niður Bankastrætið þegar tveir
menn stukku út úr bíl og töldu
sig eiga óuppgerðar sakir við
félaga hans. Annar þeirra dró
upp skæri og rykkti þeim aftur
fyrir sig með þeim afleiðingum
að þau höfnuðu í enni mannsins.
Hinn fékk kjaftshögg. Árásar-
mennirnir forðuðu sér í burtu.
Sá sem fékk skærin í ennið slas-
aðist ekki lífshættulega en var á
spítala þar til síðdegis í gær. - sh
Lögregla leitar árásarmanna:
Stunginn með
skærum í ennið
LÖGREGLUMÁL Erlendur ferða maður
fann lík í fjörunni í Keflavík laust
fyrir hádegi í gær. Í gærkvöld hafði
ekki tekist að skera úr um hvern
var að ræða.
Útlendi maðurinn var á göngu í
fjörunni norðan við höfnina þegar
hann kom auga á líkið, sem þá var
í sjónum við klettótta og stórgrýtta
fjöru neðan við gömlu sundhöllina
í Keflavík.
Í tilkynningu sem lögreglu-
stjórinn á Suðurnesjum sendi frá
sér í gær segir að líkið sé af „full-
orðnum, óþekktum karlmanni“.
Allir sem einhverjar upplýsingar
geta gefið um mannaferðir á þessu
svæði frá því í fyrrakvöld eru
beðnir að hafa samband við lög-
regluna á Suðurnesjum. Sérstak-
lega óskar lögreglan eftir því að
hafa tal af ökumanni skellinöðru og
ökumanni bíls, en þessum ökutækj-
um mun hafa verið ekið meðfram
sjónum eftir Ægisgötu milli klukk-
an fimm og hálfsex í fyrrinótt.
Hópur rannsóknarlögreglu-
manna var að störfum langt fram
eftir kvöldi í gær. Til stóð að halda
stöðufund í dag og senda í kjölfarið
út fréttatilkynningu um málið.
- gar, sh
Útlendur ferðamaður fann látinn karlmann í stórgrýttri klettafjöru norðan við höfnina í Keflavík:
Vilja ræða við næturökumenn vegna líkfundar
Á VETTVANGI Lögregla og björgunarlið kom til aðstoðar á líkfundarstaðinn.
MYND/HILMAR BRAGI
SPURNING DAGSINS
AÐEINS Í DAG!
45%
NUDDSESSA
VERÐ ÁÐUR 17.900,- NÚ 9.900,-
Opið í dag, laugardag kl. 11-16.
kíktu inn á www.pfaff.is
Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400
SÝRLAND Rússar segja að flugvél sem Tyrkir stöðv-
uðu á leið sinni frá Rússlandi til Sýrlands hafi
ekki verið að flytja vopn. Löglegur ratsjár búnaður
hafi verið í vélinni. Tyrkir og Sýrlendingar hafa
deilt um það hvað nákvæmlega var í vélinni, en
Tyrkir segja að um einhvers konar varnarbúnað
hafi verið að ræða.
Flugvélin var frá flugfélaginu Syrian Air, en
tyrkneskar herþotur neyddu hana til að lenda í
Ankara á miðvikudag. „Við erum ekki að leyna
neinu,“ sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, í gær. „Það voru auðvitað engin vopn í
vélinni og hefðu ekki getað verið,“ sagði Lavrov.
Stjórnvöld í Sýrlandi þvertóku einnig fyrir að
vopn hefðu verið um borð og skoruðu á tyrknesk
stjórnvöld að sýna búnaðinn.
Þá tóku uppreisnarmenn í Sýrlandi yfir
loftvarnar stöð í nágrenni borgarinnar Aleppo í
gær. Harðir bardagar hafa geisað í Aleppo undan-
farið. Myndbönd sem sett voru á netið í gær sýndu
uppreisnarmenn inni í stöðinni að skoða eld-
flaugar. Talsmaður uppreisnarráðsins í Aleppo
sagði að skömmu eftir að uppreisnarmennirnir
hefðu náð stöðinni á sitt vald hefði stjórnarherinn
hafið loftárásir á hana. Flestar eldflaugarnar og
annar búnaður í stöðinni hefði verið eyðilagður.
- þeb
Tyrkir og Sýrlendingar hafa deilt um farm vélar sem var stöðvuð á miðvikudag:
Rússar neita vopnaflutningum
MÓTMÆLT Stjórnvöldum í Sýrlandi var mótmælt í þorpinu
Sarmada í Idlib-héraði í norðurhluta Sýrlands í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP