Fréttablaðið - 13.10.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 13.10.2012, Blaðsíða 8
13. október 2012 LAUGARDAGUR8 Tilkynning um framlagningu kjörskrár Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu, um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd, sem fram fer þann 20. október 2012, liggur frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar að Þverholti 2, á skrifstofutíma frá kl. 8:00 – 16:00, frá og með 10. október 2012 og til kjördags. Mosfellsbæ 8. október 2012. Bæjarritarinn í Mosfellsbæ Kræsingar & kostakjör KitchenAid netto.is |Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r o g m yn da víx l | V ör uú rv al ge tu r v er ið br ey til eg t m illi ve rsl an a. Tilboð: 1.590 þús. Chevrolet Lacetti Station árgerð 2011 - söluverð: 1.800 þús. BÍL A- LEI GUB ÍLL Í ÁB YRG Ð Bílabúð Benna - Notaðir bílar Opið alla virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 Landsbankans. 25.790 kr. Afborgun á mánuði aðeins: 1.800.000 kr. 210.000 kr. 240.000 kr. 1.590.000 kr. Söluverð: Okkar hlutur: Þín útborgun: Heildarverð til þín: Chevrolet Lacetti Station NOREGUR, AP Norska Nóbelsnefndin ætlar að veita Evrópusambandinu (ESB) friðarverðlaun Nóbels í ár fyrir að hafa tryggt frið í Evrópu í sex áratugi. „Evrópusambandið á nú um stundir í alvarlegum efnahags- legum erfiðleikum með umtals- verðri félagslegri ólgu,“ segir í til- kynningu Nóbelsnefndarinnar: „Norska Nóbelsnefndin vill beina athyglinni að því sem hún telur mikilvægasta árangur Evrópusam- bandsins: Hinni árangursríku bar- áttu fyrir friði og sáttum og fyrir lýðræði og mannréttindum.“ ESB varð til úr umróti eftirstríðs- áranna og hefur, að sögn nefndar- innar, sýnt fram á að gamlir óvin- ir geta orðið nánir samstarfs aðilar með því að byggja smám saman upp gagnkvæmt traust. „Við erum öll mjög stolt af því að hafa fengið þessi Nóbelsverðlaun,“ sagði Her- man van Rompuy, forseti leiðtogar- áðs ESB, og tók fram að með því að segja „við“ ætti hann „ekki aðeins við Evrópuleiðtoga heldur alla evr- ópska ríkisborgara, bæði af þessari kynslóð og fyrri kynslóðum.“ Andstæðingar ESB furðuðu sig á þessari ákvörðun nefndarinnar. „Nóbelsverðlaun fyrir ESB. Þegar stjórnin í Brussel og öll Evrópa er að hrynja í eymd sinni. Hvað næst? Óskarsverðlaun handa Van Rompuy?“ spurði til dæmis hol- lenski þingmaðurinn Geert Wilders, sem barist hefur ákaft gegn ESB. Efnahagserfiðleikar ESB síð- ustu misserin og órói almennings vegna þeirra virðist reyndar hafa átt sinn þátt í því að norska Nóbels- nefndin tók þessa ákvörðun.„Ef evran liðast í sundur trúi ég að innri Evrópusambandið fær friðarverðlaun Norska Nóbelsnefndin verðlaunar ESB fyrir að hafa tryggt frið í Evrópu undan- farna sex áratugi. Ólgan vegna efnahagserfiðleika í sumum aðildarríkjunum á sinn þátt í því að nefndin tók þessa ákvörðun. Van Rompuy segist vera stoltur. JOSE MANUEL BARROSO OG ATLE LEIKVOLL Forseti framkvæmdastjórnar ESB tekur við blómvendi frá sendiherra Noregs í Belgíu. NORDICPHOTOS/AFP 2011 Ellen Johnson Sirleaf, Leymah Gbowee og Tawakkol Karman 2010 Liu Xiaobo, andófsmaður í Kína 2009 Barack H. Obama, Bandaríkjaforseti 2008 Martti Ahtisaari, fyrrverandiw forseti Finnlands 2007 Milliríkjanefnd um loftslagsbreytingar (IPCC) og Al Gore 2006 Muhammad Yunus og Grameen-bankinn í Bangladess 2005 Alþjóðakjarnorkustofnunin (IAEA) og Mohamed ElBaradei 2004 Wangari Maathai, aðgerðasinni í Kenía 2003 Shirin Ebadi, aðgerðasinni í Íran 2002 Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti 2001 Sameinuðu þjóðirnar og Kofi Annan Friðarverðlaunahafar Nóbels síðan 2001 markaðurinn fari einnig að liðast í sundur. Og þá fáum við augljóslega nýja þjóðernisstefnu í Evrópu,“ segir Thorbjørn Jagland, formaður norsku Nóbelsnefndarinnar. „Við erum ekki með skoðun á því hvernig eigi að leysa þessi vanda- mál, en við sendum mjög sterk skila- boð um að við eigum að vera okkur þess meðvituð hvernig við fengum þessa Evrópu eftir seinni heims- styrjöldina.“ gudsteinn@frettabladid.is EVRÓPUMÁL Framvinduskýrsla um aðildar- viðræður Íslands við ESB, sem kynnt var á dögunum staðfestir að viðræður ganga vel, að mati Össurar Skarphéðinssonar utanríkis- ráðherra. Hann vonast til þess að viðræður verði hafnar um 28 kafla af 33 fyrir árslok. „Það sem mér finnst mikilvægast í skýrsl- unni er að framkvæmdastjórnin lýsir því yfir í skýrslunni að hún sé fullviss um að ESB muni í fyllingu tímans takast að kynna heildarlausn fyrir viðræðurnar þar sem tekið er tillit til bæði sérstöðu Íslands og væntinga hér á landi og að það muni um leið ríma við regluverk ESB,“ segir Össur og bætir því við að þetta megi túlka sem svo að samningsaðilar nálgist nú viðræðurnar á grundvelli sérþarfa Íslands. Á kynningarfundi vegna framvinduskýrsl- unnar sagði Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, að líkur væru á því að samninga- viðræður hæfust í fjórum málaflokkum til viðbótar á svokallaðri ríkjaráðstefnu í lok mánaðarins. Nefndi hann þar kaflana um fjár- málaþjónustu, hagtölur, dóms og innanríkis- mál og tollabandalagið. Taldi Summa ekki ólíklegt að enn fleiri samningakaflar yrðu teknir upp fyrir árslok, en sem stendur hafa samningaviðræður þegar hafist um átján kafla og viðræðum er lokið um tíu þeirra. Össur segist vongóður um að fyrir áramót verði viðræður hafnar í þeim 28 köflum sem Ísland hefur kynnt samningsafstöðu sína. - þj Utanríkisráðherra fagnar framvinduskýrslu framkvæmdastjórnar ESB um aðildarviðræðurnar við Ísland: Vonar að 28 kaflar verði hafnir fyrir lok ársins ÖSSUR OG SUMMA Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra fagnar niðurstöðum framvinduskýrslu ESB og vonast til að viðræður hefjist í flestum málalfokkum fyrir árslok. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GRETTIR SIG Á BÓKAMESSU Wetini Mitai frá Nýja-Sjálandi á Bókamess- unni í Frankfurt í Þýskalandi, sem þetta árið er helguð Nýja-Sjálandi. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.