Fréttablaðið - 13.10.2012, Blaðsíða 90
13. október 2012 LAUGARDAGUR62 62
popp@frettabladid.is
Myndband stuðsveitarinn-
ar Retro Stefson við lagið
Glow hefur vakið athygli en
því er leikstýrt af Magnúsi
Leifssyni.
„Þetta eru gerviísar í myndband-
inu, annað hefði ekki verið hægt.
Eini ísinn sem er ekta er sá sem
dettur í götuna,“ segir Magnús
Leifsson, en hann á heiðurinn að
vinsælu tónlistarmyndbandi Retro
Stefson við lagið Glow.
Myndbandið var frumsýnt í
vikunni, en í því sjást bræðurnir
Logi og Unnsteinn hjóla um höfuð-
borgina á tvímenningshjóli með ís
í hendi. Magnús sá um leikstjórn
og átti hugmyndina að söguþræð-
inum.
Hann segir þá bræður eiga
hrós skilið fyrir að hjóla, næstum
sleitulaust, í þrjá daga án þess að
kvarta. „Þeir tóku þetta á sig og
stóðu sig vel, enda var þetta mikið
flakk um bæinn. Það er snúið að ná
tökum á þessu hjóli svo þeir þurftu
að æfa sig aðeins áður. Mesta
vinnan var fyrir Unnstein, sem er
fyrir framan, en Logi flýtur meira
með,“ segir Magnús. Hjólið var
fengið á hjólaleigu í miðbænum.
Ísarnir vöktu athygli og margir
hafa velt fyrir sér hversu marg-
ir ísar hafi verið notaðir í tökur.
Þeir eru hins vegar sérhannaðir úr
frauðplasti og var því engin hætta
á að þeir bráðnuðu meðan á tökum
stóð. „Þetta kom vel út. Ég var smá
hræddur um að einhver tæki eftir
að ísarnir væru gerviísar en svo
var ekki.“
Magnús hefur áður leikstýrt tón-
listarmyndböndum fyrir sveitir á
borð við FM Belfast. Hann er graf-
ískur hönnuður að mennt en upp
á síðkastið hefur hann verið upp-
tekinn við tökur á þriðju seríunni
af Steindanum okkar sem hand-
ritshöfundur. Þættirnir hafa átt
góðu gengi að fagna en aðstand-
endur þáttanna hafa gefið út að
nú sé Steindaævintýrinu lokið.
„Við vildum hætta áður en þetta
yrði þreytt. Við lögðum allt í
þessa seríu og nú er maður bara
í spennufalli og smá lífskrísu. Ég
er samt alveg viss um að samstarfi
okkar Steinda og Bents er ekki
lokið og við gerum fleiri skemmti-
lega hluti saman í framtíðinni.“
alfrun@frettabladid.is
MEÐ GERVIÍSA Á
TVÍMENNINGSHJÓLI
MEÐ MÖRG JÁRN Í ELDINUM Magnús
Leifsson á heiðurinn að vinsælu tón-
listarmyndbandi Retro Stefson við lagið
Glow en hann er einnig einn af hand-
ritshöfundum gamanþáttanna Steindans
okkar sem lauk í vikunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TÖKULIÐIÐ Unnsteinn, Logi og Magnús ásamt Arró tökumanni, Óla Finns fram-
leiðanda, Sigurði Eyþórs klippara, Henrik Linnet sem sá um sjónbrellur og Haraldi í
Retro Stefson.
Tónlist ★★ ★★★
Þormar Ingimarsson
Vegferð
Vegferð er þriðja platan sem Þor-
mar Ingimarsson gefur út með
eigin lögum við texta íslenskra
ljóðskálda. Fyrsta platan hans,
Sundin blá, kom út árið 1995. Á
henni voru lög við ljóð Tómas-
ar Guðmundssonar, en á meðal
söngvara voru Pálmi Gunnars-
son, Björgvin Halldórsson og Ríó
tríóið. Árið 2000 kom plata númer
tvö, Fugl eftir fugl. Á henni voru
ljóð eftir Tómas, Stein Steinarr og
Kristján Eldjárn og Helgi Björns
og Álftagerðisbræður á meðal
flytjenda. Á nýju plötunni eru öll
ljóðin eftir Kristján Hreinsson, en
Raggi Bjarna, Eyþór Ingi, Margrét
Eir, Friðrik Ómar, Berglind Ósk
Guðgeirsdóttir, Skapti Ólafsson
o.fl. sjá um sönginn. Vilhjálmur
Guðjónsson sér um útsetningar og
upptökustjórn, en á meðal hljóð-
færaleikara eru Pálmi Gunnars-
son, Ásgeir Óskarsson og Jakob
Frímann Magnússon.
Þormar er ágætis lagahöfundur.
Hann hefur sent lög í undankeppni
Eurovision-keppninnar með all-
góðum árangri. Eitt þeirra, Húsin
hafa augu, komst í úrslit íslensku
forkeppninnar árið 2007. Það er á
disknum, sungið af Matta Matt.
Það eru þrettán lög á Vegferð og
þau eru yfirleitt ágætlega samin
og flutt. Söngvarahópurinn er líka
skemmtilega fjölbreyttur. Gömlu
brýnin Raggi og Skapti skila sínu
báðir með stæl og yngri söngkraft-
arnir standa sig líka flestir ágæt-
lega.
Þetta er plata sem er búin til
inn í fyrir fram afmarkað hólf.
Það er ekki verið að sækja fram
og kanna nýjar slóðir, heldur ein-
faldlega að setja saman popplög
við ljóð. Það er ekkert sem kemur
á óvart á Vegferð, þetta hefur allt
verið gert mörgum sinnum áður.
Platan er samt ágæt fyrir það sem
hún er, en sumstaðar mætti vera
meiri metnaður í útsetningunum.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Lagasmiðurinn Þormar
Ingimarsson með nýtt safn laga.
Lunkinn
lagahöfundur
HJÓLUÐU Í ÞRJÁ DAGA Myndbandið við lag Retro Stefson Glow hefur vakið athygli en bræðurnir Unnsteinn og Logi þurftu að æfa
sig áður en þeir náðu tökum á tvímenningshjólinu.
ÁRA ER LEIKKONAN Kelly Preston í dag
en tímamótunum fagnar hún eflaust ærlega með
eiginmanni sínum John Travolta og börnum.
50
Leikarinn kynþokkafulli Colin
Farrell er búinn að vera edrú frá
árinu 2006 og segir lífið vera mun
betra nú þegar hann er laus úr
viðjum fíknarinnar. Farrell hafði
drukkið og dópað upp á hvern
einasta dag í átján ár þegar hann
ákvað að breyta til hins betra og
segist hann hafa grætt átta tíma í
hvern dag núna, auk þess sem hann
sé níu ára gömlum syni sínum án
efa töluvert betri faðir. Á meðan
sjarmörinn var sem dýpst sokkinn
segist hann varla hafa sagt nokk-
urn sannleika því lífið snerist um
að ljúga að vinum og vandamönn-
um. „Ef ég hafði borðað kjúkling
og baunir í kvöldmatinn sagðist
ég samt hafa borðað steik og kart-
öflur. Ekki af neinni ástæðu, þetta
var bara orðinn vani,“ sagði hann
í viðtali.
Dópaður í 18 ár
SJARMÖR Colin er ánægður með að
hafa hætt í ruglinu.