Fréttablaðið - 13.10.2012, Blaðsíða 42
FÓLK|
ÓLÍVER
Hér má sjá opnu úr
bókinni um Ólíver sem
ætluð er öllum börnum
til gleði og ánægju.
LESTRARHESTAR
Mæðgurnar Birgitta og
Sóley deila einlægum
áhuga á bókmenntum
og fögrum teikningum.
hátt er Borgþór mín Ólivía. Lífið getur
verið dásamlegt og allt í einu finnur
maður eitthvað sem maður vissi þó ekki
að mann vantaði.“
STREMBIÐ AÐ SKRIFA BARNABÓK
Eftir meistaranám í barnabókateikning-
um landaði Birgitta samningi við Walker
Books, einn af stærstu og virtustu
barnabókaútgefendum heims.
„Það er mikill heiður og æðislegt að
vinna með Walker Books. Ég er byrjuð
að vinna að næstu bók sem er alveg ný
saga,“ segir Birgitta sem heillaðist af
bókum strax í barnæsku.
„Sóley er einnig bókelsk og heppin
að fá bækur frá vinum mínum sem líka
teikna og skrifa barnabækur. Ég hlakka
til að lesa Ólíver fyrir Sóleyju þegar hún
verður orðin nógu stór og vonast til að
geta umvafið hana með eins mörgum
fallegum bókum og ég mögulega get.“
Birgitta segir Sóleyju oft hafa setið í
fangi sínu þegar hún teiknaði á loka-
sprettinum við Ólíver.
„Það var yndislegt og í mínum huga
hjálpaði hún mér mikið þótt hún sé enn
of ung til að hafa álit á bókmenntum.
Það er nefnilega mun erfiðara en margir
halda að skrifa barnabók og langur
vegur frá hugmynd að fullgerðri bók.“
ENSKRI RIGNINGU EKKI BOÐIÐ
Í dag ætlar Birgitta að hitta aðra teikn-
ara á samkomu barnabókateiknara.
„Ég hlakka til að hitta allt fólkið, sjá
að hverju það vinnur og ræða hug-
myndir og teikningar yfir góðu kaffi,“
segir Birgitta sem nýtur þess einnig að
fara á litskrúðugra markaði Lundúna.
„Uppáhald Sóleyjar er að fara á rólu-
völl í almenningsgarði hverfisins. Þar er
lítill dýragarður með hænum, geitum og
hreindýrum en dúfurnar eru í uppáhaldi
og úti um allt. Sóley ískrar af fjöri þegar
hún sé þær,“ segir Birgitta og hlær.
„Annars finnst mér skemmtilegast
að vita ekkert hvert við ætlum. Ævin-
týrin leynast alls staðar í Lundúnum og
gaman að kynnast nýjum stöðum.“
Á morgun verður merkisdagur í lífi
litlu fjölskyldunnar þegar Sóley heldur
upp á fyrsta afmælið sitt.
„Þá ætlum við í lautarferð með
góðum vinum í almenningsgarðinn. Ég
krossleg fingur og vona að enska rign-
ingin elti okkur ekki í afmælið,“ segir
Birgitta Sif vongóð og brosir.
En ætla þau sér að flytja aftur heim?
„Hver veit hvað framtíðin ber í skauti
sér. Ég er ánægð hvar sem er á meðan
ég hef Sóleyju, Borgþór og blýant í
hendinni.“ ■ thordis@365.isv
Samtök lífrænna neytenda standa fyrir viðburðinum Lífrænt Ísland – framboð, fróðleikur og smakk!
í Norræna húsinu á sunnudaginn, 14.
október, frá kl. 12–17. Þar munu fram-
leiðendur lífrænna matvæla hérlendis
kynna afurðir sínar fyrir gestum og
gefa þeim að smakka, auk þess sem
fjölda áhugaverðra fyrirlestra verður
í boði um lífræna framleiðslu. Svala
Georgsdóttir, kynningarfulltrúi samtaka
lífrænna neytenda, segir uppákom-
una um helgina fyrst og fremst vera
tækifæri fyrir almenning til að koma
og sjá hvað er í boði hérlendis þegar
kemur að lífrænt ræktuðum matvælum.
„Svona viðburður er frábær vettvangur
fyrir íslenska framleiendur enda er til-
gangur samtakanna að brúa sambandið
milli neytenda og framleiðenda. Við
viljum kynna fyrir gestum það framboð
sem er í boði í dag og um leið koma
á framfæri fræðslu til almennings en
henni er svolítið ábótavant þótt hún sé
að aukast.“
Lífræn framleiðsla hefur aukist mjög
undanfarin ár hérlendis en þrátt fyrir
það stöndum við nágrannaþjóðum okk-
ar langt að baki að sögn Svölu. „Í Dan-
mörku er til dæmis búið að setja í lög
að 60% matvæla í eldhúsum opinberra
stofnana þurfi að vera lífrænt vottuð.
Danir eru búnir að sjá hag sinn í því að
framleiða og neyta lífrænna vara.“ Hún
segir stöðuna í dag hérlendis þó vera
jákvæða og allt stefni í rétta átt. „Fleiri
og fleiri sýna þessu áhuga og átta sig
á því að lífrænn matur er ekki enn ein
ný söluvaran sem er verið að selja fólki
heldur hinn raunverulegi landbúnaður
sem var til staðar löngu áður en stór-
iðjuframleiðslan varð til. Lífræn ræktun
er því í raun ekkert ný heldur erum við
bara komin hringinn og það er það sem
við viljum að fólk verði meðvitað um.“
Svala segir íslenska framleiðendur
hafa átt í basli með að koma undir
sig fótunum undanfarin ár. Þeir hafi
mætt mótbyr frá yfirvöldum og meðal
annars ekki fengið styrki frá hinu
opinbera eins og aðrir framleiðendur
sambærilegra matvæla. „Það er þó að
breytast núna enda er eftirspurnin að
aukast mikið eftir lífrænum vörum. Það
sem er mikilvægast framundan er að
hefja framleiðslu á lífrænum eggjum,
kjúklingi og svínakjöti sem er því miður
ekki hægt að kaupa hérlendis. Lífrænt
er framtíðin.“
LÍFRÆNN MATUR
Viðburðurinn er tæki-
færi fyrir almenning til
að kynna sér framboð
hérlendis af lífrænt
ræktuðum matvælum
að sögn Svölu Georgs-
dóttur, kynningarfull-
trúa Samtaka lífrænna
neytenda.
MYND/VILHELM
SMAKKAÐ
Gestum verður boðið
að smakka ljúffengar ís-
lenskar afurðir.
MYND/ÚR EINKASAFNI
LÍFRÆNT LOSTÆTI
Norræna húsið verður vettvangur lífrænnar framleiðsu á sunnudaginn. Áhuga-
verðir fyrirlestrar verða í boði og gestum boðið að smakka ljúffengar afurðir.
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
HEIMASÍÐA
BIRGITTU
BIRGITTA.COM
HALLDÓR
BALDURSSON
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
HELGIN