Fréttablaðið - 13.10.2012, Síða 6
13. október 2012 LAUGARDAGUR6
FRÆÐSLUNÁMSKEIÐ
fyrir fólk með geðklofa
og aðstandendur
Námskeiðið verður haldið á vegum geðsviðs LSH og verður
alla föstudaga frá 19. október - 23. nóvember kl. 13-16,
í samkomusal LSH að Kleppi.
Einkenni geðklofa
Ólafur Bjarnason sérfræðingur í geðlækningum
Meðferðarúrræði og eftirfylgd
Kristófer Þorleifsson sérfræðingur í geðlækningum
Meðferð við geðklofa
Halldóra Jónsdóttir sérfræðingur í geðlækningum
Um nauðungarvistanir og sjálfræðissviptingar
Kristófer Þorleifsson sérfræðingur í geðlækningum
Iðjuþjálfun og hlutverk í endurhæfingu
Svanborg Guðmundsdóttir iðjuþjálfi
Að vinna með erfiðar tilfinningar
Elías Jón Sveinsson hjúkrunarfræðingur
Fjölskyldan og félagsleg réttindi
Anna Guðrún Halldórsdóttir félagsráðgjafi
Sálfræðileg meðferð við geðklofa
Guðrún Íris Þórsdóttir sálfræðingur
Bataferlið
Margrét Eiríksdóttir geðhjúkrunarfræðingur
Einstaklings- og fjölskylduhjúkrun
Hallfríður Eysteinsdóttir hjúkrunarfræðingur
Notendur og endurhæfing
Bergþór Grétar Böðvarsson fulltrúi notenda og gestir
Mikilvægi hreyfingar fyrir fólk með geðklofa
Svandís Sigurðardóttir sjúkraþjálfari,
Rafn Haraldur Rafnsson og
Kristjana Ósk Sturludóttir íþróttafræðingar
Þátttaka tilkynnist fyrir 17. október í síma 543 4200 virka
daga kl. 8-16 eða á netfangið; helgao@landspitali.is
Námskeiðið er ókeypis
50 ERLENDAR STÖÐVAR Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100
FORBRYDELSEN
Þriðja og síðasta þáttaröðin
hefst á DR 1 á sunnudaginn
kl. 18.00
NOREGUR Tilkynningum um nauðganir og
nauðgunartilraunir hefur fjölgað stöðugt hjá
lögreglunni í Ósló síðasta áratug og þær hafa
aldrei verið fleiri en einmitt í fyrra. Dagbladet
segir frá þessu á vef sínum.
213 nauðganir voru tilkynntar í Ósló í fyrra,
sem er veruleg aukning frá árinu 2010 þegar
162 nauðganir voru tilkynntar. Séu nauðgunar-
tilraunir taldar með, eru tölurnar 256 fyrir
2011 og 189 fyrir 2010.
Í skýrslunni kemur fram að 58 prósent
nauðgara hafi verið ókunnug þolendum, en það
er hærra hlutfall en nokkru sinni fyrr.
Þá er tilfellunum skipt upp eftir kring-
umstæðum og kemur þar í ljós að rúmur
þriðjungur nauðgana og tilrauna til nauðgana
er framinn í tengslum við samkomur fólks,
samkvæmi eða skemmtanalíf. Tæpur fimmt-
ungur nauðgana er framinn af ættingja eða
fjölskyldumeðlim og fimmtán prósent nauðg-
ana eru svokallaðar árásarnauðganir þar sem
ráðist er á þolanda á almannafæri, yfirleitt í
skjóli nætur, en í fyrra átti tæpur fjórðungur
nauðgana og tilrauna til nauðgana, sér stað
utandyra.
Athygli vekur einnig að þó að flestir sem
kærðir eru fyrir nauðgun séu norskir ríkis-
borgarar, eru nær tveir þriðju af öðrum upp-
runa en norskum. Rúm tuttugu prósent eru
frá Afríku, þrjátíu prósent frá Asíu eða Mið-
Austurlöndum og tólf prósent af evrópskum
uppruna. - þj
Ný skýrsla um nauðganir og nauðgunartilraunir í Ósló leiðir í ljós talsverða fjölgun milli ára:
Aldrei fleiri nauðganir tilkynntar í Ósló
Í SKJÓLI NÆTUR Aldrei hafa fleiri nauðganir verið til-
kynntar í Ósló en í fyrra. Ný skýrsla sýnir að meira er
um að nauðganir eigi sér stað utan dyra í skjóli nætur.
NORDICPHOTOS/GETTY
UPPLÝSINGATÆKNI Staða fimm efstu
landa er óbreytt milli ára í mælingu
Alþjóðafjarskiptasambandsins á
vexti upplýsingatækni í heiminum.
Ísland er í fjórða sæti listans, á eftir
Danmörku, Svíþjóð og Suður-Kóreu.
Finnar eru svo í fimmta sætinu.
„Undanfarið ár hefur mátt sjá
stöðugan vöxt upplýsingatækni
sem náð hefur nær til heimsins
alls,“ segir Brahima Sanou, for-
stjóri skrifstofu fjarskipta þróunar
Alþjóðafjarskipta sambandsins,
í inngangs orðum að nýrri
samanburðar skýrslu sambands-
ins. Skýrslan nefnist „Mæling
upplýsinga samfélagsins 2012“ (e.
Measuring the Information Society
2012) og kom út í vikulokin.
Mældir eru margvíslegir þættir á
sviði upplýsingatækni og fundin út
vísitala fyrir hvert land.
Meðal þess sem sjá má milli
áranna 2010 og 2011 er að farsíma-
væðing eykst enn hröðum skrefum
í þriðjaheimslöndum með „tveggja
stafa“ prósentuvexti í mörgum lönd-
um, þótt hægi á þróuninni sé horft
til alls heimsins. Í árslok 2011 voru
farsímaáskriftir í heiminum orðn-
ar um sex milljarðar talsins. Hér á
landi voru þær 386.053, um fimmt-
ungi fleiri en landsmenn allir.
olikr@frettabladid.is
Ísland heldur stöðu
í tæknisamanburði
Ísland er í fjórða sæti á heimsvísu í samanburði Alþjóðafjarskiptasambandsins
(ITU) á tæknivæðingu þjóða. Sé bara horft til Evrópu er landið í þriðja sæti.
Staða fimm efstu þjóða er óbreytt milli ára. Flest lönd auka tæknivæðingu sína.
Staðan samkvæmt vísitölu Alþjóðafjarskiptasambandsins
Land Vísitala 2011 Vísitala 2010
1. S-Kórea (1) 8,56 8,45
2. Svíþjóð (2) 8,34 8,21
3. Danmörk (3) 8,29 8,01
4. Ísland (4) 8,17 7,96
5. Finnland (5) 8,04 7,89
6. Holland (7) 7,82 7,60
7. Lúxemborg (6) 7,76 7,64
8. Japan (8) 7,76 7,57
9. Bretland (14) 7,75 7,35
10. Sviss (9) 7,68 7,48
...
152. Erítrea (151) 1,09 1,08
153. Mið-Afríkulýðveldið (153) 0,97 0,96
154. Tsjad (155) 0,94 0,85
155. Nígería (154) 0,88 0,88
HEIMILD: SKÝRSLA ALÞJÓÐAFJARSKIPTASAMBANDSINS (ITU) „MEASURING THE INFORMATION SOCIETY 2012“
Staða Íslands
í upplýsinga-
tæknimálum
95,0%
þjóðarinnar nota internetið samkvæmt
tölum Alþjóðafjarskiptasambandsins
fyrir árið 2011. Hlutfallið er óbreytt á
milli ára.
49,3%
fjölgun varð á háhraðanet-
tengingum um ljósleiðara milli
áranna 2010 og 2011. Heildarfjölgun
breiðbandstenginga milli áranna nam
þó ekki nema 2,17 prósentum.
94,5%
heimila áttu tölvu í fyrra.
Tölvueign heimilanna hafði
því aukist lítillega milli ára,
því árið áður var hlutfallið
93 prósent. Tölvurnar eru þó
ekki alveg allar nettengdar
því 92,6 prósent heimila
voru nettengd í fyrra og 92,0
prósent árið áður.
106,1%
Íslendinga borgaði fyrir farsímaáskrift í
fyrra. Talan ber með sér að hér á landi er
nokkur hópur með fleiri en eitt farsíma-
númer í notkun. Áskriftum fækkar þó
aðeins á milli ára, en 2010 voru 106,5
prósent áskrifendur að farsímaþjónustu.
58,4%
þjóðarinnar voru með fastlínutengingu
árið 2011, öllu færri en árið áður þegar
60,5 af hundraði voru með „heimasíma-
tengingu“. Í fyrra voru notendalínurnar alls
135.581 og árið áður 141.474. Samdrátturinn
milli ára nemur 4,17 prósentum.
HEIMILD: GAGNAVEITA PÓST- OG FJARSKIPTA-
STOFNUNAR (PFS) OG DATAMARKET, AUK TALNA
FRÁ ALÞJÓÐAFJARSKIPTASAMBANDINU (ITU).
UMHVERFISMÁL Umhverfis stofnun og
bæjarstjórn Garðabæjar hafa aug-
lýst tvær tillögur að frið lýsingu
svæða innan marka Garðabæjar.
Svæðin eru í eigu Garðabæjar, utan
Vífilsstaðahrauns sem er í eigu
ríkis ins, og er samanlögð stærð
þeirra 479,3 hektarar.
Lagt er til að eldstöðin Búrfell,
hrauntröð hennar Búrfellsgjá og
eystri hluti Selgjár ásamt nánasta
umhverfi verði friðuð sem nátt-
úruvætti. Svæðið er alls 323 hekt-
arar. Verndargildi svæðisins byggir
fyrst og fremst á jarðmyndunum
frá nútíma sem hafa hátt vísinda-,
fræðslu- og útivistargildi, auk
gróður fars. Innan svæðisins eru
einnig fornminjar, svo sem Gjáarétt
sem er í vesturenda Búrfellsgjár.
Þá er lagt til að fjögur svæði;
Garðahraun neðra og efra, Vífils-
staðahraun og Maríuhellar verði
friðlýst sem fólkvangur, alls 156,3
hektarar.
Markmið friðlýsingarinnar er
að stofna fólkvang; útivistarsvæði
í þéttbýli, þar sem jarðmyndanir,
gróðurfar, fuglalíf og menningar-
minjar, m.a. fornar rústir eru
verndaðar. Með friðlýsingunni á að
efla lífsgæði í sveitarfélaginu með
því að tryggja möguleika til úti-
vistar, náttúru skoðunar og fræðslu
í náttúru legu umhverfi. - shá
Tillögur að tveimur nýjum friðlýsingum í Garðabæ hafa verið auglýstar:
Vilja friðlýsa 479 hektara lands
NÁTTÚRA Sérstakar jarðmyndanir eru á
þeim svæðum þar sem til stendur að
friðlýsa. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÖK
VEISTU SVARIÐ?
1. Um hvað sömdu norðurskautsrík-
in á fundi í Reykjavík á fimmtudag?
2. Hvað vilja veiðimenn láta hreinsa
úr Elliðaey við Vestmannaeyjar?
3. Hvaða sveitarfélögum vill
Kópavogur sameinast?
SVÖRIN
1. Olíuvarnir. 2. Fjörutíu lambshræ. 3.
Garðabæ, Hafnarfirði og Álftanesi.