Fréttablaðið - 13.10.2012, Qupperneq 24
13. október 2012 LAUGARDAGUR24
talað fyrir því að það sé valfrelsi á
sem flestum sviðum, til dæmis í
skólamálum og heilbrigðismálum.
Ætlum við síðan að útiloka einn val-
kostinn strax í gjaldeyrismálum?
Ég er ekki hagfræðingur en ég veit
það eitt að við getum ekki útilokað
annan af þeim tveimur helstu val-
kostum sem meðal annars Seðla-
bankinn og alþjóðastofnanir hafa
bent okkur á að séu í boði. Við
megum það ekki og við höfum ekki
efni á því.“
Og hún segir að þótt sumir vilji
gera Evrópusambandsmálið að
stærsta máli íslenskrar stjórn-
málasögu þá séu önnur mál sem
skipti ekki síður máli. Hún bendir
á að mörg stærstu skrefin í utan-
ríkismálum Íslendinga hafi verið
stigin þegar Sjálfstæðisflokkurinn
var í ríkisstjórn – aðildin að NATO
og EFTA, og frágangur EES-samn-
ingsins. „Þá voru frjálslynd umbóta-
öfl sem sáu fram á mikilvægi þess
að Ísland væri ekki bara á hliðar-
línunni heldur þátttakandi í þessu
alþjóðasamfélagi. Ég hefði kosið að
við héldum áfram að tala um val-
kosti og tækifæri en ýttum þeim
ekki út af borðinu.
Síðan er hægt að tala um
kjánaskap eins og þegar ungir
sjálfstæðis menn kölluðu Obama
sósíalista og settu hann í flokk með
Jóhönnu og Ögmundi. Fyrir það
fyrsta er verið að gera þeim mjög
hátt undir höfði með því að setja
Obama í þeirra hóp – hann á ekki
heima þar. En aðallega er þetta
dæmi um upphrópanir og æsingar
sem við eigum að láta eiga sig.“
Þorgerður segist raunar sjaldan
hafa fundið eins mikinn stuðning
innan flokksins undanfarin miss-
eri og nú eftir viðtalið í Klinkinu.
Þótt hún finni fyrir því að uppi sé
krafa um að flokksmenn séu sam-
hentir þá skipti ekki síður máli að
þora að tala um hlutina. Það hafi
flokkurinn gert, og ekki bara um
Evrópu sambandið. Flokkurinn hafi
líka tekist á um landbúnaðar- og
sjávarútvegsmál, svo dæmi megi
nefna.
Þótti Jóhanna skásti kosturinn
Sumir gagnrýnendur ríkisstjórnar-
innar hafa kallað hana þá verstu í
Íslandssögunni. Þorgerður segir
hana vonda en ekki alslæma. Það
sé ekki allt hræðilegt og offorsið
í slíkum málflutningi geldi skila-
boðin.
„Ég lít aðallega á þessa stjórn
sem ríkisstjórn vannýttra tæki-
færa. Hún hafði allt með sér þegar
hún tók við eftir hrun en hún fór
ekki í að stokka upp kerfið,“ segir
Þorgerður og nefnir heilbrigðis- og
menntakerfið sem dæmi. Það hefði
sparað ríkinu stórfé að halda áfram
á þeirri leið að stytta framhalds-
skólanám í þrjú ár.
Hún segir ríkisstjórnarsam-
starfið hafa snúist um það að hvor
stjórnar flokkur reyni að fá sínum
málum framgengt í stað þess að
mótuð sé heildarsýn fram á við.
„Mér finnst hana hafa vantað í
þessa ríkisstjórn. Hún hefur haft
stór orð um ýmsar leiðir – eins og
skjaldborg heimilanna, sem ég segi
að hafi aldrei verið reist – skjald-
borgina um jafnréttismálin, sem
var heldur aldrei reist, og það er að
koma svoleiðis í bakið á okkur núna
eftir þessa fjögurra ára stjórnar-
tíð.“
Þorgerður viðurkennir að henni
hafi þótt Jóhanna skásti kostur-
inn af þeim sem komu til greina af
hálfu Samfylkingarinnar til að leiða
ríkisstjórn. „En það þýðir ekki að
ég sé gagnrýnilaus á hana – og ég
er mun gagnrýnni á hana í dag en
ég var þá vegna þess að mér finnst
hún hafa brugðist í grundvallar-
málunum sem leiðtogi ríkis-
stjórnarinnar, þá fyrst og fremst í
atvinnumálum.“
Einnig nefnir Þorgerður
fæðingar orlofið sem dæmi um
vandræðagang stjórnarinnar.
Það hafi verið skert í þrígang í tíð
stjórnarinnar. „Fæðingarorlofið
er hreint og klárt jafnréttistæki.
Ég held að skerðing þess sé ein af
ástæðum þess að við erum að sjá
aukinn kynbundinn launamun í dag.
Þetta er bein afleiðing gerða ríkis-
stjórnarinnar.“
Þorgerður gefur stjórninni fall-
einkunn bæði í atvinnumálum og
málefnum vísinda og rannsókna.
„Ríkisstjórnin er ekki að skapa
fleiri störf. Hún getur sett fólk í ein-
hverja skúffu og inn í skólana, sem
mér finnst fínt, en það er bara tíma-
bundið úrræði. Það er ekki verið að
auka verðmætasköpun til lengri
tíma hérna í samfélaginu.“
Hún segir frá nýlegri heimsókn
sinni í Háskóla Íslands, sem hefur
hækkað um nokkur sæti á lista yfir
bestu háskóla heims. Það sé af-
leiðing þess að fjármagni hafi verið
dælt í rannsóknastarf á árunum
2006 til 2010. „Það sem fólk þar
segir núna er að þess sjáist merki
að birtingum á vísindagreinum sé
að hraka. Það þýðir bara minni sókn
í rannsóknum og vísindum.“
Þurfum að breyta stjórnarskránni
Talið berst að stjórnarskrár málum.
„Stjórnarskráin hefur verið tekin
og notuð sem pólitískt plagg,“ segir
Þorgerður. Staðreyndin sé sú að
allir flokkar hafi verið tilbúnir
í stjórnarskrár breytingar. „Það
þýðir ekkert að koma með frasa
um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
komið í veg fyrir það. Það var Sam-
fylkingin sjálf sem kom í veg fyrir
breytingar á stjórnarskránni 2003
til 2007 þegar átti að passa upp á
að það mætti ekki breyta neinu
varðandi forsetann. Svo breytti
Samfylkingin um kúrs þegar for-
setinn var ekki nægilega þægur
fyrir hana.“
Hún er með öðrum orðum ekki
ýkja hrifin af því hvert það mál
er komið. „En ég mun kjósa. Eitt
sem menn verða að átta sig á er að
þegar þingið er búið að ákveða eitt-
hvað – hvort sem maður er sáttur
við aðferðafræðina eða ekki – þá
virðir maður engu að síður niður-
stöðuna og nýtir sinn rétt. Það er
ekki spurning.
Ég leyni því hins vegar ekki að
ég hefði viljað sjá breytingar á
stjórnarskránni, ég hef margoft
sagt það. Við þurfum til dæmis
að fara yfir framsalsákvæðið,
ekki með aðildina að ESB í huga,
heldur ekki síður hvernig EES-
samningurinn er að þróast. Árið
1994 sögðu sérfræðingar: …Við
erum á nippinu með að þetta stand-
ist stjórnarskrána,“ en þá slapp
þetta til. Eftir það hefur orðið svo
miklu meira framsal, þannig að
það liggur ljóst fyrir að við hefð-
um þurft að gera breytingar á því
ákvæði. Mér finnst ekki spurning
um að það þurfi auðlindaákvæði í
stjórnarskrána, og að breyta breyt-
ingaákvæðinu sem slíku. Af hverju
forgangsraðaði ríkisstjórnin ekki
einfaldlega þessum málum í stað
þess að setja þetta allt í þennan
glundroðafarveg?“
Hún bendir líka á það sem
Þroskahjálp Íslands hefur sagt
um kosningarnar. „Það er gott að
hreyfihamlað fólk fái aðstoð í kjör-
klefanum en af því að kjörseðillinn
er svo flókinn þá munu þroska-
hamlaðir eiga í erfiðleikum með
að skilja hann vegna flækjustigs
kjörseðilsins. Þeir þurfa aðstoð við
það. Svona þjóðaratkvæðagreiðslur
verða að vera skýrar fyrir alla.“
Ríkisstjórnin hafi glutrað niður
tækifæri til að breyta því sem
skiptir máli. „Við höfum breytt
mannréttindakaflanum svo til
sóma er, sem og öðrum köflum,
til dæmis kjördæmaskipaninni.
Það hefði átt að taka fyrir þá þætti
sem núna skipta mestu máli og
Jóhanna Sigurðardóttir, í broddi
fylkingar sem forsætisráðherra,
klikkar þar.“
Hér er enn dúndurfjör
Fjórtán ára kafla í lífi Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur mun ljúka
í vor. Veit hún hvað hún ætlar að
taka sér fyrir hendur?
„Nei, ég hef ekki hugmynd um
það. Ég veit bara að mér finnst gott
að starfa með fólki og vona að ég fái
tækifæri til að starfa við eitthvað
þar sem ég get lagt mitt af mörkum.
Aðalmálið núna er að veita ríkis-
stjórninni aðhald í góðum málum
sem slæmum og ég ætla að reyna
að sinna mínu verki hér eins og best
má vera. Hér er enn þá dúndur fjör
og fullt af góðu fólki.
Mér finnst hins vegar miður
að sjá og heyra ekki síst suma af
þessum nýju þingmönnum reyta
hár sitt yfir því hvað allt getur
verið ómögulegt. Ef mönnum finnst
þetta ekki gaman og finnst þetta
starf ekki gefandi er bara eitthvað
að og þá eiga menn að leita á önnur
mið.
Hér er fullt hægt að gera ef menn
beita sér rétt og tala saman, og þess
vegna er mikilvægt að það sé gott
fólk í framboði fyrir alla flokka,
ekki bara Sjálfstæðis flokkinn.“
Þorgerður Katrín sótti um forstjóra-
stöðuna í Hörpu fyrr í ár. Hvers vegna?
„Af því að mér finnst það gríðarlega
spennandi verkefni og þekki það
út og inn. Ég held að til lengri tíma
muni það skipta okkur Íslendinga
miklu máli, ekki síst núna, að breikka
ferðaþjónustuna og ég held að Harpa
muni leika þar lykilhlutverk.
Ég veit hvaða erfiðleikar blasa við
Hörpu og með þá þekkingu sem ég
hef úr stjórnsýslunni held ég að ég
hefði verið ágæt í starfið.“
Þorgerður hlaut ekki stöðuna,
heldur Halldór Guðmundsson. Þor-
gerður er ánægð með ráðninguna.
„Það er góður maður sem ég hef
átt mjög gott samstarf við í gegnum
tíðina – fékk hann meðal annars til að
vera með bókamessuna í Frankfurt og
treysti engum betur til þess en honum
– og ég mun gera mitt til að styðja
hann til að efla og styrkja Hörpu. Það
er miklu meira en brekka fram undan
fyrir Hörpu. Það eru svakalega miklir
erfiðleikar, en ég hef trú á að ef menn
haldi rétt á spilunum takist að koma
þessu á réttan kjöl.“
Meirihluti stjórnarinnar vildi ráða
Þorgerði en fékk ekki sínu framgengt.
Hefur hún kynnt sér hvað gekk þar á?
„Já, ég veit alveg hvað gekk á. Eftir
þetta hringdu í mig menn sem höfðu
heyrt þetta nákvæmlega og svo frétti
ég ýmislegt, en ég nenni ekki að tala
um þetta. Þetta er búið og gert. Það
er nú eitt af því sem maður er búinn
að læra: að það sem er búið er búið.
Ekki sýta það sem hefði mátt betur
fara, heldur þarf að læra af mistök-
unum og ég vona að ég taki það með
mér þegar ég hætti. Ég lærði það í
íþróttunum – og það hefur nú hjálpað
mér einna mest í öllum þessum
ólgusjó – að það voru ekki bara allir
sigrarnir sem skiptu máli, heldur líka
allir ósigrarnir – eða þessir fáu ósigrar
skulum við segja.“
MIKLU MEIRA EN BREKKA FRAM UNDAN FYRIR HÖRPU
FRAMHALD AF SÍÐU 22
Geisladiskur með
stafakarlalögunum
fylgir
LOKSIN
S
FÁANLE
G
Á NÝ!
Ef mönnum finnst þetta ekki
gaman og finnst þetta starf ekki
gefandi er bara eitthvað að og þá
eiga menn að leita á önnur mið.
ENN GAMAN Þorgerði finnst enn
„dúndurfjör“ á Alþingi. Hún segist ekki
hafa hugmynd um hvað hún taki sér
fyrir hendur á næsta ári.