Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 66

Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 66
KYNNING − AUGLÝSINGHeilsa LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 20124 Þeir sem vilja grennast eru oft í vandræðum með hvað megi borða og hvað ekki. Talið er eðlilegt að léttast um eitt kíló á viku með því að stunda líkamsrækt og borða skynsamlega. Margir segjast ekki hafa tíma til að stunda líkamsrækt vegna anna en ef þeir vilja léttast þurfa þeir engu að síður að eyða að minnsta kosti tuttugu mínútum á dag í einhvers konar hreyfingu. Það getur til dæmis verið rösk ganga daglega. Morgunverður er mikilvægasta máltíð dagsins. Hafragrautur er bæði næringarríkur og hollur. Ávextir, eða hreinn ávaxtasafi, eru góður millibiti sæki hungrið að fyrir hádegismat. Salat með kjúklingabitum, eggjum og hnetum er frábær hádegisverður með hæfilegu prótíni. Þeir sem vilja spara kaloríur ættu ekki að borða margar hnetur og taka jafnvel rauðuna úr egginu. Um miðjan dag er ágætt að fá sér hrökkbrauð eða ávexti. Kvöldmatur getur verið að eigin vali, kjöt eða fiskur. Gott er að hafa í huga að minnka skammta og fá sér aðeins einu sinni á diskinn. Einnig er ágætt að velja léttsósur, eða sleppa þeim alveg, og magurt kjöt. Bætið gjarnan við grænmeti á diskinn, eins og spergilkáli, blómkáli, gulrótum eða kúrbít. Ótrúlegur árangur getur náðst með því að sleppa algjörlega sykri og hveiti. AÐ BORÐA TIL AÐ LÉTTAST FALINN SJÚKDÓMUR Beinþynning er sjúkdómur í beinum sem einkennist af því að steinefnamagn í beinvefnum minnkar. Beinin verða veik- byggðari og aukin hætta skapast á beinbroti. Algeng brot eru samfallsbrot í hrygg, fram- handleggs- og mjaðmabrot. Þeir sem eru með beinþynningu á háu stigi geta beinbrotnað við minnstu áverka, jafnvel við dag- legar athafnir. Beinþynning er dulinn sjúk- dómur. Fæstir vita hvort þeir séu með beinþynningu og þess vegna er beinþéttnimæling nauðsynleg. Talið er að þriðja hver kona og áttundi hver karl brotni af völdum beinþynningar einhvern tíma á ævinni. Beinvernd er mikilvæg alla ævina en nægilegt kalk og D-vítamín koma í veg fyrir beinþynningu. Reglubundin hreyfing gerir einnig gott. BETRI KVÖLDMATUR Börn sem eru alin upp við reglubundna kvöldmáltíð með fjölskyldu sinni eru síður líkleg til að nota fíkniefni eða þróa með sér átröskun. Þau eru enn fremur líklegri til að ná árangri í skóla. Hins vegar getur verið erfitt fyrir margar fjölskyldur að koma þessu við vegna ýmissa félagsstarfa utan vinnutíma. Þá eru margir foreldrar sem hafa ekki kunnáttu til að elda holla og góða máltíð og velja fremur unnar matvörur. Jenny Rosenstrach, höfundur bókarinnar „Dinner: A Love Story“ og bloggari segir í viðtali við Washington Post að sumir foreldrar séu undir miklu álagi að standa sig í eldamennskunni, enda mikil umræða um hollan, lífrænan mat beint frá bónda. Allir eiga að vera fullkomlega meðvitaðir um gæði og holl- ustu. Þessi umræða getur skapað ákveðið öryggisleysi hjá fólki sem hefur hug á að hafa fullkomna kvöldmáltíð á réttum tíma en getur það ekki. Rosenst- rach bendir á að best sé að vera skipulagður, undirbúa matinn fyrir fram og gera vikumatseðla. Hún bendir einnig á að fyrir tveimur árum hafi þrjár nágrannamömmur tekið sig saman um að sameina kvöld- máltíðir og skipta með sér dögum í hverri viku og elda fyrir þrjár fjölskyldur (20 manns). Ein mamman segir að eftir að þær byrjuðu á þessu fari hún aðeins einu sinni í viku út í búð og eldi bara einu sinni í viku. „Ég spara peninga, tíma, rafmagn og þarf minna að þrífa,“ segir hún og er ákaflega ánægð með þetta fyrirkomulag. Hvað getur NutriLenk gert fyrir þig? Liður með slitnum brjóskvef Heilbrigður liður NÁTTÚRULEGT FYRIR LIÐINA Brjóskskemmdir urðu til þess að ég hætti að geta gert ýmsa hluti sem ég gat áður eins og að hlaupa og öll almenn leikfimi varð ofraun fyrir hnéð. Ég starfa mikið við kennslu/þjálfun sem kostar miklar stöður, átti hnéð til að bólgna mikið upp. Góður vinur benti mér svo á NutriLenk Gold. Fór strax að geta reynt á hnéð eftir að ég byrjaði á NutriLenk Nánast strax eftir að ég fór að nota NutriLenk fann ég mikinn mun, fór strax að geta reynt meira á hnéð. Nú get ég æft af fullri ákefð eins og mér einum er lagið og er ekkert mál að þola langar stöður þegar ég er að kenna og þjálfa. Það er klárt mál að þetta efni er að virka, því ef ég sleppi að taka það inn þá finn ég aftur fyrir óþægindum í hnénu. Ég mæli eindregið með því að fólk prófi NutriLenk sem er að kljást við liðverki og brjóskskemmdir og finni hvort að það virki. Þetta er toppefni og náttúrulegt í þokkabót. Jón Halldórsson - Dale Carnegie þjálfari / ráðgjafi. 42 ára Brjóskskemmdir í hné hömluðu hreyfingu Fyrir átta árum var ég í veiði - datt og laskaðist á hné. NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum, Fræinu Fjarðarkaupum, Hagkaup, Krónunni, Þín verslun Seljabraut og Vöruvali Vestmanneyjum NUTRILENK NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is Við mikið álag og með árunum getur brjósk- vefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin byrja að núast saman, sérstaklega í liðamótum eins og í mjöðmum, hryggjar og hnjáliðum. Þess vegna er allt til vinnandi að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt. Náttúrulegt byggingarefni fyrir liðbrjóskið og beinin NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum. NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki. NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun. Prófið sjálf-upplifið breytinguna!
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.