Fréttablaðið - 13.10.2012, Page 68

Fréttablaðið - 13.10.2012, Page 68
13. október 2012 LAUGARDAGUR40 P ressa 3, þriðja þáttaröðin um blaðakonuna Láru, fjölskyldu hennar og sam starfsmenn fer í loft- ið á Stöð 2 annað kvöld. Í þetta sinn á Lára í höggi við harðsvírað glæpagengi sem reyn- ir að ná yfirráðum í undir heimum Reykjavíkur og baráttan einkennist af kynþáttahatri og ofbeldi. Tog- streitan milli blaðamannsstarfsins og foreldrahlutverksins er allsráðandi hjá Láru og ekki bætir úr skák þegar Alda, dóttir hennar, tekur upp náin kynni við einn úr glæpagenginu. Það er aldrei lognmolla í kringum Láru. Þættirnir Pressa hafa notið mik- illa vinsælda og söguhetjan, blaða- konan Lára sem sí og æ er að koma sér í vandræði bæði í einkalífi og starfi, er einn skemmtilegasti kar- akter íslenskra glæpamynda. Þætt- irnir þykja einnig vel gerðir og spegla vel nútímann í Reykjavík. „Ég held að það sé tengingin við raunveruleik- ann sem útskýrir vinsældir seríunnar hjá áhorfendum,“ sagði leikstjórinn Óskar Jónasson í viðtali við Frétta- blaðið þegar framleiðsla á þriðju þáttaröðinni var að hefjast. Með aðalhlutverk fara Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Björn Thors, Annalísa Hermanns- dóttir, Þorsteinn Bachman, Helgi Björnsson, Þorsteinn Gunnarsson og Atli Fjalar Óskarsson. Pappírspésar í æsi- spennandi lögguleik Sýningar á Pressu 3 hefjast annað kvöld. Söguhetjan Lára, blaðamaður með ástríðu fyrir lausn glæpa, er nær einstök í íslenskri sjónvarpssögu, en blaðamenn sem leggja sig í hættu við lausn glæpa eru þó vinsælar söguhetjur glæpasagna bæði í máli og myndum. Friðrika Benónýsdóttir skoðaði nokkra helstu fulltrúa stéttarinnar. PRESSA 3 Lára, blaðakona á Póstinum, fer aftur á kreik annað kvöld og á nú í höggi við harðsvíraðri glæpamenn en nokkru sinni fyrr. Ekki bætir ástandið á heimilinu úr skák. Annika Bengtzon, söguhetjan í bókum Lizu Marklund, er sá blaðamaður bók- menntanna sem líkist Láru í Pressu hvað mest. Hún vinnur á síðdegisblaði, er gift og á tvö börn og í eilífum vandræðum með að samræma vinnuna og fjölskyldulífið. Hún er álíka þrjósk og hvatvís og Lára og kemur sér sí og æ í fullkomlega vonlausa aðstöðu, bæði í sam skiptum við vinnufélagana á ritstjórn Kvöldblaðsins, í sam- skiptum við eiginmanninn og í eltingaleik sínum við vondu kallana. Og hún virðist aldrei læra af reynslunni. Ekkert frekar en Lára. Marklund hefur látið hafa eftir sér oftar en einu sinni að hún byggi persónu og aðstæður Anniku mikið á eigin reynslu, að persónan líkist henni töluvert og að hún hafi meðal annars haft að mark- miði að sýna þá togstreitu sem konur í blaðamennsku lendi í gagnvart vinnu og fjölskyldu. Nokkuð sem Lára gæti svo sannarlega tekið undir. ÞRJÓSK, HVATVÍS OG ÓFORBETRANLEG Mikael Blomkvist, önnur aðalpersónan í þríleik Stiegs Larsson sem kenndur hefur verið við Millenium-tímaritið, á frá höfundar- ins hendi að vera nokkurs konar útvörður siðferðisgilda, einkum hvað varðar spillingu í fjármálaheiminum. Hann er átorítet á sínu sviði og oft kallaður til sem sérfræðingur þegar rætt er um fjármálaspillingu í sjónvarpsþáttum. Í fyrstu bókinni hlýtur hann dóm fyrir að „sverta mannorð“ fjármálajöfurs og leiðist þá út í rannsóknir á annars konar glæpum með mun alvarlegri afleiðingum fyrir hann sjálfan en hann órar fyrir í upphafi. Blomkvist er fráskilinn og á eina dóttur, sem virðist vera normið í fjölskylduaðstæðum rannsóknarkarla í skandinavískum krimmum. Siðferðisgildi hans ná ekki til einkalífsins, hann er ófyrirleitinn í kvennamálum, sefur jafnt hjá samstarfskonum, fórnarlömbum glæpa og vitnum í málum. Þó er hann í nokkurs konar sambandi við ritstjóra sinn, Eriku Berger, en hún er reyndar gift allt öðrum manni. Hann vílar ekki fyrir sér að sofa hjá mun yngri samstarfskonu sinni, Lisbeth Salander, og setja tilveru hennar á hvolf, en hefur ekkert að gefa og hún hrökklast helsærð úr landi. Samt er greinilegt að hann er í miklum metum hjá Larsson sem lítur á hann sem góða gæjann. Einar blaðamaður er söguhetjan í glæpasögum Árna Þórarinssonar. Hann er í upphafi drykkfelldur, kvensamur og mætir illa í vinnuna, sem sagt steríótýpan af blaðamanni, en tekur sig á þegar líður á bókaflokkinn, hættir að drekka og sefur ekki hjá konum nema hann meini eitthvað með því. Rannsóknir hans á sakamálum leiða hann í ýmsa kima þjóðfélagsins, meira að segja alla leið norður í land og austur á firði, og hann er óþreytandi í að róta og grafa til að ná í „góða frétt“. Glæpa- málin sem hann rannsakar eru af öllum mögulegum toga en auðvitað er það alltaf hann sem leysir gátuna, eins og form glæpasögunnar krefst. Árni hefur lýst Einari sem svo að hann sé: „afkvæmi harðsoðnu hetjunnar en í rauninni ættleri“. Harðsoðinn er hann allavega ekki og eftir að af honum rennur verður líf hans ansi óáhugavert. Hann er fráskilinn og á eina dóttur – norræna normið aftur – og eyðir miklu púðri í að byggja upp gott samband við dótturina eftir að hafa klúðrað því hastarlega á meðan hann drakk. Í seinni bókunum verður honum eigin lega best lýst með orðum Spaðanna: „Hann er orðinn allt annar og betri drengur“ en um leið missir hann töluvert af sjarmanum. NÝJA STERÍÓTÝPAN AF BLAÐAMANNI Það má færa gild rök fyrir því að teiknimyndahetjan Tinni sé einn þekktasti blaðamaður bókmenntanna. Hann hefur notið stöðugra vinsælda allar götur síðan hann spratt úr höfði skapara síns, Belgans Georges Remi sem kallaði sig Hergé, árið 1929. Það sem einkennir Tinna öðru fremur er heiðarleiki hans og ákafinn við að ráða niðurlögum illmenn- anna. Hann rannsakar hvert glæpamálið á fætur öðru sem rann- sóknarblaðamaður en það virðist þó aldrei fylgja þeim rannsóknum nein kvöð um að skrifa fréttir af þeim. Raunar eru teljandi á fingrum þau skipti sem hann virðist þurfa að skila efni inn á ritstjórn – og þá erum við að tala um allar bækurnar um hann. Glíma Tinna við illþýði af ýmsu þjóðerni kemur honum oft í hinar skelfilegustu aðstæður, en eins og vera ber fer hann með sigur af hólmi í hverri viðureign og vondu karlarnir lenda á bak við lás og slá fyrir tilstilli hans og hjálparkokka hans. Fræðimenn hafa gjarnan bent á að Tinni eigi hinar miklu og stöðugu vin- sældir sínar ekki síst því að þakka hversu venjulegur hann sé, það sé auðvelt fyrir lesandann að samsama sig honum og setja sig þar með í hlutverk hetjunnar. TINNI SKRIFAR ALDREI NEITT Þótt sá veruleiki sem Lára hrærist í sé íslenskum blaðamönnum ansi framandi þá er ekkert einsdæmi að blaðamenn leggi sig í hættu við rannsóknir á glæpum. Frægasta dæmið er væntanlega írski blaðamaðurinn Veronica Guerin sem skotin var til bana í Dublin árið 1996. Guerin hafði lengi unnið að því að rannsaka og flytja fréttir af þorpurum undirheima Dublin á tíunda áratug síðustu aldar og oftar en einu sinni verið hótað lífláti. Það var svo þann 26. júní 1996 að hún var skotin sex skotum þar sem hún sat í bíl sínum á rauðu ljósi í úthverfi Dublin. Skotmaðurinn var farþegi á mótorhjóli sem staðnæmdist við hlið hennar og öruggt þykir að hann hafi verið handbendi dópbarónsins Johns Traynor sem Guerin hafði lengi átt í stríði við. Traynor var þó aldrei sóttur til saka fyrir morðið. Tvær kvikmyndir hafa verið gerðar um baráttu og endalok Guerin; When the Sky Falls árið 2000, sem er skálduð útgáfa af lífi hennar, og Veronica Guerin árið 2003 þar sem Cate Blanchett lék Guerin og Joel Schumacher leikstýrði. VAR SKOTIN FYRIR FRÉTTIR SÍNAR HEIÐARLEIKINN HOLDI KLÆDDUR Tinni slær aldrei af í ákafa sínum við að fanga bófana. ORÐINN EDRÚ Einar blaðamaður eins og Hjálmar Hjálmars- son túlkaði hann í sjónvarpsþáttunum Tími nornarinnar. TÖFFARI Mikael Blomkvist eins og Michael Nyqvist túlkaði hann í myndunum sem gerðar voru eftir þríleik Larssons. FÓRNARLAMB Cate Blanchett í hlutverki Veronicu Guerin í mynd Joels Schumacher um líf hinnar síðarnefndu. FYRIRMYNDIN Liza Marklund hefur viðurkennt að Annika Bengtzon sé mjög lík henni sjálfri. SKELFIR FJÁRMÁLAJÖFRA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.