Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 86
13. október 2012 LAUGARDAGUR58 58
menning@frettabladid.is
Kortið og landið, nýjasta
skáldsaga franska rit-
höfundar ins Michel
Houelle becq, er komin út
í þýðingu Friðriks Rafns-
sonar. Houellebecq er einn
umdeildasti höfundur sam-
tímans en Kortið og landið
hlaut feikigóðar viðtökur
og var hlaðin verðlaunum
í Frakklandi. Hvað segir
hann sjálfur um bókina?
Þú virðist dálítið tortrygginn á
listaheiminn í þessari sögu. Er
þetta allt farið að snúast um pen-
inga? „Nei, ég er ekkert tortrygg-
inn. Ég hef hins vegar dálitlar
efasemdir um að þessar óheyri-
legu fjárhæðir sem þar skipta um
hendur endurspegli raunverulegt
verðmæti listarinnar.“
Ertu hræddur um að pening-
arnir spilli listamanninum, að
hann hætti þá að tjá sig frá hjart-
anu og fari að reyna að þjóna
markaðinum? „Markaðurinn er
slíkt ólíkindatól að það er ekk-
ert hægt að þjóna honum. Þegar
maður reynir að geðjast mark-
aðinum er maður að geðjast ein-
hverju sem er ekki neitt. Ef við
berum saman listamenn og hórur
þá vita hórurnar náttúrulega full-
komlega hvað það er sem kúnninn
vill, það fer ekkert á milli mála, en
það er vonlaust fyrir listamann að
vita hvað fólk vill og allra síst hvað
ríka fólkið, sem hefur efni á verk-
um hans, vill. Það er ekki hægt
að segja að markaðurinn ráði því
það er aldrei hægt að sjá það fyrir
hvert peningarnir leita.“
Hitakútur sem persóna
Eins og nafnið, Kortið og landið,
ber með sér er eitt af megin-
viðfangsefnum bókarinnar munur-
inn á því hvernig raunveruleikinn
er og hvernig listamaðurinn tjáir
hann. Hver er sá munur? „Það sér
hver heiminn með sínum augum
en sú sýn er sjaldnast áhugaverð.
Það hefur enginn áhuga á því sem
annað fólk sér. Tökum dæmi: Við
erum hér á kaffihúsi og mér finnst
kaffivélin það áhugaverðasta
hérna inni, fólkið er bara
uppfylling í kringum hana. En ég
efast um að margir horfi þannig á
það. Það er það áhugaverða í list-
inni; maður getur breytt sjónar-
horninu eins og manni sýnist. Það
sem vakti helst athygli franskra
lesenda þessarar bókar var til
dæmis að í henni er hita kútur nán-
ast ein persónan. Í Frakklandi er
það mikið áhyggjuefni fyrir marga
að hita upp hús sín og því þótti
þeim mikið til þess koma að hita-
kúturinn kæmist í bókmenntirnar.
Enda er hann lykilatriði í öllum
íbúðum þar. Fólki hafði bara ekki
dottið í hug að hann gæti orðið ein
af persónunum í sögu.“
Mankell er langbestur
Þú nýtir líka ýmis tæki hefð-
bundinnar glæpasögu í þessari
bók, eru þær í uppáhaldi? „Já, já,
ég les mikið af þeim. Hef lesið
mikið af skandinavískum spennu-
bókum, allar bækur Mankells, til
dæmis, hann er sá langbesti.“ Hef-
urðu lesið íslensku glæpasagna-
höfundana? „Já, við skulum tala
sem minnst um þá. Ég er ekki hrif-
inn. Svíarnir gera þetta best, en ég
skil samt ekki þetta dálæti á Stieg
Larsson, mér finnst bækurnar hans
ekki góðar. Sama máli gegnir um
Jo Nesbø, mér finnst hann skelfi-
lega lélegur höfundur.“ Hefurðu
einhvern tíma velt því fyrir þér að
skrifa glæpasögu sjálfur? „Nei nei
nei! Ég les þær – og mest af þeim er
rusl – en ég hef engan áhuga á því
að skrifa svoleiðis sögu.“
Þú hefur greinilega kynnt þér
vel starfsaðferðir lögreglunnar.
Leggstu vanalega í rannsóknir á
því sem þú skrifar um? „Nei, ég hef
ekki gert það, nema í þessu tilfelli.
Ég fór í kynlífsferð til Taílands
sem venjulegur kúnni bara og það
var ekki fyrr en eftir þá ferð, þegar
ég gerði mér grein fyrir því hversu
umfangsmikill þessi kynlífstúrismi
er, sem ég fékk hugmyndina að
Áformum, þannig að það flokkast
ekki sem rannsóknarvinna.“
Leiðinlegri með árunum
Þú nýtir líka fantasíuna og vísinda-
skáldskapinn í sögum þínum, ferð
inn í framtíðina, hvers vegna? „Mig
langar til að fara inn í einhverja
þokukennda framtíð og horfa á
nútímann þaðan til að öðlast fjar-
lægð. Það er líka dálítið sérstakt
að enda bók svona langt í burtu.
Flestar sögur eru njörvaðar í fang-
elsi tímans en ég hugsa þetta meira
myndrænt, hugsa um hvað maður
sér af þeim sjónarhóli, það stækkar
söguna.“
Þú ert mun mildari í þessari bók
en áður, hvað veldur? „Ég er bara
orðinn gamall. Kannski er ég að
gefast upp. Ég hef minni áhuga á
lífinu en áður.“ Varstu sem sagt að
ögra af ásetningi í fyrri bókum?
„Nei, nei, alls ekki. Lífið skipti mig
bara meira máli þá. Ég held við
missum öll áhugann á að lifa þegar
við eldumst. Enda ber okkur engin
skylda til að vera full af ástríðu.
Það er ofmetið. En óneitanlega verð-
um við öll leiðinlegri með árunum.
Það er óhjákvæmilegt.“
Rithöfundurinn Houellebecq
er myrtur í sögunni, eigum við að
skilja það sem svo að þú sért búinn
að drepa rithöfundinn í Houelle-
becq? „Ja, kannski. Houellebecq
er bara eins og hver önnur persóna
í bókinni og hann var orðinn svo
fyrirferðar mikill að ég ákvað að
losa mig við hann. En, jú, kannski
var sú hugsun undirliggjandi að
drepa höfundinn. Það er vel hugsan-
legt. Það á eftir að koma í ljós hvort
mér hafi heppnast það.“
Einhver skilaboð til íslenskra les-
enda? „Takið vel á móti Frökkum og
ekki ganga í Evrópusambandið. Þið
hafið hér gott lýðræðissamfélag en
slíkt er ekki til staðar í Evrópusam-
bandinu. Ef þið farið þangað verður
lýðræðið ykkar hakkað í spað.“
fridrikab@frettabladid.is
Ef við berum saman listamenn og hórur þá vita
hórurnar náttúrulega fullkomlega hvað það er sem
kúnninn vill, það fer ekkert á milli mála ...
Okkur ber engin skylda
til að vera full af ástríðu
MICHEL HOUELLEBECQ „Óneitanlega verðum við öll leiðinlegri með árunum. Það er óhjákvæmilegt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HALLDÓR B. RUNÓLFSSON safnstjóri verður með leiðsögn um sýninguna
Musée Islandique í Listasafni Íslands við Tjörnina klukkan 14 á morgun. Musée
Islandique er sýning á verkum Ólafar Nordal og mun Halldór Björn fjalla um skörun
vísinda og lista með hliðsjón af straumum og stefnum á alþjóðlegum listmarkaði.
Auglýst er eftir fjölbreyttum skemmtiatriðum bæði á sviði og
í þorpinu sjálfu. Einnig leitum við að hljómsveit til þess að
halda tónleika á Þorláksmessukvöld frá 20:00 til 21:00.
Jólaþorpið opnar þann 24. nóvember og verður opið allar helgar til
jóla frá 13-18, nema á Þorláksmessu þegar opið verður frá 13-22.
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Ásbjörg Unu
Björnsdóttur á netfangið asbjorguna@hafnarfjordur.is
Jólaþorpið
í Hafnarfirði
auglýsir eftir
skemmtiatriðum
og hljómsveit