Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 88
13. október 2012 LAUGARDAGUR
Sýning á 67 verkum eftir Guðmund
Viborg Jónatansson verður opnuð
á morgun klukkan þrjú í Gallerí
Fold. Guðmundur, sem var fæddur
1858 og lést 1936, var afkasta mikill
málari á efri árum og tilheyrir
hann þeim málurum sem nefndir
hafa verið einfarar eða næfistar.
Verk hans hafa aldrei verið sýnd
áður, en þau hafa verið í geymslu
hjá ættingjum hans. „Þjóðernis-
rómantík 19. aldar er … lykillinn
að sér stæðustu verkum Guðmund-
ar, myndum hans af merkilegu fólki
úr sögu Íslands og Íslendingasögun-
um, en hvort tveggja var aldamóta-
mönnum jafn raunverulegt,“ segir
í hugleiðingu Aðalsteins Ingólfs-
sonar listfræðings um Guðmund.
Og einnig: „Sköpunargleði Guð-
mundar Viborg og einlæg löngun
hans til að segja skilmerkilega frá
því sem hann telur sannast og rétt-
ast eru aðall hans. Myndir hans eru
ekki einasta heimildir um viðhorf
19. aldar fjölhaga, heldur áhrifa-
mikil myndgerving þeirra við-
horfa.“ Þess má geta að Guðmund-
ur telst fyrsti vélstjóri landsins, en
hann var meðal annars vélstjóri á
Ásgeiri litla, fyrsta gufuskipi lands-
ins. Hann sneri sér að gullsmíði á
efri árum en fyrir utan málverkin
liggja eftir hann fagrir smíðisgrip-
ir og verða nokkrir þeirra líka til
sýnis á sýningunni.
Auk sýningar á verkum Guð-
mundar verður opnuð á morgun í
Gallerí Fold sýning á nýjum verk-
um færeyska listmálarans Finleif
Mortensen. Sýninguna nefnir lista-
maðurinn „Skiftandi ljós úr eystr-
ið“. Finleif er fæddur 1965 og er
meðal þeirra færeysku málara sem
sækja efnivið sinn í stórbrotna nátt-
úru eyjanna og hina sérstöku birtu
sem þar er.
Sýningin stendur til 28. október.
Gömul verk næfista
sýnd í fyrsta sinn
ÚR VÖRSLU FJÖLSKYLDUNNAR Þetta verk Guðmundar Viborg verður sýnt í Gallerí
Fold á sýningu sem hefst á morgun.
Tónlist ★★★★ ★
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verk eftir Brahms, Schumann og Rihm. Einleikarar: Sigrún Eðvalds-
dóttir og Hans Nygaard. Hans Graf stjórnaði.
Harpa, 11. október
Tilkomumikið neistaflug
Brahms er með geislabaug. Rétt eins og öll hin frægu tónskáldin. Með þessu
á ég við að sum verkanna eftir Brahms eru hrein snilld, en önnur ekki. Snilld
meistaraverkanna er hins vegar slík að hún smitar út frá sér. Fólk heldur að
hana sé að finna í öllu sem Brahms
samdi. Konsertinn fyrir selló og fiðlu
ásamt hljómsveit er dæmi um þetta.
Miðað við fiðlusónöturnar, sinfóníurnar
og píanókonsertana er hann óttalegt
miðlungsverk. Það er einhver drungi
yfir honum, flatneskja sem gerir
hann þreytandi áheyrnar. Jafnvel þótt
flutningurinn sé góður.
Danski sellóleikarinn Hans Nygaard
og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari
voru í einleikshlutverkinu. Hans Graf
stjórnaði og gerði það af festu og nákvæmni. Allar línur tónsmíðarinnar voru
skýrar, túlkunin var stílhrein og í jafnvægi. Hljómsveitin spilaði fallega, heildar-
hljómurinn var munúðarfullur og flottur. Alveg eins og Brahms á að hljóma.
Þrátt fyrir það var konsertinn ekkert sérlega skemmtilegur áheyrnar. Ekki
miðað við raunveruleg snilldarverk tónskáldsins.
Samt spilaði Sigrún af ástríðu og leikur Nygaards var skemmtilega fókuser-
aður. Spilamennska þeirra beggja passaði reyndar ekkert sérstaklega vel
saman. Víbratóið hjá Sigrúnu var áberandi meira en hjá sellóleikaranum. Það
skapaði ákveðið ójafnvægi. Einleikurinn var þó líflegur og flæðandi í heildina,
fumlaus og öruggur. Sem er ekki svo lítið.
Aukalagið vakti lukku hjá áheyrendum. Það var hin fræga Passakalía eftir
Handel í útsetningu Halvorsens. Passakalían var stórglæsileg í meðförum ein-
leikaranna, svo sannarlega tilkomumikið neistaflug.
Tvær aðrar tónsmíðar voru á dagskránni, Ernster Gasang eftir Wolfgang
Rihm (f. 1952) og önnur sinfónía Schumanns. Hin fyrrnefnda er hugleiðing
um Brahms, fremur sérkennileg tónsmíð – og falleg. Hún virkaði mjög þykk,
byggðist á þéttri hljómaáferð, afar dimmri. Hún var eins og tónverk eftir
Brahms sem hafði verið hreinsað af allri birtu og skrauti. Aðeins undirstaðan
var eftir. Þetta var áhrifamikið, ekki síst fyrir fína spilamennsku hljómsveitar-
innar þar sem klarinettuleikur Arngunnar Árnadóttur var áberandi.
Hitt verkið er löngu orðið klassískt. Sinfónía Schumanns ber öll hans
einkenni, hrífandi rómantísk, full af ákefð. Ekki endilega besta tónsmíðin hans,
en skemmtileg áheyrnar. Flutningurinn var líka svo gott sem pottþéttur. Það
var gaman að fylgjast með hljómsveitarstjóranum, bendingarnar voru míní-
malískar og lausar við allan glamúr. Túlkunin var hófstillt, kraftmikil vissulega,
en samt tempruð ákveðinni heiðríkju. Það kom vel út. Jónas Sen
Niðurstaða: Tilþrif einleikaranna í aukalaginu, athyglisvert nútímaverk og
skemmtileg túlkun á Schumann stóðu upp úr á tónleikum Sinfóníunnar.
SIGRÚN EÐVALDSDÓTTIR
FRUMSÝNING 20. OKTÓBER KL. 20
Föstudaginn 26. október kl. 20 – 2. sýning
Laugardaginn 27. október kl. 20 – 3. sýning
Sunnudaginn 4. nóvember kl. 20 – 4. sýning
Laugardaginn 10. nóvember kl. 20 – 5. sýning
Laugardaginn 17. nóvember kl. 20 – 6. sýning
Miðasala í Hörpu og á www.harpa.is
Miðasölusími 528 5050
SAGA UM ÁSTIR OG HEFND
JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR
ANOOSHAH GOLESORKHI
ELSA WAAGE / ALINA DUBIK · VIÐAR GUNNARSSON
GRÉTA HERGILS /HANNA ÞÓRA GUÐBRANDSDÓTTIR
SNORRI WIUM
KÓR OG HLJÓMSVEIT ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: CAROL I. CRAWFORD
LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
BÚNINGAR: ÞÓRUNN MARÍA JÓNSDÓTTIR
LEIKMYND: GRETAR REYNISSON
LEIKSTJÓRI: HALLDÓR E. LAXNESS
Verðmæta og
gagnageymslu þjónusta
GSC
GSC Öryggisþjónusta býður upp á verðmæta
og gagnageymslu fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Hafðu samband í síma 512 3355 eða gsc.is
Öryggiskerfi • Búðargæsla • Slökkvitækjaþjónusta