Fréttablaðið - 13.10.2012, Síða 96

Fréttablaðið - 13.10.2012, Síða 96
13. október 2012 LAUGARDAGUR68 sport@frettabladid.is ÞÓR FRÁ ÞORLÁKSHÖFN vann í gær sigur á nýliðum ÍR í Hertz-hellinum í Seljaskóla í gærkvöldi, 95-92, í framlengdum leik. Þórsarar hafa farið í framlengingu í tveimur fyrstu leikjum sínum á tímabilinu en liðið tapaði fyrir Njarðvík í fyrstu umferðinni. ÍR er þó enn án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar. 0-1 Birkir Bjarnason (19.), 1-1 Edgar Cani (29.), 1-2 Gylfi Þór Sigurðsson (81.). Skot (á mark): 8 (2) - 5 (2) Varin skot: Ujkani 0 - Hannes 1. ÍSLAND (4-4-2): Hannes Þór Halldórsson – Grétar Rafn Steinsson, Kári Árnason, Ragnar Sigurðsson, Ari Freyr Skúlason – Rúrik Gíslason (68. Birkir Már Sævarsson), Aron Einar Gunnarsson, Emil Hall- freðsson, Birkir Bjarnason (84. Jóhann Berg Guð- mundsson), – Gylfi Þór Sigurðsson, Alfreð Finn- bogason (92. Eggert Gunnþór Jónsson). Qemal Stafa, áhorf.: 9.000 Tony Asumaa, Finnlandi 1-2 FÓTBOLTI Ísland er komið með sex stig í undankeppni HM 2014 eftir frábæran 2-1 sigur á Albaníu ytra í gær. Gylfi Þór Sigurðsson reynd- ist hetja íslenska liðsins, en hann skoraði sigurmarkið beint úr auka- spyrnu þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Birkir Bjarnason skoraði fyrra mark Íslands. Leikurinn fór fram við skraut- legar aðstæður, en það byrjaði að hellirigna snemma í fyrri hálfleik. Dómarar tóku sér um 35 mínútna umhugsunartíma í hálfleik til að íhuga hvort flauta ætti leikinn af. Síðari hálfleikur hófst þó fyrir rest og var leikið við afar erfiðar aðstæður eftir það. Birkir kom Íslandi yfir á nítj- ándu mínútu eftir laglega sókn. Alfreð Finnbogason og Kári Árnason framlengdu boltann inn fyrir varnarlínu heimamanna eftir langt innkast Arons Einars Gunnarssonar. Þar tók Birkir við honum og tókst að afgreiða knött- inn í netið. Albanir létu þó ekki slá sig út af laginu og sóttu nokkuð að marki Íslands eftir þetta. Það tók þá aðeins tíu mínútur að uppskera mark og var Edgar Cani þar að verki af stuttu færi eftir fyrirgjöf Alban Meha. Íslenska vörnin svaf á verðinum, sérstaklega vinstri bakvörðurinn Ari Freyr Skúlason sem gaf Meha nægan tíma með boltann. Síðari hálfleikur var farsa- kenndur af þeirri einföldu ástæðu að aðstæður til að spila knatt- spyrnu af einhverju viti voru ein- faldlega ekki til staðar. Boltinn dó í miðri sendingu hvað eftir annað, leikmenn runnu til við minnsta til- efni og leikur beggja liða var til- viljanakenndur. Tvívegis komust heimamenn í frábær skotfæri. Fyrst varði Hannes Halldórsson frábærlega frá Renato Arapi og svo skaut Odise Roshe framhjá af stuttu færi. Íslandi hafði að sama skapi gengið afar illa að skapa sér almennileg færi en Gylfi Þór Sigurðs son minnti á snilli sína þegar hann krækti laglega í aukaspyrnu rétt utan vítateigs á 80. mínútu. Hann tók spyrnuna vitanlega sjálfur og skoraði með frábæru skoti í stöngina og inn. Þetta var í raun eina almenni- lega færi Íslands í síðari hálfleik en að því er ekki spurt. Strákarnir stóðust þetta erfiða próf og lands- liðið vann sinn fyrsta mótsleik á útivelli síðan í Norður-Írlandi haustið 2006. Þetta er besta byrjun Íslands í undankeppni stórmóts frá upphafi, eins og lesa má um hér til hliðar. Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari var vitanlega hæstánægður með sigurinn. „Þetta var mjög erfiður leikur. Eftir að rigningin byrjaði var þetta bara spurning um að fá strákana til að berjast til síðasta manns. Það er erfitt að spila góðan fótbolta við þessar aðstæður en þeir börðust vel og héldu sínum stöðum, sem var afar mikilvægt,“ sagði Lagerbäck við Fréttablaðið í gær. Hann segist hafa brýnt fyrir sínum leikmönnum að taka enga áhættu við svo erfiðar aðstæður. „Ég sagði þeim að spila einfalt og taka enga áhættu, sérstaklega á okkar vallarhelmingi. Leikmenn þurftu að halda sínum stöðum því það var ómögulegt að reikna út hvert boltinn myndi fara. Þetta leystu strákarnir mjög vel,“ sagði Lagerbäck. Hann segir að fyrir fram hefði hann verið ánægður með að fá sex stig úr fyrstu þremur leikjunum. „Auðvitað hefði verið best að vera með níu stig en ég er ánægð- ur. Við erum nú búnir með tvö lengstu ferðalögin í riðlinum og nú er um að gera fyrir okkur að safna kröftum og undirbúa liðið eins vel og kostur er fyrir leikinn gegn Sviss á þriðjudaginn.“ Aron Einar Gunnarsson fékk sína aðra áminningu í riðlakeppn- inni í gær og verður því í leikbanni gegn Sviss. eirikur@frettabladid.is GYLFI KAFFÆRÐI ALBANI Í TIRANA Ísland vann sinn fyrsta útisigur í mótsleik í sex ár þegar landsliðið fagnaði frábærum 2-1 sigri gegn Albaníu í leik sem fór fram við skelfilegar aðstæður. Þetta er besta byrjun Íslands í undankeppni stórmóts. ÓTRÚLEGAR AÐSTÆÐUR Birkir Bjarnason í baráttu við leikmann Albaníu í leiknum í gær. Völlurinn var mjög blautur, sem gerði leikmönnum erfitt fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Ísland hefur aldrei byrjað betur í undankeppni stórmóts síðan landsliðið tók fyrst þátt, en það var í undankeppni HM 1958. Landsliðið er nú með sex stig af níu mögulegum en hefur aldrei áður verið með svo mörg stig að loknum fyrstu þremur umferðunum. Gamla metið var fimm stig og var sett á haustmánuðum 1998, í undan- keppni EM 2000. Ísland náði fyrst tveimur jafnteflum – gegn Frakklandi heima og Armeníu ytra – og vann svo frækilegan 1-0 sigur á Rússlandi á Laugardalsvelli þann 14. október 1998. Ísland endaði í fjórða sæti riðilsins með fimmtán stig, sem einnig er met í undankeppni hjá íslenska lands- liðinu. Besta byrjun Íslands frá upphafi Eftir að rigningin byrjaði var þetta bara spurning um að fá strákana til að berjast til síðasta manns. LARS LAGERBÄCK LANDSLIÐSÞJÁLFARI ÍSLANDS FÓTBOLTI Norðmenn stöðvuðu sig- urgöngu Svisslendinga í undan- keppni HM þegar þjóðirnar gerðu 1-1 jafntefli í fjörugum leik í Bern í gærkvöldi. Liðin eru með Íslandi í E-riðli eins og Sló- venar, sem nældu í sín fyrstu stig með 2-1 heimasigri á Kýpur. Þjóðverjar hafa fullt hús stiga eftir þrjá leiki í C-riðli, en þeir þýsku unnu stórsigur á Írum í Dublin, 6-1. Í sama riðli tryggði Zlatan Ibrahimovic Svíum 2-1 útisigur á Færeyingum stundar- fjórðungi fyrir leikslok. Svíar hafa unnið báða leiki sína í riðlin- um og mæta Þjóðverjum í topps- lag í Berlín á þriðjudag. Wayne Rooney og Danny Wel- beck, framherjar Manchester United, skoruðu tvívegis hvor í 5-0 sigri á San Marínó. - ktd Aðrir leikir í undankeppni HM: Sviss tapaði fyrstu stigunum FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson reyndist hetja íslenska liðsins í gær, en hann tryggði Íslandi 2-1 sigur á Albaníu ytra með glæsilegu marki beint úr auka- spyrnu þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum. „Þetta var mjög erfiður leikur og aðstæðurnar ekki síður. Það var því ansi fínt að fara héðan heim með þrjú stig,“ sagði Gylfi við Frétta blaðið eftir leikinn í gær. Varðandi aukaspyrnuna sagðist hann hafa frekar veðjað á fjærhornið þar sem mark- vörðurinn hefði tekið skref í hina áttina. „Ég ætlaði fyrst að setja hann í nærhornið en ég ákvað að bíða í smástund. Ég sá að mark- vörðurinn tók tvö skref í hitt hornið og tók því sénsinn á að hann myndi velja það. Ég hitti boltann vel og setti hann alveg út í stöng. Markvörður- inn náði því ekki til boltans,“ sagði Gylfi. Hann neitar því ekki að hann hafi verið afar feginn þegar flautað var til leiksloka. „Þetta er einn sá erfiðasti leikur sem ég hef spilað. Völlurinn var hundblautur og við náðum ekk- ert að spila boltanum okkar á milli. Við þurftum því að stóla á langa bolta og skyndisóknir,“ sagði hann. „En það er líka mikilvægt að geta unnið svona „ljóta“ sigra með því að berjast og gera einfaldlega það sem þarf að gera.“ Ragnar Sigurðsson varnarmaður átti góðan leik í íslensku vörninni og tók í svipaðan streng og Gylfi. „Sem varnarmaður geta svona aðstæður verið sér- staklega erfiðar, þar sem maður veit aldrei hvaða bolta maður á að vaða út í. Við þurftum því að vera á tánum og tilbúnir í hvað sem er.“ Ragnar segir að leikurinn fari ekki í sögu- bækurnar sem dæmi um góða knattspyrnu. „Það er ekki hægt að spila alvöru fótbolta við svona aðstæður. Fyrstu 15-20 mínúturnar í seinni hálfleik þorðum við varla að senda bolt- ann á milli okkar. Þá var ekkert annað að gera en að dúndra fram.“ Hann segir að leikmenn séu hæst- ánægðir með uppskeruna – sex stig að loknum fyrstu þremur leikjun- um. „Við erum gríðarlega ánægð- ir. Við vissum að við gætum gert þetta og sýndum það í kvöld. Við höfum staðið við stóru orðin og ætlum að gera það áfram.“ Næsti leikur Íslands er gegn Sviss á þriðjudagskvöldið og fer hann fram á Laugardalsvelli. „Sviss er með eitt sterkasta liðið í riðlinum og þess vegna var það þeim mun mikilvægara að ná í þrjú stig hér,“ sagði Gylfi. „Svona sigur mun færa okkur mikið sjálfstraust og það er mikilvægt.“ - esá Gylfi Þór Sigurðsson og Ragnar Sigurðsson eftir sigurinn á Albaníu í gær: Sá markvörðinn stíga til hliðar Undankeppni HM 2014 A-RIÐILL Makedónía - Króatía 1-2 Serbía - Belgía 0-3 Wales - Skotland 2-1 Staðan: Belgía 7, Króatía 7, Serbía 4, Wales 3, Skotland 2, Makedónía 1. B-RIÐILL Tékkland - Malta 3-1 Armenía - Ítalía 1-3 Búlgaría - Danmörk 1-1 Staðan: Ítalía 7, Búlgaría 5, Tékkland 4, Armenía 3, Danmörk 2, Malta 0. C-RIÐILL Færeyjar - Svíþjóð 1-2 Kasakstan - Austurríki 0-0 Írland - Þýskaland 1-6 Staðan: Þýskaland 9, Svíþjóð 6, Írland 3, Austurríki 1, Kasakstan 1, Færeyjar 0. D-RIÐILL Tyrkland - Rúmenía 0-1 Eistland - Ungverjaland 0-1 Holland - Andorra 3-0 Staðan: Holland 9, Rúmenía 9, Ungverjaland 6, Tyrkland 3, Eistland 0, Andorra 0. E-RIÐILL Albanía - Ísland 1-2 Sviss - Noregur 1-1 Slóvenía - Kýpur 2-1 Staðan: Sviss 7, Ísland 6, Noregur 4, Albanía 3, Slóvanía 3, Kýpur 3. F-RIÐILL Ísrael - Rússland 0-4 Rússland - Portúgal 1-0 Lúxemborg - Ísrael 0-6 Staðan: Rússland 9, Portúgal 6, Ísrael 4, Norður- Írland 1, Aserbaídsjan 1, Lúxemborg 1. G-RIÐILL Liechtenstein - Litháen 0-2 Slóvakía - Lettland 2-1 Grikkland - Bosnía 0-0 Staðan: Bosnía 7, Slóvakía 7, Grikkland 7, Litháen 4, Lettland 0, Liechtenstein 0. H-RIÐILL San Marínó - Svartfjallaland 0-6 Moldóva - Úkraína 0-0 England - San Marínó 5-0 Staðan: England 7, Svartfjallaland 4, Pólland 4, Úkraína 2, Moldóva 1, San Marínó 1. I-RIÐILL Finnland - Georgía 1-1 Hvíta-Rússland - Spánn 0-4 Staðan: Spánn 6, Frakkland 6, Georgía 4, Finnland 1, Hvíta-Rússland 0. ÚRSLIT GYLFI SIGURÐSSON ÞAKKAÐI FYRIR NUDDIÐ Birkir Bjarna- son hljóp beint í fang Óðins Svanssonar, nuddara íslenska landsliðsins, eftir mark hans í gær. „Hann var búinn að segja fyrir leikinn að ég myndi skora,” sagði Birkir. FFRÉTTABLAÐIÐ/AP BARIST Úr leik Sviss og Noregs í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.