Fréttablaðið - 13.10.2012, Síða 102
13. október 2012 LAUGARDAGUR74
PERSÓNAN
„Þetta hefur verið ótrúlega
skemmtileg vinna,“ segir hin
fimmtán ára gamla Annalísa Her-
mannsdóttir. Hún leikur eitt af
aðalhlutverkunum í sjónvarpsþátt-
unum Pressu en þriðja þáttaröðin
fer í loftið á morgun.
Annalísa var tíu ára gömul þegar
hún landaði hlutverki Öldu, dóttur
blaðakonunnar Láru, í sjónvarps-
þáttunum vinsælu. Annalísa var þá
í Sönglist og ætlaði að verða söng-
kona en smitaðist af leiklistar-
bakteríunni í Pressu. Nú er hún
staðráðin í að reyna frekar við leik-
listina, en Annalísa fékk hlutverk
í myndinni Vonarstræti sem tökur
hefjast á eftir áramót. Þar mun hún
leika á móti Þorvaldi Davíð Krist-
jánssyni og Heru Hilmarsdóttur.
„Þetta verður í fyrsta sinn sem
ég leik í kvikmynd og það er mjög
spennandi,“ segir leikkonan unga.
Annalísa er í 10. bekk í Garða-
skóla og segir skólafélagana áhuga-
sama um starf sitt. „Þeim finnst
þetta spennandi, en þeir stríða mér
líka smá. Eins og þegar ég pissaði
á mig í síðustu seríu, þá fékk ég
að heyra ýmislegt en það er bara
fyndið.“
Hlutverk Önnulísu hefur vaxið
með hverri seríunni. Í þessari
þriðju þáttaröð er Alda í uppreisn
og flækist inn í sakamál sem Lára
móðir hennar er að rannsaka. „Ég
má ekki segja of mikið, en Alda er
að deyja úr gelgju og hefur flækst
inn í slæman félagsskap í þessari
seríu. Hún gerir móður sinni lífið
leitt og er ekki á góðum stað í líf-
inu,“ segir Annalísa, sem er bæði
spennt og kvíðin fyrir frumsýning-
unni á morgun.
Annalísa ætlar að horfa á fyrsta
þáttinn með fjölskyldu sinni og
vinum. Hún segist orðin nokkuð
sjóuð í að sjá sjálfan sig á skján-
um. „Ég er búin að vera rosalega
spennt og hef talið niður dagana í
fyrsta þáttinn. Svo í vikunni byrj-
aði ég að verða smá kvíðin líka því
í þessari seríu reynir meira á mig
og leiklistarhæfileikana.“
alfrun@frettabladid.is
ANNALÍSA HERMANNSDÓTTIR: NÚ REYNIR Á HÆFILEIKANA
Alda er að deyja úr gelgju
STEFNIR Á LEIKLISTINA Annalísa Hermannsdóttir hefur leikið í Pressu frá upphafi og
er hlutverk hennar veigameira í nýju seríunni sem hefur göngu sína á morgun. Hún
hefur einnig landað hlutverki í sinni fyrstu bíómynd, Vonarstræti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ingrid og Larissa Reis eru æfingafélagar og
vinkonur. Þegar Ingrid frétti af því að Lar-
issa væri að koma hingað bað hún um að fá
að koma með,“ segir Hjalti Úrsus um komu
vaxtarræktarkonunnar og True Blood-leik-
konunnar Ingrid Romero til landsins.
Ingrid, Larissa og Ronnie Coleman eru öll
væntanleg hingað til lands til að taka þátt í
Icelandic Fitness and Health Expo sem fer
fram í Mosfellsbæ dagana 10. til 11. nóvem-
ber næstkomandi. „Bæði Larissa og Ingrid
verða með námskeið í boði fyrir þá sem vilja,
en auk þess ætla þær að sýna sínu íturvöxnu
líkama og gefa eiginhandaráritanir,“ segir
Hjalti.
Ingrid leikur vampíru í fjórðu seríunni af
True Blood, sem er sýnd á Stöð 2 þessa dag-
ana. Hún hefur starfað sem fyrirsæta meira
og minna frá ellefu ára aldri og hefur í seinni
tíð náð frábærum árangri í vaxtarrækt og
bikiníhönnun. Hún eignaðist tvíburadrengi 6.
apríl síðastliðinn og vakti mikla athygli fyrir
það hversu skamman tíma það tók hana að
komast aftur í gott form. - trs
True Blood leikkona á Expó
INGRID ROMERO True Blood-leikkonan verður í Mosfellsbæ dagana
10. og 11. nóvember næstkomandi.
Theódóra Mjöll Skúladóttir Jack
Aldur: 26 ára.
Starf: Hárgreiðslu-
kona og nemi
í vöruhönnun í
Listaháskóla Íslands.
Fjölskylda:
Eiginmaðurinn heitir
Emil Örvar Jónsson,
lögfræðinemi í HÍ. Þau eiga einn
ónefndan dreng sem fæddist á
fimmtudaginn og hundana Tinna
og Kola.
Foreldrar: Ella Jack hjúkrunarfræð-
ingur og Skúli Torfason tannlæknir
Búseta: Úthlíð 9.
Stjörnumerki Vog.
Theódóra hefur gefið út bókina Hárið, þar
sem hún fjallar um hár og hárumhirðu.
Hljómsveitin Lockerbie leggur upp
í sinn fyrsta Evróputúr miðviku-
daginn næsta, þann 18. október.
Lockerbie sendi frá sér sína
fyrstu breiðskífu, Ólgusjó, síðasta
sumar á Íslandi. Í kjölfarið skrif-
uðu meðlimir sveitarinnar undir
samning við þýska útgáfufyrir-
tækið Kapitan Platte og var Ólgu-
sjór gefin út út í þýskumælandi
löndum Evrópu í vor. Tilgangur-
inn með utanför Lockerbie nú er
að fylgja þeirri útgáfu eftir. Sveit-
in kemur fram á átta tónleikum í
fimm löndum, Þýskalandi, Sviss,
Ítalíu, Ungverjalandi og Tékklandi.
Þá kemur sveitin einnig fram á Ice-
land Airwaves-hátíðinni þar sem
hún er bæði á aðaldagskránni og
svokallaðri „off venue“-dagskrá.
Lockerbie heldur
utan til Evrópu
LOCKERBIE Sveitin hyggst fylgja eftir útkomu fyrstu plötu sinnar, Ólgusjós, í Evrópu.
Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson samdi
lag við ljóð móður sinnar Rögnu Erlendsdóttir
á þriðju sólóplötu sinni, Þar sem himin ber við
haf, sem kemur út á næstu dögum.
Ragna er meðlimur í tónlistarbandi eldri
borgara í Þorlákshöfn, Tónar og trix, og það
spilar einmitt undir í laginu. „Mamma var
búin að semja ljóð sem fjallar um að búa við
hafið og mér fannst það svo fallegt,“ segir
Jónas. „Ég hugsaði með mér að þetta yrði nú að
vera eitt lag á plötunni. Þannig að ég samdi lag
við ljóðið hennar mömmu, Tónar við hafið. Það
stingur svolítið í stúf við hin lögin á plötunni
en hugmyndalega þá passar það alveg.“
Aðspurður segir Jónas að mamma hans sé
alveg í skýjunum yfir laginu. „Hún var rosa-
lega glöð og þau öll í bandinu þegar þau heyrðu
lagið. Það var dásamlegt augnablik þegar ég
setti heyrnartól á mömmu og spilaði fyrir
hana. Það er með því betra sem ég hef upp-
lifað.“
Plötu Jónasar verður fylgt eftir með risa-
tónleikum í Reiðhöll Þorlákshafnar helgina
19. og 20. október þar sem Lúðrasveit Þorláks-
hafnar kemur fram, en hún spilar undir á plöt-
unni. Nú þegar er uppselt á fyrri tónleikana.
Allt samfélagið ætlar að taka þátt í að gera
þennan viðburð ógleymanlegan, en Jónas er
uppalinn í bænum. „Þetta verða flottir tón-
leikar með „surround“-kerfi, vídeósýningu og
öllum græjum,“ segir hann og hlakkar mikið
til. - fb
Samdi lag við ljóð mömmu
MÖMMUSTRÁKUR Jónas Sigurðsson er í þann mund
að gefa út plötuna Þar sem himin ber við haf.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Skipholti 29A / andartak@andartak.is / www.andartak.is / 896 2396
KUNDALINI JÓGA
Djúpt andartak...
...er lífið sjálft. Í gegnum andartakið færðu
beint samband við hugann, flæðið innra með
þér og eilífðina í augnablikinu.
Lyftu orkunni
og finndu þína innri gleði
ANDARTAK Jóga og hei l sustöð
Byrjendanámskeið í Kundalini jóga, Orka og andleg næring,
Vertu meistari huga þíns, Bollywood og Bhangara dans og Yoga nidra