Fréttablaðið - 26.10.2012, Side 6
26. október 2012 FÖSTUDAGUR6
Smiðjuvegi 2 · Kópavogi
Sími 544 2121
www.rumgott.is
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 11-16
Löggiltir dýnuframleiðendur
– Starfandi í 60 ár
m
Einbreitt - verð
frá:
131.985
Tvíbreitt - verð
frá:
228.488
12 mánaða vaxtalaus greiðsludreifing
Einbreitt rúm, verð frá: 11.724 k r. á mán.
Tvíbreitt rúm, verð frá: 20.047 kr. á mán.
30
-5
0%
A
FS
LÁ
TT
UR
AF
Ö
LL
UM
R
ÚM
UM
Draumey
Íslenskt heilsurú
m
Einbreitt - verð
frá:
70.224
Einbreitt rúm, verð frá: 6.397 k r. á mán.
Tvíbreitt rúm, v erð frá: 11.497 kr. á mán.
Classic
Svæðaskipt heils
urúm
Einbreitt - verð
frá:
190.049
Tvíbreitt - verð
frá:
346.995
Allt að
61.129 kr.
AFSLÁTTUR
Einbreitt rúm, verð frá: 16.732 kr. á m án.
Tvíbreitt rúm, verð frá: 30.268 kr. á m án.
FAGLEG RÁÐGJÖF OG FRÍ LEGUGREINING
Komdu í heimsókn, prófaðu legugreininguna og fáðu faglega
ráðgjöf um val á heilsudýnum, án skuldbindinga!
12 mánaða vaxtalaus greiðsludreifing
Allt að
178.956 kr.
AFSLÁTTUR
Tvíbreitt - verð
frá:
12 mánaða vaxtalaus greiðsludr ie fing
129.360
Svæðaskipt heils
urú
Draumur
Allt að
111.423 kr.
AFSLÁTTUR
VEISTU SVARIÐ?
STJÓRNMÁL Hanna Birna Krist-
jánsdóttir nýtur langmests fylgis
stuðningsmanna Sjálfstæðis-
flokksins til að leiða annan hvorn
lista flokksins í alþingiskosning-
unum á næsta
ári. Þetta er
niðurstaða
könnunar sem
MMR gerði
fyrir Viðskipta-
blaðið.
Samkvæmt
könnuninni
vilja 76,2%
stuðnings-
manna flokks-
ins að Hanna Birna leiði annan
listann, 10% nefna Illuga Gunn-
arsson og 7,6% Guðlaug Þór
Þórðarson. Um 1% nefndi Birgi
Ármannsson. 25,9% aðspurðra
vildu engan kostinn. Þegar spurt
var hver fólk vildi að leiddi listann
í hinu Reykjavíkurkjördæminu
var Illugi efstur með 28,9% og
Guðlaugur í öðru sæti með 21%. - sh
JARÐHRÆRINGAR „Óvissuástand þýðir að
allir þeir sem eiga eitthvað hlutverk
í viðbragðskerfi Almannavarna fara
yfir sínar áætlanir og búnað,“ segir
Sigurður Brynjúlfsson, yfirlögreglu-
þjónn á Húsavík. Óvissuástandi var
lýst yfir af Almannavörnum á miðviku-
dag vegna jarðskjálftanna undanfarna
viku.
Skjálftarnir sem eiga upptök sín
í Húsavíkurmisgenginu hafa verið
að færast austur eftir misgenginu á
undan förnum dögum. Um síðustu helgi
var skjálftamiðjan rétt norðaustan
Siglufjarðar.
„Þetta misgengisbelti sem liggur
þarna liggur beint undir Húsavík.
Húsavík stendur nánast ofan í þessum
sprungum,“ segir Páll Einarsson, pró-
fessor í jarðeðlisfræði við Háskóla
Íslands. „Í bænum er jarðskjálftahætta
umtalsverð og það þykir alltaf alvöru-
mál þegar þetta kerfi fer af stað.“
Eftir Kröflugosið árið 1984 hefur
þetta skjálftakerfi verið þögult en
hefur verið að vakna til lífsins á síð-
ustu árum. Páll segir að búast megi við
einum sjö stiga skjálfta þar á hverri
öld.
„Þessi skjálftavirkni sem var um síð-
ustu helgi var á vesturenda misgeng-
isins, eins langt frá Húsavík og hægt
er að komast. En virknin fikraði sig
til austurs á þriðjudag og miðvikudag.
Það er þróun sem vert er að fylgjast
með.“
Óvissuástandi var lýst yfir vegna
þess að talið er að uppsöfnuð spenna í
misgenginu sé næg til að framkalla 6,9
stiga jarðskjálfta. „Það er bara spurn-
ing hvort við séum farin að nálgast
brotmörk misgengisins og hvort það
fari að hrökkva. Það vitum við sáralítið
um og getum því ekki spáð einhverju
sérstöku,“ segir Páll.
birgirh@frettabladid.is
Ganga í hús og hvetja fólk til
að búa sig undir jarðskjálfta
Viðbragðskerfi Almannavarna virkjað við Skjálfanda vegna yfirvofandi jarðskjálfta. Almannavarnir ganga
í hús og brýna fyrir fólki að undirbúa sig. Óvissan um framhaldið heldur jarðfræðingum á tánum.
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
Vinsælust í efsta sætið:
Hanna Birna
langvinsælust
STJÓRNMÁL Alls 85% Akureyringa
vilja að Höskuldur Þórhallsson
leiði Framsóknarflokkinn í kjör-
dæminu. 15% vilja Sigmund Davíð
Gunnlaugsson.
Þetta eru niðurstöður úr Gal-
lup-könnun sem gerð var meðal
rúmlega þúsund íbúa á Akur-
eyri og í nágrenni. Alls svöruðu
699 spurningunni. Frá þessu er
greint í blaðinu Vikudegi. Þar er
sagt að stuðningsmenn Höskulds
fagni könnuninni, en stuðnings-
menn Sigmundar segi óeðlilegt að
kanna fylgið á afmörkuðu svæði
í kjördæminu. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá í gær er búist við
deilum um hvernig valið verður á
lista í kjördæminu, en kjördæmis-
þing ákveður það um helgina. - þeb
Könnun um fylgi á Akureyri:
Akureyringar
vilja Höskuld
1. Um hvað takast framsóknar-
menn á kjördæmisþingi á Norð-
austurlandi á um helgina?
2. Hvernig mengun hefur greinst í
Elliðavatni?
3. Af hverju var lögð lykkja á
göngustíg við Vesturlandsveg?
SVÖRIN
„Fyrstu viðbrögðin voru að kynna fræðsluefni um jarðskjálfta í öllum
skólum og stærri stofnunum hérna. Menn voru beðnir um að yfirfara
viðbragðsáætlanir hjá sér,“ segir Sigurður Brynjúlfsson, yfirlögreglu-
þjónn á Húsavík. „Flestar stofnanir eins og dvalarheimili aldraðra og
sjúkrahús eiga sínar viðbragðsáætlanir um húsrýmingar og slíkt.“
Síðdegis í gær var forvarnarbæklingur prentaður og honum dreift
á svæðinu sem skilgreint hefur verið sem hættusvæði. Húsavíkurbær
og sveitabæir við Skjálfandaflóa eru innan þess svæðis. „Sveitunum
hérna var skipt niður í svæði og félagasamtök voru fengin til þess
að ganga í hús, dreifa bæklingnum, banka upp á og spjalla aðeins
við fólk,“ segir Sigurður. „Það er forvörn svo að fólk líti í sitt nærum-
hverfi, til sinna nánustu og búi sig undir að lágmarka tjón.“
Óvissustigið er undirbúningur
„Litlir skjálftar losa ekki um mikla
spennu. Spennan hleðst upp vegna
þess að flekarnir eru að hreyfast,“
segir Páll Einarsson, prófessor í
jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands.
Hann segir að spennan sé alltaf að
hlaðast upp á milli Ameríkuflekans og
Evrasíuflekans. „Það er bara spurning
hvort við séum farin að nálgast
brotmörk misgengisins og hvort það
fari að hrökkva. Það vitum við sáralítið
um og getum því ekki spáð einhverju
sérstöku.“
Spennan magnast
KRAFLA
Megineldstöðin
Krafla gaus
síðast árið
1984.
Grímsey
SKJÁLFANDI
ÖXARFJÖRÐUR
GJÖGUR
TJÖRNES
MELRAKKASLÉTTA
Kolbeinseyjar-
hryggur
Norðurgos-
beltið
Flatey
Húsavík
Sú gerð flekamóta
þegar flekarnir færast
í sína áttina hvor,
samsíða hvor öðrum.
Sniðgengi
Ameríkuflekinn og Evrasíu-
flekinn eru að færast í
sundur. Þess konar fleka-
mót eru kölluð siggengi.
Siggengi
Flekaskil á Íslandi
Húsavíkur-Flateyjar beltið
Dalvíkurbeltið
Grímseyjarbeltið
Flekaskilin nyrðra
1. Um leiðir til að velja á framboðslista.
2. Saurmengun langt yfir mörkum.
3. Til að raska ekki ró álfa í Grásteini.
TJÖRNESBROTABELTIÐ er þver-
brotabelti sem tengir saman Norður-
gosbeltið og Kolbeinseyjarhrygg. Það
er samsett úr þremur skjálftabeltum
með norðvestlæga stefnu.
■ Grímseyjarbeltið
■ Húsavíkur-Flateyjar beltið
■ Dalvíkurbeltið
Reykjaneshryggur
Kolbeinseyjarhryggur
Norðurgos-
beltið
Skjálftavirknin hefur mest verið vestast á
Húsavíkur-Flateyjar beltinu undanfarna daga.
Virknin hefur svo færst austar eftir sama belti.
ALÞINGI Skerðingar á greiðslum til
elli- og örorkulífeyrisþega ganga
ekki til baka nema í tengslum við
heildarendurskoðun á almanna-
tryggingakerfinu. Þetta kom fram
í svari Guðbjarts Hannessonar
velferðarráðherra í óundirbúnum
fyrirspurnum á alþingi í gær.
Birgir Þórarinsson, varaþing-
maður Framsóknarflokks fyrir
Sigurð Inga Þórhallsson, spurði
hvenær þess væri að vænta að
afnumin yrðu bráðabirgðaákvæði
um að taka lífeyris skerði bætur
almannatryggingar. Hann benti
á að þótt tekjutenging skerðingar
hefði ekki áhrif
nema ef lífeyris-
greiðslur væru
yfir 200 þús-
und krónum á
mánuði, þá væri
þarna um að
tefla upphæðir
sem hefðu veru-
leg áhrif á kjör
margra eldri
borgara. Þeir
hefðu í hruninu orðið fyrir meiri
kjaraskerðingu en margir aðrir
hópar.
Guðbjartur benti á að endur-
skoðun væri í gangi og hluti af
því sem menn vildu ná fram
væri að ávinningurinn af því að
hafa greitt í lífeyrissjóð skilaði
sér til eldri borgara og öryrkja.
„Við deilum ekki um það að það
á að sjálfsögðu að tryggja að
lækkanir til eldri borgara gangi
til baka,“ sagði hann og kvað
hug myndirnar um breytingar á
almannatryggingakerfinu ganga
út á að ávinningurinn af líf-
eyrissjóðunum yrði sýnilegur.
„Hvenær þetta gengur til baka
hangir saman við heildarendur-
skoðunina.“ - óká
Skerðing vegna lífeyris tekin fyrir í heildarendurskoðun á kerfi almannatrygginga:
Lækkanir eiga að ganga til baka
BIRGIR
ÞÓRARINSSON
DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi
í gær Magnús Guðmundsson,
fyrrverandi bankastjóra Kaup-
þings í Lúxemborg, til að greiða
þrotabúi Kaupþings 717 milljónir
króna sem hann fékk að láni til að
kaupa hlutabréf í bankanum.
Persónuleg ábyrgð af lánum
til starfsmanna vegna slíkra
hlutabréfakaupa var felld niður
af stjórn bankans skömmu fyrir
hrun en slitastjórnin ákvað að
rifta þeirri niðurfellingu og
dómstólar hafa fallist á að sú
ákvörðun hafi verið réttmæt. - sh
Hæstiréttur staðfestir dóm:
Þarf að borga
717 milljónir