Fréttablaðið - 26.10.2012, Síða 10
26. október 2012 FÖSTUDAGUR10
Umboðsmenn
FRÉTTASKÝRING: Hlutafjárútboð í Eimskip
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@fréttabladid.is
Stóru lífeyrissjóðirnir tveir
sem neituðu að kaupa í Eim-
skip vegna kauprétta keyptu
báðir í Högum í fyrra, þrátt
fyrir að stjórnendur Haga
hefðu fengið kauprétti.
Umfangið skiptir máli, segir
framkvæmdastjóri LSR.
Virði kauprétta í Eimskip
allt að tveir milljarðar.
Stóru lífeyrissjóðirnir tveir, Líf-
eyris sjóður starfsmanna ríkisins
(LSR) og Gildi, sem neituðu að
kaupa hluti í Eimskip vegna kaup-
réttarsamninga stjórnenda félags-
ins keyptu mest allra í Högum þegar
það félag fór á markað í desemb-
er. Fimm stjórnendur Haga fengu
1,4 prósenta hlut í félaginu endur-
gjaldslaust frá Arion banka áður en
Hagar voru skráðir á markað. Virði
þess hlutar, miðað við gengi Haga í
dag, er um 338 milljónir króna. Það
hefur tvöfaldast frá því stjórnend-
urnir fimm fengu hlutina. Þeir voru
einungis bundnir til að eiga bréfin
fram á mitt þetta ár.
Stjórnendur Eimskips ákváðu í
gær að falla frá kaupréttum sínum
í kjölfar þeirrar miklu óánægju sem
reis upp vegna veitingar þeirra.
Gríðarlegar fjárhæðir
Kaupréttarkerfið sem Eimskip setti
af stað á árunum 2010 og 2011 fyrir
lykilstjórnendur sína var vissulega
mun umfangsmeira en það sem er
í gildi hjá Högum. Alls er búið að
veita kauprétti sem jafngilda 4,38
prósentum af heildarhlutafé og
höfðu stjórnendurnir þegar áunnið
sér alls 1,9 prósenta hlut. Virði þess
hlutar sem stjórnendurnir höfðu
fengið veitta kauprétti að er 1,7
til 1,9 milljarðar króna miðað við
útboðsgengið en stjórnendurnir
áttu að fá tugprósenta afslátt á
bréfunum.
Fimm stjórnendur Haga fengu til
samanburðar 1,4 prósenta hlut gef-
ins frá Arion banka, sem hafði áður
yfirtekið félagið, áður en Hagar
voru skráðir á markað. Tveir þeirra,
þeir Finnur Árnason forstjóri og
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, voru á meðal
þriggja stjórnenda sem höfðu áður
selt hluti í Högum til félagsins sjálfs
á rúmlega einn milljarð króna. Þetta
átti sér stað á árunum 2008 og 2009.
Þeir fengu því gefins hlutabréf í
félagi sem þeir höfðu selt bréf í með
miklum hagnaði skömmu áður.
Umfangið skiptir máli
Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri LSR, segir að sjóð-
urinn hafi fjallað um kaup í Eim-
skip á þeim forsendum sem voru til
staðar í kynningu á bréfunum. „Við
ákváðum að taka ekki þátt annars
vegar vegna þess að okkur fannst
verðið vera fullhátt og hins vegar út
af kaupréttarsamningunum.“
Aðspurður um ástæður þess að
LSR ákvað að fjárfesta í Högum
en ekki Eimskip, þrátt fyrir að
kaupréttir stjórnenda hefðu verið
fyrir hendi í báðum tilvikum, segir
Haukur það metið í hverju tilviki
fyrir sig hvort keypt sé eða ekki. „Í
tilviki Eimskips fannst okkur kaup-
réttarsamningarnir vera komnir út
fyrir öll eðlileg mörk. Við höfum
ekki sagt að kaupréttarsamningar
séu eitthvað sem við vildum alls
ekki hafa. Það er umfang þeirra í
þessu tilviki sem við töldum vera
komið út fyrir öll eðlileg mörk.“
Fagna ákvörðuninni
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
keypti fjórtán prósenta hlut í Eim-
skip í júlí síðastliðnum á 5,7 millj-
arða króna. Sjóðurinn hefur þegar
hagnast töluvert á viðskiptunum ef
miðað er við útboðsgengið, en alls
á hann 14,6 prósenta hlut. Í yfirlýs-
ingu í gær sagðist sjóðurinn ekki
hafa átt aðild að stjórn Eimskips
þegar ákvarðanir voru teknar um
kaupréttina.
Helgi Magnússon, stjórnarfor-
maður Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, segist fagna því að hætt
hafi verið við kaupréttina. „Ég tel að
þessi ákvörðun verði til góðs fyrir
félagið. Það er mjög mikilvægt að
góður friður og sátt ríki um Eim-
skip milli stjórnenda og markaðar-
ins. Þessi ákvörðun er til þess fallin
að auka sátt og traust á milli aðila.“
Kaupréttir Eimskips voru of háir
EIMSKIP Kaupréttarsamningar sem veittir voru æðstu stjórnendum Eimskips áttu
þátt í því að tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins tóku ekki þátt í útboði á hlutabréfum
fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þrátt fyrir að bæði LSR og Gildi, sem eru tveir af þremur stærstu lífeyrissjóðum landsins, hafi ákveðið að taka ekki þátt
í hlutafjárútboði Eimskips var umframeftirspurn eftir bréfunum. Alls bauðst völdum fagfjárfestum, að mestu lífeyris-
sjóðum, að kaupa 20 prósenta hlut. Tilboðum var tekið fyrir 8,3 milljarða króna á verðinu 208 krónur, sem er mjög
nálægt lægri mörkum útboðsgengisins. Á þriðjudag mun síðan hefjast almennt útboð þar sem almenningi gefst
kostur á að skrá sig fyrir alls fimm prósenta hlut á sama gengi og var í útboðinu sem lauk í gær.
Umframeftirspurn en gengið nálægt lægri mörkum