Fréttablaðið - 26.10.2012, Síða 18
18 26. október 2012 FÖSTUDAGUR
Höfundur Staksteina Morgunblaðsins 24. október velur að hreyta ónotum í
Samtök iðnaðarins vegna áralangrar stefnu
samtakanna í Evrópumálum en
SI sér ekki bjarta framtíð fyrir
íslenskt viðskiptalíf og þjóðlíf
með íslenskri krónu og gjald-
eyris höftum.
Ég hef átt sæti í stjórn SI í 12
ár, þar af síðustu sex árin sem for-
maður þar til fyrr á þessu ári. Því
hef ég átt aðild að ákvörðunum
um herferðir SI undir kjörorð-
unum Veljum íslenskt og Íslenskt,
já takk. Tilgangur þeirra hefur
verið að styrkja íslenskan iðnað,
efla atvinnu og auka hagvöxt.
Nú er svipuð herferð í gangi hjá
Frökkum, þeirra iðnaði til fram-
dráttar. Hún hefur valdið ólund
hjá Staksteinahöfundi sem dylgjar
af því tilefni um að SI hafi reynt
að „heilaþvo“ félagsmenn sína.
Einnig segir að forystumenn þessara sam-
taka hafi eytt „óheyrilegum fjármunum“
í herferðir til að sannfæra landsmenn um
nauðsyn þess að gengið verði í ESB.
Mér er til efs að höfundur Staksteina
hafi vitneskju um útgjöld SI vegna ein-
stakra verkefna. Þá er það háð mati hvenær
fjárhæðir teljast „óheyrilegar“ og hvenær
ekki. Ég er sannfærður um að SI hefur ekki
varið „óheyrilegum fjármunum“
vegna Evrópuumræðunnar. Það
er hins vegar skoðun mín að eig-
endur Morgunblaðsins hafi varið
„óheyrilegum fjármunum“ í að
standa undir taprekstri blaðsins
hin síðari ár eftir að fyrirtækið
endurholdgaðist með stór felldum
niðurfellingum skulda þegar nýir
eigendur komu að blaðinu. Margir
halda því fram að þeir hafi allt
aðra sýn á Evrópumálin en t.d.
Samtök iðnaðarins hafa, enda
tengjast þeir flestir sjávarútvegi.
Ég er einn af þessum 30 þúsund
kaupendum Morgunblaðsins sem
fá blaðið í hendur sex daga vik-
unnar þar sem nær hvern dag
er haldið fram stífri andstöðu
við Evrópu með öllum tiltækum
ráðum. Ég ætla ekki að ganga svo langt að
líkja and-Evrópu-trúboði Morgunblaðsins
við „heilaþvott“ en öllum má vera ljóst að
verið er að þjóna hagsmunum þeirra sem
verja „óheyrilegum fjármunum“ í að standa
undir rekstrartapi blaðsins.
Mér er til efs
að höfundur
Staksteina
hafi vitneskju
um útgjöld
SI vegna
einstakra
verkefna.
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
Staksteinum kastað úr glerhúsi
Evrópumál
Helgi
Magnússon
framkvæmdastjóri
og fv. formaður SI
KRINGLUNNI OG KAUPTÚNI – WWW.TEKK.IS
NOEL – JÓLAILMURINN 2012
FRÁ CRABTREE& EVELYN KOMINN
H
uginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður Steingríms
J. Sigfússonar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra,
skrifaði grein í Fréttablaðið í gær þar sem hann lýsir efa-
semdum um virkni innstæðutryggingakerfis. Þar segir
hann að „til framtíðar væri því rétt að festa í lög forgang
sparifjáreigenda í þrotabú fallinna fjármálastofnana og leggja niður
Tryggingarsjóð innstæðueigenda“.
Hann tengir þessa skoðun sína síðan við umræðuna um aðskilnað
fjárfestinga- og viðskiptabanka og segir þau markmið sem búa að
baki slíkum aðskilnaði séu tryggð. Á sama tíma verði ábyrgð ríkis-
sjóðs á bankakerfinu afnumin fyrir fullt og allt.
Að lokum stingur Huginn upp á því að þær upphæðir sem bankar
borga í Tryggingarsjóðinn í dag renni til ríkisins til að mæta „þeirri
skuldsetningu sem ríkissjóður varð fyrir þegar íslenska efnahags-
undrið hrundi“.
Grein Hugins er ítarlegri
útfærsla á sambærilegri hugmynd
sem ráðherrann hans setti fram
í grein í Financial Times fyrir
skemmstu. Með þessum skrifum
lýsa skoðanabræðurnir sýn sem
er sprottin upp úr þeim neyðarað-
gerðum sem Íslendingar gripu til
við fall bankanna og reynslu þeirra
af því að glíma við Icesave-málið alla tíð síðan.
Þótt hugmyndin sé ágætt innlegg í umræðuna þá hefur hún aug-
ljósa galla. Það eru líkast til allir sammála um að það verði að finna
leiðir til að afnema ríkisábyrgð á bankakerfinu. Það má ekki gerast
aftur að mikilmennskubrjálæði sjálfvottaðra fjármálasnillinga sendi
heilt hagkerfi á efnahagslega gjörgæsludeild. Það á enginn að vera
of feitur til að falla. En leiðin að þessu markmiði er ekki sú að grípa
til sérlausna fyrir Ísland.
Hvort sem fólki líkar það betur eða verr þá er Ísland hluti af hinum
alþjóðlega fjármálaheimi. Ef Ísland ákveður, eitt landa, að forgangs-
tryggja innstæður mun það einfaldlega leiða til þess að lánakjör
íslenskra fjármálastofnana á erlendu lánsfjármagni verður dýrara.
Það mun aftur leiða til þess að vextir á lánum til einstaklinga og fyrir-
tækja verða dýrari. Sem leiðir til þess að stærstu fyrirtæki landsins,
sem flest kjósa að gera upp í annarri mynt en krónu, færa viðskipti
sín til erlendra banka. Þessi leið myndi vissulega leysa spurninguna
um aðskilnað milli fjárfestinga- og viðskiptabanka vegna þess að fjár-
festingabankastarfsemin myndi líkast til flytjast að fullu frá landinu.
Það myndi draga úr hagvexti. Og koll af kolli.
Þá vaknar líka spurning um hvernig alger forgangur innstæðu-
eigenda ætti að ríma við sértryggðar skuldabréfaútgáfur sem tveir
stóru bankanna hafa þegar ráðist í og sá þriðji bíður eftir leyfi fyrir.
Í þeim eru ákveðin söfn húsnæðislána sett sem tryggingar. Mun for-
gangur innstæðueigenda trompa rétt kaupenda þeirra bréfa?
Það vakna líka spurningar um hvað ætti að gera með það fé sem
hefur verið greitt í fyrirhugað tryggingainnstæðukerfi. Er í lagi að
rukka inn undir ákveðnum formerkjum, falla síðan frá þeim en hirða
féð? Er tilhneiging Íslands til að breyta reglunum eftir á ekki lengur
bundin við neyðarástand heldur orðin einhvers konar áskilinn réttur
ráðamanna?
Hugmyndin um forgang innstæðueigenda er ágæt, sérstaklega í
ljósi þeirrar reynslu sem Íslendingar hafa gengið í gegnum. En hún
þyrfti að vera framkvæmd í sátt og samstarfi við alþjóðasamfélagið.
Annað myndi einangra Ísland og valda þjóðinni skaða.
Forgangstrygging á innstæðum hefur vankanta:
Leið að einangrun
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
SKOÐUN
Eitthvað klikkaði
Fáir Íslendingar hafa meiri áhuga á
lýðræðinu en Ólafur Ragnar Gríms-
son. Undanfarin ár, þegar eitthvað
lýðræðislegt hefur verið á seyði í
þjóðfélaginu, til dæmis þjóðarat-
kvæðagreiðslur, hefur forsetinn verið
tíður gestur í fjölmiðlum, innlendum
og ekki síður erlendum, og talað þar
um mikilvægi þess að þjóðarviljinn
nái fram að ganga. Nú er nýafstaðin
þjóðaratkvæðagreiðsla, en Ólafur
Ragnar hefur sig hvergi bært. Hér
hefur eitthvað klikkað, annað-
hvort fjölmiðlarnir heima
og heiman eða PR-menn
forsetans.
Nóg að gera
Það er reyndar ekki svo að skilja að
forsetinn hafi setið auðum höndum.
Liðna viku hefur hann fundað mjög
stíft með rússneskum, finnskum og
kanadískum ráðamönnum um mál-
efni norðurslóða. Svo hefur hann líka
hitt að máli menn frá Indlandi
og Papúu Nýju-Gíneu og
rætt við þá um orkumál.
Stundum þarf lýðræðis-
talið bara undan að láta.
Hresst
Björn Valur Gíslason talar enga
tæpitungu í viðtali við Herðubreið.
Ögmund skortir leiðtogahæfileika,
Ásmundur, Lilja og Atli kiknuðu
undan álagi og sýndu óábyrgð með
því að yfirgefa Vinstri græn, Sam-
fylkingin var „á hraðri leið til
helvítis“ áður en hún komst
í hlýjan faðm VG. Þetta er
skemmtileg söguskoðun
og ekki oft sem menn
tala jafnopinskátt um
vandamál í eigin flokki og
stjórnarsamstarfi. Hvað sem
er hæft í öllu saman.
stigur@frettabladid.is