Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 36
6 • LÍFIÐ 26. OKTÓBER 2012
VALDÍS KONRÁÐSDÓTTIR
ALDUR? 34 ára
STARF? Leiðbeinandi í Krikaskóla.
HJÚSKAPARSTAÐA? Ég er gift Ellerti
Jóni Þórarinssyni, hann er golfvallar-
fræðingur á Brautarholti.
BÖRN? Við eigum þrjár dætur, Hildi
Maríu 13 ára, Katrínu Agnesi 11 ára
og Kamillu Aldísi 5 ára.
HVAÐAN ERTU? Fyrstu árin mín bjó ég
í Hrísey og flutti svo þaðan til Akur-
eyrar þar sem að ég ólst upp.
FORELDRAR? Konráð Þ. Alfreðsson og
Agnes Guðnadóttir og eru þau búsett
á Akureyri.
SYSTKINI? Ég á tvö eldri systkini, þau
Guðna og Láru.
BÚSETA? Eftir fimm ára búsetu í Nor-
egi fluttum við heim árið 2008 og þá í
Mosfellsbæinn þar sem við erum bú-
sett núna og líður okkur afar vel þar.
Móðir Valdísar, Agnes Guðna dóttir,
greindist með brjóstakrabbamein
árið 1997, þá fjörutíu og fimm ára
gömul. Fór hún í kjölfarið í fleygskurð
og geislameðferð með ágætum ár-
angri. Ellefu árum síðar greindist
hún á ný og var þá brjóstið fjar-
lægt. Móðir hennar og amma Val-
dísar, Anna Bergþórsdóttir, lést úr
þessum sama sjúkdómi í mars 1997.
„Systkini hennar voru þá bæði látin
úr krabbameini. Bróðurdóttir ömmu
var aðeins 31 árs og ólétt þegar hún
greindist með brjóstakrabbamein
og hóf hún baráttu sína gegn sjúk-
dómnum daginn eftir fæðingu barns
síns og hélt þeirri baráttu stanslaust
áfram í sjö ár eða þar til hún lést árið
1998, aðeins 38 ára gömul.“
Vissi ekki að krabbamein
gæti verið genatengt
Valdís hafði verið búsett í Noregi
ásamt fjölskyldu sinni en flutti heim
árið 2008, eða þegar móðir hennar
greindist í annað sinn. „Á þessum
tíma fór ég að velta fyrir mér hvort
ég, þá orðin þrítug, ætti eða gæti
verið í auknu eftirliti miðað við fjöl-
skyldusöguna. Ég hringdi á Leitar-
stöðina og þá var mér bent á að tala
við Vigdísi Stefánsdóttur, erfðaráð-
gjafa hjá Landspítalanum. Þarna vissi
ég ekki að krabbamein gæti verið
genatengt.“
Valdís fór í viðtal til Vig dísar sem
og Óskars Þórs Jóhanns sonar
krabbameinslæknis, þar sem ættar-
saga hennar var rakin. Í kjöl farið
kom móðir hennar suður og fór í
viðtal og blóðprufu. Blóðrannsókn
sýndi að hún væri BRCA2-arfberi.
„Þær konur sem eru með BRCA2-
erfðavísi eru líklegri til að fá brjósta-
krabbamein á lífsleiðinni og einnig
eggjastokkakrabbamein (þó fer það
svolítið eftir fjölskyldum). Hjá karl-
mönnum er hættan á krabbameini
í brisi eða í blöðruhálskirtli. Fimmtíu
prósenta líkur eru á því að þetta gen
erfist til barna hvort sem er um konu
eða karl að ræða. Síðustu ár hef ég
heyrt ýmsar prósentutölur eða allt frá
sextíu og upp í níutíu prósent auknar
líkur á brjóstakrabbameini.“
Áfallið
„Strax eftir að mamma var búin að
greinast með breytt BRCA2-gen
var sent bréf til allrar móðurættar-
innar. Þar á meðal til þriggja systra
mömmu og til okkar systkinanna.
Svo heppilega vildi til að enginn
annar greindist með BRCA2-breyt-
ingu nema mamma og ég. Þetta var
vissulega áfall en innst inni vissi ég
þetta einhvern veginn. Eftir grein-
inguna tók við aukið eftirlit, mynda-
tökur og blóðprufur. Það reyndi
mikið á bæði mig og alla í kringum
mig að fara í myndatöku á sex mán-Mæðgurnar Agnes og Valdís á góðri stundu.
Valdís rétt eftir aðgerðina, en hún lá í fimm daga á spítala.
LÉT FJARLÆGJA
BRJÓSTIN AF ÓTTA
VIÐ KRABBAMEIN
Ég fæ illt í
hjartað þegar
ég hugsa til
þess að hún sé
með ólæknandi
krabbamein.
Hún er svo
ótrúlega sterk
og dugleg.
október á hverju ári snýr þjóðin bökum saman og sýnir konum þessa lands sem háð hafa baráttu við brjósta-
krabbamein stuðning og minnist þeirra sem sjúkdómurinn hefur fellt ásamt því að auka vitund kvenna almennt
um sjúkdóminn. Innlegg Lífsins er saga hinnar hugrökku Valdísar Konráðsdóttur en hún tók örlögin í eigin hendur ef
svo má segja og fór í mikla forvarnaaðgerð þar sem löng og mikil saga um krabbamein er í fjölskyldunni.