Fréttablaðið - 26.10.2012, Side 39

Fréttablaðið - 26.10.2012, Side 39
Sjá nánar á visir.is/lifid „Við Edda settumst niður árið 2004 og unnum beina- grind að námskeiðunum sem við höfum svo aðlagað eftir þörfum,“ segir íþróttafræðingurinn og jógakenn- arinn Bjargey Aðalsteinsdóttir. Námskeiðin heita Ný og betri og eru ýmist í boði fyrir konur og pör. Gestafyrir- lesararnir eru nokkrir og í febrúar verður Edda með í för. Þá verður haldið til Tenerife og er sú ferð einungis hugsuð fyrir konur. Í júní verður svo boðið upp á para- ferð og þá verður Ásdís Olsen, sem hefur fjallað vítt og breitt um hamingjuna, Bjargeyju innan handar. „Þá erum við með nýja ferð á prjónunum sem hefur fengið nafnið Ný og betri exotic, en við eigum eftir að móta hana frekar,“ segir Bjargey. Á námskeiðunum er fléttað saman hreyfingu, nær- ingarfræði og lífsstílsfyrirlestrum. „Við byrjum alla morgna á hreyfingu niðri á strönd og er það upp lifun sem flestir kunna að meta, enda höfum við Íslend- ingar sjaldan tækifæri til þess að gera morgunæfingar á ströndinni. Við förum í gönguferðir og gerum jóga. Næst tekur við góður morgunverður og gefum við okkur góðan tíma í hann enda leggjum við mikið upp úr því að það sé ekkert stress. Í kjölfarið er boðið upp á fyrirlestra en formlegri dagskrá lýkur klukkan hálf tvö og þá fá þátttakendur tækifæri til að spóka sig í sólinni.“ Skipulögð dagskrá er fimm daga vikunnar en tveir dagar eru frjálsir. Boðið er upp á eina sameigin- lega kvöldmáltíð en að öðru leyti ræður fólk sér sjálft. Bjargey segir mikið um að vinkonur, mæðgur og jafnvel heilu saumaklúbbarnir fari í konuferðirnar. „Það er þó alltaf eitthvað um að konur séu einar á ferð en yfirleitt tekst vinskapur með fólki og margar halda hóp- inn að ferðinni lokinni.“ Bjargey segir gaman að fylgj- ast með fólkinu sem sækir námskeiðin blómstra. „Það felst í þessu töluverð sjálfsskoðun en við erum þó ekki að fara mjög djúpt og kafa eftir gömlum sárum. Við erum bara aðeins að klóra í og vekja fólk til vitundar um nýjan og betri lífsstíl.“ Bjargey segist finna mun á því fólki sem sækir námskeiðin nú og í upphafi. „Ef við tökum konunámskeiðin sem dæmi þá finnst mér þær í miklu betra formi og margar eru þegar búnar að breyta venjum sínum heilmikið. Sumar óska jafnvel eftir meiri hreyfingu en þannig var það ekki til að byrja með. Þetta finnst mér afar jákvæð þróun.“ Allar nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á heimasíðu Úrvals Útsýnar www.urvalutsyn.is undir flipanum sérferðir. ENDURNÆRANDI NÁMSKEIÐ Þær Bjargey og Edda eru komnar á fullt við að skipuleggja ferðina í febrúar. MYND/GVA Boðið er upp á lífsstílsfyrirlestra af ýmsu tagi. Námskeiðin eru bæði haldin að sumri og vetri og ávallt reynt að velja stað þar sem mestar líkur eru á góðu veðri hverju sinni. Það er létt yfir þeim Eddu og Bjargeyju og oft skapast góð vinátta meðal þátttakenda. Allir morgnar byrja á líkamsrækt við ströndina. AUGLÝSING: ÚRVAL ÚTSÝN KYNNIR Úrval Útsýn býður spennandi vikunámskeið í samstarfi við leikkonuna Eddu Björgvinsdóttur og íþróttafræð- inginn Bjargeyju Aðalsteinsdóttur 23. febrúar næstkomandi. Sams konar námskeið hafa verið á boðstólum undanfarin ár og síðast komust færri að en vildu. Um er að ræða endurnærandi lífsstílsnámskeið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.