Fréttablaðið - 26.10.2012, Page 52
26. október 2012 FÖSTUDAGUR32 32
menning@frettabladid.is
Bækur ★★★ ★★
Ár kattarins
Árni Þórarinsson
JPV-útgáfa
Hvar er glæpurinn?
Ár kattarins er áttunda bók Árna
Þórarinssonar um blaðamanninn Einar
sem vinnur á Síðdegisblaðinu og flækist
inn í glæpamál af öllum toga. Hún er
þráðbeint framhald af Morgunengli,
sem kom út 2010, og tekur upp þráðinn
að því er virðist örfáum dögum eftir að
Morgunengli lýkur.
Einar er kominn aftur í borgina eftir
vertíð á Akureyri, býr í sínum kjallara í
Þingholtunum enn edrú og enn í veseni
með kvenfólkið í lífi sínu. Nú bregður
þó svo við að honum taka að berast
klámfengin sms-skilaboð frá karlmanni,
hann flækist inn í dauða homma og
lesbíu sem í fyrstu virðist sameiginlegt
sjálfsmorð og skikkar Sigurbjörgu sam-
starfskonu sína, sem er nýjasta konan
í lífi hans, til að kanna bakgrunn árásar
í biðröð við skemmtistað. Á sama tíma
eru sviptingar á Síðdegisblaðinu þar sem
barist er um eignarhald og ofan á allt saman flækist hann inn í átök um
formannssæti í Jafnaðarbandalaginu, þar sem hver skandallinn eftir annan
skýtur upp kollinum. Það er ekki auðlifað hjá honum Einsa.
Árni er óragur við að velta upp þeim vandamálum sem hæst ber í sam-
tímanum á hverjum tíma og Ár kattarins er engin undantekning frá þeirri
reglu. Hér er skotið föstum skotum á spillingu í stjórnmálaflokkum, óhreint
eignarhald á fjölmiðlum, yfirborðslega umfjöllun um ofbeldið í miðbænum,
hómófóbíu og slúðurmiðla. Að vanda tengist meginglæpur sögunnar einnig
þjóðsögulegu efni og skorturinn á einkalífi á tímum tækniundra kemur líka
við sögu. Einar virðist sjálfur hafa gengið í endurnýjun lífdaga, virkar ekki
lengur á skjön við samtímann og nátttröllin á ritstjórn Síðdegisblaðsins,
þeir Hannes, Ásbjörn og Hermann, verða hér nánast mannlegir og tala
ekki lengur í eintómum úr sér gengnum klisjum, þótt vissulega eimi eftir af
þeim karaktereinkennum. Sumum mun jafnvel þykja hér of langt gengið í
skothríðinni, það er að minnsta kosti dálítið nærri höggvið að krónprinsinn
í formannsslag Jafnaðarbandalagsins skuli heita Smári Páll Kárason, svo
dæmi sé tekið.
Sagan er vel fléttuð og Árni hefur fullt vald á öllum þeim boltum sem
hann fleygir á loft. Spennan liggur fyrst og fremst í samskiptum persónanna,
lesandinn brennur ekkert í skinninu að komast að því hverjir frömdu
glæpina, enda eitt af viðfangsefnum bókarinnar að velta upp spurningum
um það hvað teljist glæpur og hvað ekki í þessu samfélagi spillingar og
framapots. Þær spurningar eru margar mjög umhugsunarverðar og í heild er
Ár kattarins best lukkaða bók Árna síðan Tími nornarinnar kom út.
Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Óvægin samfélagsádeila og óþægilegar spurningar í vel flétt-
aðri spennusögu sem kemur við kaun lesandans.
NÝJAR KILJUR
Herbergi er átakanleg skáldsaga um
grimmd og örvæntingu en líka ljúfur,
fyndinn og ómótstæðilegur vitnisburður
um takmarkalausa ást.
Voveiflegir atburðir taka að gerast
á stúlknaheimili í Svíþjóð. Á dimmu
haustkvöldi finnst ein stúlknanna
myrt í undarlegri stellingu, og
skömmu síðar gæslukona.
2.299,-
KYNNINGAR-
VERÐ
2.699,-
2.399,-
KYNNINGAR-
VERÐ
2.999,-
Gildir til 4. nóvember eða á meðan birgðir endast.
Hlaupið í skarðið mun hin nýja
bók J. K. Rowling, höfundar Harry
Potter-bókanna, heita á íslensku.
Á frummálinu heitir bókin The
Casual Vacancy.
Efnt var til samkeppni um
íslenskan titil og bárust um 200
tillögur. Hlutskörpust varð tillaga
Smára Pálmarssonar sögusmiðs.
Honum var reyndar alls ókunnugt
um þá upphefð þegar blaðamaður
hringdi í hann og óskaði honum til
hamingju.
„Ha? Hvað ertu að segja?“ voru
hans fyrstu viðbrögð. „Ég skellti
einni uppástungu undir mínu nafni
en var ekki búinn að sjá eða heyra
neitt meira.“
Hvernig datt þér þetta nafn í
hug? „Ég las bara lýsingu á efni
bókarinnar og fannst Hlaupið í
skarðið hljóma skemmtilega, það
er líka vísun í leik og mér virtist
söguefnið vera alvarleg útgáfa af
þessum leik,“ svarar hann.
Ertu mikið í því að taka þátt í
svona leikjum og láta þér detta
eitthvað sniðugt í hug?
„Nei, ég hef svo sem ekki
verið mikið að taka þátt í svona
leikjum en ég stunda það að búa til
skemmtilegar og hnitmiðaðar setn-
ingar, það er hluti af þeirri vinnu
minni að skrifa,“ segir Smári sem
kveðst hafa fengið hugmyndina við
stofuborðið. Beðinn um mynd af
sér við þetta umrædda borð hlær
Smári og segir það nú varla nógu
snyrtilegt. En er hann nokkuð á
förum út? „Ja, ég ætlaði reyndar
að skreppa með bók í prentun í
Odda núna síðdegis.“ Hvað heitir
hún? Hún heitir Vampíra og er
teiknimyndasaga.“ - gun
Smári átti sigurnafn
á sögu J.K. Rowling
Bastarðar nefnist nýjasta
stykkið úr smiðju Vestur-
ports sem frumsýnt verður
í Borgarleikhúsinu annað
kvöld. Verkið er unnið í
samvinnu við þrjú nor-
ræn leikhús og hefur hlotið
mikið lof í Svíþjóð og Dan-
mörku.
Leikritið Bastarðar eftir þá Gísla
Örn Garðarsson, sem jafnframt
leikstýrir, og Bandaríkja manninn
Richard LaGravenese er samstarfs-
verkefni Vesturports, Borgar-
leikhússins Malmö Statsteater og
Teater Far302 í Kaupmannahöfn.
Verkið var forsýnt með íslenskum,
sænskum og dönskum leikurum á
Listahátíð í vor og svo sýnt í Malmö
og Kaupmannahöfn í sumar og
haust við góðar undirtektir.
Einungis íslenskir leikarar verða
í sýningunni í Borgarleikhúsinu
en verkið hefur verið þróað enn
frekar frá forsýningu í vor. Vík-
ingur Kristjánsson er í hópi þeirra
sem leika í báðum uppfærslum en
hann er í sitt hvoru hlutverkinu.
„Það er verulega skemmtilegt
að flakka svona á milli hlutverka,“
segir Víkingur. „Hlutverkið sem
ég leik núna er nokkurn veginn
eins og í fyrri uppfærslunni, nema
ég er nokkuð yngri en sá sem lék
það úti. Ég reyni að passa það að
gera það að mínu.“
Velgengni Vesturports á erlendri
grundu er kunnari en frá þurfi að
segja og Víkingur segist hættur að
kippa sér upp við það að ferðast á
milli landa til að sýna.
„Það er orðið svo til sjálfsagt
mál núorðið, en var það alls ekki
fyrir nokkrum árum.“ Samhliða
velgengni utanlands hefur sam-
starf hópsins við erlenda lista-
menn, leikhópa og handritshöf-
unda færst í aukana. Er Vesturport
enn þá íslenskur hópur eða er hann
orðinn alþjóðlegur?
„Já já, við erum alíslensk og
gefum okkur ekki út fyrir að
vera neitt annað,“ segir Víkingur.
„Sjálfsagt spilar það inn í af
hverju við þykjum spennandi úti,
það vinnur að minnsta kosti með
okkur að vera frá Íslandi.“
bergsteinn@fréttabladid.is
Blóðbandabrullaup
RÍKHARÐUR OG MARTA Víkingur Kristjánsson og Þórunn Erla í hlutverkum sínum, sem hjónin Ríkharður og Marta. Faðir Mörtu
býður þeim og bræðrum hennar í brúðkaup, sem á eftir að draga dilk á eftir sér.
SMÁRI PÁLMARSSON Tillaga hans,
Hlaupið í skarðið, hreppti hnossið í
samkeppni Bjarts um titil á nýrri skáld-
sögu J.K. Rowling sem er væntanleg í
íslenskri þýðingu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SMÁSKILABOÐ FORTÍÐAR Er unnt að túlka texta í rúnaristum frá miðöldum í ljósi sam-
skiptatækni nútímans? Þeirri spurningu varpar Michael Schulte prófessor fram í fyrirlestri á vegum
Íslenska málfræðifélagsins í Nýja-Garði, stofu 301, í dag klukkan 11.30.
BROSTIN BÖND BASTARÐA
Bastarðar er leikrit um brotna fjöl-
skyldu; föður, börn hans og maka
þeirra. Eftir margra ára sambands-
leysi berst systkinunum boð í gift-
ingu föðurins. Þegar brúðurin
reynist vera æskuást elsta bróð-
urins upphefst miskunnarlaus og
ofsafengin barátta. Leikarar í verk-
inu eru Jóhann Sigurðarson, Nína
Dögg Filippusdóttir, Stefán Hallur
Stefánsson, Hilmir Snær Guðna-
son, Elva Ósk Ólafsdóttir, Víkingur
Kristjánsson, Þórunn Erna Clau-
sen, Sigurður Þór Óskarsson og
Jóhannes Níels Sigurðsson.