Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 10
27. október 2012 LAUGARDAGUR10
Þrátt fyrir að á Facebook
sé nú rúmlega milljarður
virkra notenda, eða sjöunda
hvert mannsbarn á jarðar-
kringlunni, eru kólguský
við sjóndeildarhringinn.
Virði fyrirtækisins hefur
lækkað um 40 milljarða
dala frá því að það var
sett á markað í maí og lúta
helstu áhyggjur á Wall
Street að möguleikum eða
skorti á möguleikum, fyrir
Facebook til tekjuöflunar.
Góðar fréttir
Facebook fékk að vísu jákvæðar
fréttir í fyrradag þegar afkomu-
tölur frá þriðja ársfjórðungi
voru nokkru betri en sérfræð-
ingar á Wall Street bjuggust við.
Þar kom fram að 32ja prósenta
tekju aukning var frá þriðja árs-
fjórðungi í fyrra. Það sem er hins
vegar umhugsunarvert er að aukn-
ingin milli ára var 45 prósent á
fyrsta fjórðungi og 32 prósent á
öðrum fjórðungi. Að því leyti virð-
ist ekki vera mikill vöxtur í tekju-
öflun. Hins vegar var aðra von-
arglætu að sjá í því að tekjur af
farsíma- og spjaldtölvunotendum
jukust nokkuð.
Þó að 60 prósent notenda
Facebook noti nú slík tæki hefur
reynst erfitt að búa til tekjur úr
þeim möguleikum. Nú gæti þó
farið að rofa til enda hafa Mark
Zuckerberg og hans fólk komið
fram með ýmsar nýjungar til að
auka tekjur, en óljóst er hvernig
þær munu koma til með að leggj-
ast í notendur.
Borga sig upp á toppinn
Að undanförnu hefur Facebook
meðal annars kynnt til sögunnar
valmöguleika til að nýta síðuna
til að kaupa gjafir (úr raunheimi)
fyrir vini sína. Fyrr í mánuðinum
bættist svo annar möguleiki við
þar sem notendum með innan við
fimm þúsund vini, gefst þess kost-
ur að „kaupa sig upp“. Það er, að
greiða fasta upphæð fyrir það að
tryggja að innlegg eins og stöðu-
uppfærslur eða ljósmyndir fari
efst í fréttadálk vina og haldist
þar. Eins og stendur er um til-
raunaverkefni að ræða og hefur
það einungis staðið til boða í
nokkrum löndum, þar á meðal
Bandaríkjunum, en fyrirtæki
um heim allan hafa haft svipaðan
möguleika frá í maí.
Nýjasta útspilið er það sem
Facebook kallar „Collections“. Þar
geta einstakir notendur merkt við
myndir af vörum sem þeim líst
á og fyrirtæki hafa sett á Face-
book. Á myndunum verður hnapp-
ur merktur „Want“ eða „Collect“
sem nota má til að bæta vörunni
í safn og, ef þannig ber undir,
kaupa. Ekki verður þó keypt beint
í gegnum Facebook, heldur fær-
ist notandi yfir á síðu viðkomandi
fyrirtækis. Facebook segist ekki
munu taka þóknun fyrir þessa
þjónustu, og slíkt standi ekki til.
Úr söluvöru í viðskiptavin
Með þessum nýjustu útspilum
Facebook má sjá mjög ákveðna
stefnubreytingu þar sem notend-
ur síðunnar eru ekki lengur sölu-
vara, eins og hingað til, heldur eru
stigin skref yfir í átt að vefverslun
þar sem Facebook-notendur eru í
stórauknum mæli orðnir viðskipta-
vinir.
Jafnvægislistin
Enn er óútséð með hvernig þess-
ar lausnir verða útfærðar, en það
mikilvægasta er að ganga ekki
fram af notendum. Peningaplokk
og auglýsingaflóð getur hæg-
lega skemmt fyrir upplifun hins
almenna notanda.
Zuckerberg verður því að sigla
á milli skers og báru í þessum
efnum. Annars vegar verður hann
að þjónkast meðeigendum sínum
og tryggja að fyrirtækið vaxi og
dafni, og hins vegar verður hann
að tryggja ánægju notenda, sem
eru hin eina sanna auðlind, og sjá
til þess að þeir verði ekki afhuga
Facebook, heldur haldi áfram að
uppfæra, kommenta, deila og læka.
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING: Hvernig ætlar Facebook að græða peninga
Facebook í tvísýnum línudansi
STEFNIR Í VANDRÆÐI? Leiðin hefur legið upp á við hjá Mark Zuckerberg og Facebook síðustu ár. Frá því að Facebook fór á markað í vor
hefur virðið hins vegar fallið um tæpan helming. NORDICPHOTOS/AFP
Miklar væntingar voru bundnar
við Facebook þegar það var sett á
markað í maí.
Í upphafi fór verðið yfir 38 dali á
hlut, en í ljós kom innan nokk-
urra daga að fyrirtækið hafi verið
ofmetið, lægst fór virði hluta í 17,7
dali, en við lokun markaða í gær
var verðið komið í 21,94 dali.
Lykilatriði í endurreisn hluta-
bréfaverðs Facebook eru nýjar
lausnir í tekjuöflun og er margt
í bígerð hjá Mark Zuckerberg og
félögum.
Dvínandi virði