Fréttablaðið - 27.10.2012, Síða 30
27. október 2012 LAUGARDAGUR30
HELSTU FÉLAGASKIPTIN Í SUMAR
Tveir bestu leikmenn síðari ára eru gengnir til liðs
við Los Angeles Lakers; kanadíski leikstjórnandinn
Steve Nash frá Phoenix Suns og tröllið Dwight
Howard frá Orlando Magic bætast nú í byrjunarlið
sem þegar inniheldur Kobe Bryant, Pau Gasol
og Metta World Peace og gera það með þeim
óárennilegri í sögu deildarinnar.
Stórskyttan Ray Allen
yfirgaf Bostonborg eftir
fimm ára dvöl og hélt
suður á bóginn – til
meistaranna í Miami Heat.
Miami-menn munu ekki
bara njóta þriggja stiga
skotfimi Allens, heldur
fengu þeir líka fram-
herjann Rashard Lewis frá
Washington.
Boston Celtics fyllti í skarð
Ray Allen með tveimur
öflugum skotbakvörðum:
Fyrrverandi sjötta manni
ársins, Jason Terry frá
Dallas, og Courtney Lee
frá Houston Rockets.
Í Houston voru menn
ekki af baki dottnir þótt
þeir hefðu nánast tæmt
leikmannalistann sinn og
sömdu meðal annars við
skærasta nýstirni síðustu
leiktíðar, öskubuskuna
Jeremy Lin. Hann kemur
til þeirra frá New York
Knicks ...
... sem ákvað að bæta sér það upp með því að
semja einkum við óhemjumagn af gamalmennum.
Þar ber helsta að nefna leikstjórnandann Jason
Kidd frá Dallas (39 ára), miðherjann Marcus
Camby frá Houston (38 ára), framherjann Rasheed
Wallace (38 ára og var hættur að spila körfubolta),
framherjann Kurt Thomas frá Chicago (40 ára) og
argentínska leikstjórnandann Pablo Prigioni (35
ára). Raymond Felton frá Portland (28 ára) nær
með herkjum að vera undantekningin frá reglunni.
Skotbakvörðurinn og
stjörnuleikmaðurinn Joe
Johnson batt enda á sjö
ára vist sína hjá Atlanta
Hawks og gekk til liðs við
Deron Williams og félaga
hjá Nets-liðinu, sem nú er
kennt við borgarhlutann
Brooklyn í New York.
Driplað af stað í NBA
NBA-deildin í körfubolta hefst á þriðjudag. Stórstjörnur hafa flutt sig um set og meiðsli
setja svip á upphaf leiktíðarinnar. Stígur Helgason fer yfir helstu vendingar frá því í vor.
K
onungsins af Miami,
LeBron James, bíður
ærið verkefni. Hann þarf
að vinna NBA-deildina
aftur, og svo helst aftur
og aftur og aftur og aftur
til að komast á sama stall og helstu goð-
sagnir bandarísks körfubolta – menn á
borð við Bill Russell, Magic Johnson,
Larry Bird og sjálfan Michael Jordan.
Margir telja að hann geti það vel, og að
það sé raunar líklegra en ekki að hann
bæti næsta meistarahring í safnið eftir
þessa leiktíð.
Miami Heat hefur titilvörnina á
þriðjudagskvöld þegar liðið tekur á móti
Boston Celtics í fyrsta leik haustsins í
NBA-deildinni. Stórskyttan Ray Allen
– lykilmaður hjá Boston undanfarin
fimm ár – er gengin til liðs við Miami og
eins og við var að búast eru aðdáendur
Boston-liðsins þegar farnir að uppnefna
hann Júdas. Það má því eiga von á fjöri
í American Airlines-höllinni.
Liðin sem helst er horft til að gætu
velgt Miami undir uggum þennan
vetur inn eru Oklahoma City Thunder,
sem Miami átti reyndar ekki í nokkrum
vandræðum með í úrslitunum í fyrra, og
Los Angeles Lakers, sem hefur bætt við
sig tveimur af helstu stjörnum liðinna
ára og er til alls líklegt ef ofvaxið egó
Kobe Bryant verður fáanlegt til að deila
athyglinni með öðrum.
Aldrei má afskrifa Boston, sem þykir
hafa tekist vel til við að finna stað-
gengla fyrir Ray Allen og betrum-
bæta liðið að öðru leyti – og hvað
þá þau lið sem unnu flesta
leiki í fyrra; San Antonio
Spurs og Chicago Bulls.
N e w O r l e a n s
Hornets datt í lukku-
pottinn í nýliðaval-
inu, fékk fyrsta
valrétt og nýtti
h a n n e i ns
og allir vissu að yrði gert, með því að
tryggja sér þjónustu framherjans Ant-
hony Davis úr Kentucky-háskólanum.
Hann þykir eitt mesta efni sem komið
hefur fram á sjónarsviðið um langa
hríð, eins og sást á því að hann fór beint
í Ólympíulið Bandaríkjamanna í sumar.
Aðrir nýliðar sem vert er að fylgjast
gaumgæfilega með í vetur eru Micha-
el Kidd-Gilchrist hjá Charlotte Bob-
cats, Damien Lillard hjá Portland Trail
Blazers, Harrison Barnes hjá Golden
State Warriors og Jared Sullinger hjá
Boston Celtics. Allir munu þeir að líkind-
um leika stórt hlutverk hjá sínum liðum.
Eins og sjá má hér til hliðar gætu
meiðsli lykilmanna sett stórt strik í
reikninginn hjá sumum liðanna. Þannig
veltur gengi Chicago Bulls mikið á
því hvenær Derrick Rose braggast og
Minnesota Timberwolves, sem styrkti
sig reyndar verulega í sumar, byrjar
leiktíðinna án tveggja bestu manna
sinna.
Ólíkt styttu leiktíðinni í fyrra spilar
hvert lið 82 leiki í þetta sinn. Það gerir
hvorki meira né minna en 1.230 leiki
fram til vors. Í slíkri törn skiptir þraut-
seigjan öllu, bæði fyrir leikmenn og
aðdáendur. Góða skemmtun.
Þrír fyrrverandi mikilvægustu leikmenn ársins geta ekki
byrjað leiktíðina vegna meiðsla. Fleiri stjörnur eru frá í bili.
Kobe Bryant
Los Angeles Lakers
Svarta mamban – mikilvægasti
leikmaður deildarinnar 2008 og
úrslitakeppnanna 2009 og 2010 –
kennir til í hægri fæti. Hann ætti þó
ekki að missa af nema fyrsta leik.
Kevin Love
Minnesota Timberwolves
Besti kraftframherji síðustu leiktíðar
braut á sér höndina og getur ekki
spilað í nokkrar vikur.
Dirk Nowitzki
Dallas Mavericks
Þjóðverjinn var valinn mikilvægasti
leikmaður deildarinnar 2007 og
mikilvægasti leikmaður úrslita-
keppninnar í fyrra. Hann er með
bólgið hné, þarf í uppskurð og gæti
misst úr upp undir átta vikur.
Derrick Rose
Chicago Bulls
Leikstjórnandinn sem valinn var
mikilvægasti leikmaður deildarinnar
árið 2011 sleit liðband í hné í vor.
Enn er alls óvíst hvenær hann getur
leikið á ný.
Ricky Rubio
Minnesota Timberwolves
Næstheitasti nýliðinn í fyrra sleit
einnig liðband í hnénu og gæti
verið mjög lengi frá.
Amar‘e Stoudemire
New York Knicks
Framherjinn stæðilegi er með
bólgu í hné og þarf líklega að sitja
jakkafataklæddur á bekknum í tvær
til þrjár vikur.
Miðherjinn ungi Andrew
Bynum var sendur frá
Lakers til Philadelphia
76‘ers sem hluti af pakka-
díl í kringum Dwight How-
ard. Hann er að hlífa sér
og hefur enn ekki spilað
fyrir liðið á undirbúnings-
tímabilinu en er talinn geta
orðið máttarstólpi þess um
ókomin ár.
MEIÐSLI HRJÁ STJÖRNURNAR