Fréttablaðið - 27.10.2012, Page 40

Fréttablaðið - 27.10.2012, Page 40
FÓLK|HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Jóhann Jónsson hefur rekið Osta-búðina á Skólavörðustígnum í 13 ár. Hann var einn af upphafsmönnum Kjötsúpudagsins. „Þetta byrjaði fyrir tíu árum og mig minnir að það hafi verið í tengslum við endurútgáfu plötunnar Ís- lensk kjötsúpa eftir Jóhann G. Jóhanns- son sem við ákváðum að elda kjötsúpu. Tilgangurinn var auðvitað bara að hafa gaman, borða góða súpu og blanda geði við gesti og gangandi. Sextíu lítrar af súpu voru lagaðir og skammtað á tveimur stöðum,“ segir Jóhann. Tvöfaldur skammtur af kjötsúpu verður eldaður í ár miðað við undan- farin ár, eða um 1.500 lítrar sem er 2.500 prósenta aukning á tíu árum. „Við viljum hafa þetta veglegt vegna afmælis- ins. Einnig vegna þess að við ætlum að vera með söfnun í leiðinni til að leggja bændum lið sem misstu sauðfé í illviðr- inu sem varð á Norðurlandi í haust. Þeir hafa tekið þátt í þessum degi í gegnum tíðina og nú er komið að okkur hér í höfuðborginni að gefa til baka.“ Bæði verður tekið á móti fjárframlögum en einnig verður þremur gámum komið fyrir á Skólavörðustígnum þar sem hægt er að koma með glerflöskur, dósir og plastflöskur til endurvinnslu. Verðmæt- ið rennur beint til bænda á Norðurlandi. „Það væri mjög gott ef fólk gæti flokk- að dósirnar í ál, plast og gler og þannig auðveldað þeim vinnuna sem munu sjá um að taka afraksturinn saman.“ Kjötsúpan verður borin fram á fimm stöðum á Skólavörðustígnum. Feðgarnir Friðgeir Ingi og Eiríkur á Holti munu skammta súpu við versl- un Eggerts feldskera, Stefán Mel- steð og Sigurgísli á Óðinsvéum verða við Handprjónasambandið, Gústav Axel Gunnlaugsson verður fyrir utan Sjávargrillið og Úlfar Eysteinsson af Þremur frökkum verður við Hegn- ingarhúsið. „Við Jóhann Jóhannesson verðum við Ostabúðina og við byrjum klukkan 14. TÍU ÁRA AFMÆLI KJÖTSÚPUDAGSINS STYRKJA BÆNDUR Kjötsúpudagurinn á Skólavörðustígnum á tíu ára afmæli í dag. 1.500 lítrar af kjötsúpu verða eldaðir, sem er helmingi meira en í fyrra. MÆTIÐ MEÐ GÓÐA SKAPIÐ „Við byrjum að ausa upp úr pottunum klukkan 14. Ég mæli með að fólk mæti tímanlega með góða skapið, blandi geði við fólk og gæði sér á heitri kjötsúpu.“ MYND/ANTON Arna Arnardóttir, formaður Félags ís-lenskra gullsmiða, segir að gullsmiðir séu í mikilli sókn þessa dagana. „Það vill gleymast í allri þeirri umræðu sem er um margs konar hönnun og föndur undanfarið hvað fagleg gullsmíði er í raun og veru. Gullsmíði er fjögurra ára nám sem er töluvert krefjandi og tekur á öllum þáttum skartgripasmíði. Við sinnum smíði jafnt sem viðgerðarþjónustu. Okkar gripir eru auk þess með ábyrgð,“ segir Arna og bætir því við að gullsmiðir verði staddir í verslunum sín- um í dag til að kynna starf sitt. Þetta er í annað skipti sem slíkur dagur er haldinn. Arna hvetur fólk til að koma með skartgripi sína í dag, fá þá hreinsaða og spjalla við fagmanninn. „Við getum metið steina og hvaða tegund af málmi er í gripnum. Gullsmiðir vinna af heiðarleika og fagmennsku,“ segir Arna. Undanfarið hefur farið fram mikil umræða um kaup og sölu á gulli. Arna segir að gullsmiðir hafi alla tíð keypt gull án þess að vilja auglýsa það sérstaklega. „Það var samróma álit gullsmiða að auglýsa ekki þessa þjónustu til að losna undan því að fá stolið skart. Ef dularfullir skartgripir komu inn á borð til gullsmiða settu þeir sig í samband við lögreglu. Gullsmiðir vilja ekki að verðmæt skartgripahönnun sé brædd og eyðilögð. Við eigum marga meistara í þessari grein – engum dytti í hug að eyðileggja verk eftir fræga myndlistarmenn.“ Hreinsun á skartgrip er án endurgjalds í dag. HREINSA GULL Í DAG HÁTÍÐ Gullsmiðadagurinn er í dag. Hann er haldinn til að vekja athygli á fagmennsku í greininni og fræða almenning um störf gullsmiða. FAGMENNSKA Gullsmiðir verða fólki innanhandar með hreinsun á gulli í dag á Gullsmiðadaginn. –20% frá fimmtudegi til sunnudags af öllum peysum og gallabuxum PEYSU OG GALLABUXNADAGAR Í OASIS Cable Stripe knit xs-l 15.990 kr. – 12.790 kr. Mjög hlý flott vetrarpeysa með góðri ullarblöndu, laust sætt snið. Tipped collar denim shirt 8-16 9990 kr. – 7990 kr. Flott gallaskyrta með góðu sniði Sequin shoulder xs-l, 9990 kr. – 7.990 kr. Flott peysa að mestu úr bómul, skreytt á öxlum. Til í svörtu og beige, mátast sérstaklega vel. Gallabuxur 10.990 kr. 8790 kr. mjög gott snið, margir litir og háar í mittið. S k e i f a n 3 j | S í m i 5 5 3 8 2 8 2 | w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s Gjafamarkaður ALLA SUNNUDAGA FRÁ KL. 11-17 GJAFAVÖRUR FRÁ 500 KR. MIKIÐ ÚRVAL AF: • H e i l s u v ö r u m • H a n d g e r ð r i l i s t • P o s t u l í n i • B o r ð d ú k u m • K í n a f ö t u m • G ó l f t e p p u m • L ö m p u m • B l ó m a p o t t u m • T e o g t e s e t t u m o f l . o f l .
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.