Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 40
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Jóhann Jónsson hefur rekið Osta-búðina á Skólavörðustígnum í 13 ár. Hann var einn af upphafsmönnum
Kjötsúpudagsins. „Þetta byrjaði fyrir tíu
árum og mig minnir að það hafi verið í
tengslum við endurútgáfu plötunnar Ís-
lensk kjötsúpa eftir Jóhann G. Jóhanns-
son sem við ákváðum að elda kjötsúpu.
Tilgangurinn var auðvitað bara að hafa
gaman, borða góða súpu og blanda
geði við gesti og gangandi. Sextíu lítrar
af súpu voru lagaðir og skammtað á
tveimur stöðum,“ segir Jóhann.
Tvöfaldur skammtur af kjötsúpu
verður eldaður í ár miðað við undan-
farin ár, eða um 1.500 lítrar sem er
2.500 prósenta aukning á tíu árum. „Við
viljum hafa þetta veglegt vegna afmælis-
ins. Einnig vegna þess að við ætlum að
vera með söfnun í leiðinni til að leggja
bændum lið sem misstu sauðfé í illviðr-
inu sem varð á Norðurlandi í haust. Þeir
hafa tekið þátt í þessum degi í gegnum
tíðina og nú er komið að okkur hér í
höfuðborginni að gefa til baka.“ Bæði
verður tekið á móti fjárframlögum en
einnig verður þremur gámum komið
fyrir á Skólavörðustígnum þar sem hægt
er að koma með glerflöskur, dósir og
plastflöskur til endurvinnslu. Verðmæt-
ið rennur beint til bænda á Norðurlandi.
„Það væri mjög gott ef fólk gæti flokk-
að dósirnar í ál, plast og gler og þannig
auðveldað þeim vinnuna sem munu sjá
um að taka afraksturinn saman.“
Kjötsúpan verður borin fram á
fimm stöðum á Skólavörðustígnum.
Feðgarnir Friðgeir Ingi og Eiríkur á
Holti munu skammta súpu við versl-
un Eggerts feldskera, Stefán Mel-
steð og Sigurgísli á Óðinsvéum verða
við Handprjónasambandið, Gústav
Axel Gunnlaugsson verður fyrir utan
Sjávargrillið og Úlfar Eysteinsson af
Þremur frökkum verður við Hegn-
ingarhúsið. „Við Jóhann Jóhannesson
verðum við Ostabúðina og við byrjum
klukkan 14.
TÍU ÁRA AFMÆLI
KJÖTSÚPUDAGSINS
STYRKJA BÆNDUR Kjötsúpudagurinn á Skólavörðustígnum á tíu ára afmæli
í dag. 1.500 lítrar af kjötsúpu verða eldaðir, sem er helmingi meira en í fyrra.
MÆTIÐ MEÐ GÓÐA
SKAPIÐ „Við byrjum að
ausa upp úr pottunum
klukkan 14. Ég mæli með
að fólk mæti tímanlega
með góða skapið, blandi
geði við fólk og gæði sér
á heitri kjötsúpu.“
MYND/ANTON Arna Arnardóttir, formaður Félags ís-lenskra gullsmiða, segir að gullsmiðir séu í mikilli sókn þessa dagana. „Það vill
gleymast í allri þeirri umræðu sem er um margs
konar hönnun og föndur undanfarið hvað fagleg
gullsmíði er í raun og veru. Gullsmíði er fjögurra
ára nám sem er töluvert krefjandi og tekur á
öllum þáttum skartgripasmíði. Við sinnum smíði
jafnt sem viðgerðarþjónustu. Okkar gripir eru
auk þess með ábyrgð,“ segir Arna og bætir því
við að gullsmiðir verði staddir í verslunum sín-
um í dag til að kynna starf sitt. Þetta er í annað
skipti sem slíkur dagur er haldinn.
Arna hvetur fólk til að koma með skartgripi
sína í dag, fá þá hreinsaða og spjalla við
fagmanninn. „Við getum metið steina og hvaða
tegund af málmi er í gripnum. Gullsmiðir vinna
af heiðarleika og fagmennsku,“ segir Arna.
Undanfarið hefur farið fram mikil umræða um
kaup og sölu á gulli. Arna segir að gullsmiðir
hafi alla tíð keypt gull án þess að vilja auglýsa
það sérstaklega. „Það var samróma álit
gullsmiða að auglýsa ekki þessa þjónustu
til að losna undan því að fá stolið skart.
Ef dularfullir skartgripir komu inn á borð
til gullsmiða settu þeir sig í samband við
lögreglu. Gullsmiðir vilja ekki að verðmæt
skartgripahönnun sé brædd og eyðilögð. Við
eigum marga meistara í þessari grein – engum
dytti í hug að eyðileggja verk eftir fræga
myndlistarmenn.“ Hreinsun á skartgrip er án
endurgjalds í dag.
HREINSA
GULL Í DAG
HÁTÍÐ Gullsmiðadagurinn er í dag. Hann er
haldinn til að vekja athygli á fagmennsku í
greininni og fræða almenning um störf gullsmiða.
FAGMENNSKA
Gullsmiðir verða fólki
innanhandar með
hreinsun á gulli í dag á
Gullsmiðadaginn.
–20% frá fimmtudegi til sunnudags af öllum peysum og gallabuxum
PEYSU OG GALLABUXNADAGAR Í OASIS
Cable Stripe knit xs-l
15.990 kr. – 12.790 kr. Mjög hlý flott vetrarpeysa
með góðri ullarblöndu, laust sætt snið.
Tipped collar denim shirt 8-16
9990 kr. – 7990 kr.
Flott gallaskyrta með góðu sniði
Sequin shoulder xs-l, 9990 kr. – 7.990 kr.
Flott peysa að mestu úr bómul, skreytt á öxlum.
Til í svörtu og beige, mátast sérstaklega vel.
Gallabuxur 10.990 kr. 8790 kr.
mjög gott snið, margir litir og háar
í mittið.
S k e i f a n 3 j | S í m i 5 5 3 8 2 8 2 | w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
Gjafamarkaður
ALLA
SUNNUDAGA
FRÁ KL. 11-17
GJAFAVÖRUR FRÁ 500 KR.
MIKIÐ ÚRVAL AF:
• H e i l s u v ö r u m
• H a n d g e r ð r i l i s t
• P o s t u l í n i
• B o r ð d ú k u m
• K í n a f ö t u m
• G ó l f t e p p u m
• L ö m p u m
• B l ó m a p o t t u m
• T e o g t e s e t t u m
o f l . o f l .