Fréttablaðið - 27.10.2012, Síða 70

Fréttablaðið - 27.10.2012, Síða 70
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 20124 DÝRT AÐ MISSA AF TENGIFLUGI Þegar ferðalag er bókað gegnum netsíður og ekki er hægt að komast á áfangastað nema með tengiflugi þarf að gera ráð fyrir því að seinkun geti orðið á fyrra fluginu. Ef bókað er með of knöppum tíma milli fluga svo ferðalangurinn missir af tengi- fluginu eru góð ráð dýr. Sjaldnast á ferðalangurinn kröfu á öðru fari frá flugfélaginu og neyðist til að kaupa nýjan miða, sem getur kostað sitt. Á vefnum Turisti.is kemur fram að hjá Icelandair og SAS er hægt að kaupa farseðla sem gilda einnig fyrir framhaldsflug svo félagið sem seldi miðann er skyldugt til að koma fólki á áfangastað. Þar segir einnig að hjá Wow air sé ekki boðið upp á þá þjónustu að framhaldsflugið sé hluti af sama farseðli. Á heimasíðu sé farþegum bent á að hafa minnst þrjá tíma milli komu fyrra flugs og brott- farar þess síðara. Þá hefur Turisti.is tekið saman stundvísitölur flugfélaga á Kefla- víkurflugvelli síðan í júní 2011 og má nálgast þær á vefnum www. turisti.is. SIGLT MEÐ KISS Eftir nokkra daga leggur rokkhljómsveitin KISS, ásamt hópi aðdáenda sinna, upp í aðra skemmtisiglingu sína undir nafninu KISS KRUISE II. Lagt verður úr höfn frá Flórída í Bandaríkjunum og siglt til Bahama-eyja. Ferðin tekur fimm daga og siglt er með skemmtiferðaskipinu Norwegian Pearl. Gestir geta skilið lakkskóna og síðkjóla eftir heima – hér verður boðið upp á rokk og ról að hætti gömlu meistaranna. Miðinn kostar frá um 100.000 krónum til hálfrar milljónar á mann og það er ekkert slor sem er innifalið í fargjaldinu. KISS heldur tvenna tónleika í ferðinni, eina hefðbundna rokktónleika innanhúss og aðra órafmagnaða utanhúss. Allir farþegar fá mynd af sér með hljómsveitinni auk þess sem meðlimir sveitarinnar svara spurningum gesta úr sal. Fjöldi annarra viðburða er í boði í þessari fimm daga rokkveislu. Gestir eru hvattir til að mæta með and- litsmálningu (en ekki hvað), búninga og sólarvörn, allt sem skiptir máli í sólríkri rokksiglingu með gömlu goðunum. Ef dauður tími finnst í ferðalaginu geta gestir valið úr sextán veitingastöðum, keilusal, þrettán börum, tveimur sundlaugum, líkamsræktarstöð og spilavíti. Uppselt er í ferðina en áhugasamir geta fylgst með næstu ferð á www.thekisskruise.com. VETRARFERÐ MEÐ JÓLA ÞEMA Í ÞÓRSMÖRK Vetrarferð með jólaþema fyrir börn og foreldra verður farin í Þórsmörk þann 16. nóvember á vegum Ferðafélags barnanna Allir út. Í ferðinni verður meðal annars safnað efniviði úti í náttúrunni í jólaföndur, haldin kvöldvaka og sungin jólalög. Þá verða rifjaðar upp hrekkjasögur af jólasvein- unum, farið í stjörnuskoðun og leiki. Gist verður í tvær nætur og þátttakendur þurfa að hafa með sér svefnpoka, nesti og hlýjan fatnað. Ferðafélag barnanna er á vegum Ferðafélags Íslands og var stofnað árið 2009 með það að markmiði að hvetja börn og foreldra til útiveru og samveru í náttúrunni. Nánari upplýsingar um félagið og vetrarferðina er að finna á heimasíðunni www. allirut.is. Ferðafélag barnanna Allir út stendur fyrir vetrarferð í Þórsmörk. NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT. ÞÚ KEMST ÞANGAÐ MEÐ OKKUR! Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll. Kauptu miða núna á www.flugrutan.is Alltaf laus sæti. BSÍ - Umferðarmiðstöðin 101 Reykjavík 580 5400 OR Skannaðu strikamerkið með snjallsímanum þínum Frí þráðlaus internet- tenging í öllum bílum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.