Fréttablaðið - 27.10.2012, Qupperneq 76
27. október 2012 LAUGARDAGUR40
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
24 tíma vakt
Sími 551 3485
Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947
ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
GUÐFINNA HENNÝ JÓNSDÓTTIR
Fögrukinn 13,
Hafnarfirði,
andaðist 23. október síðastliðinn. Útförin
verður auglýst síðar.
Sólveig Jónsdóttir Sævar Gunnarsson
Jenný Jónsdóttir
Jón Auðunn Jónsson Ólafía Guðjónsdóttir
börn og barnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTA STEINSDÓTTIR
frá Hrauni á Skaga,
Fróðengi 3, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 24. október. Útförin verður
auglýst síðar.
Benedikt Andrésson
Guðrún H. Benediktsdóttir Halldór Jónsson
Vilborg Benediktsdóttir Árni Hjaltason
Auður Benediktsdóttir Guðni Karl Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamamma og amma,
DÓMHILDUR JÓNSDÓTTIR
lést á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi
þann 18. október sl. Útförin fer fram frá
Hólaneskirkju á Skagaströnd föstudaginn
2. nóvember kl. 14.00.
Jón Hallur Pétursson Guðríður Friðriksdóttir
Pétur Ingjaldur Pétursson
Guðrún Margrét Jónsdóttir
Auður Anna Jónsdóttir
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát móður okkar og tengdamóður,
RANNVEIGAR UNNAR
SIGÞÓRSDÓTTUR
áður til heimilis að Lindargötu 61 Rvk.
Bjarnfríður Bjarnadóttir Stefán Loftur Stefánsson
Eyrún Magnúsdóttir Gunnar Þór Finnbjörnsson
90 ára
afmæli
Gústaf
Símonarson
verður 90 ára 29. okt. nk.
Þann 18. október sl. héldu þau hjónin Lilja og Gústaf upp á
65 ára brúðkaupsafmæli sitt.
Í tilefni þessara viðburða bjóða þau ætting jum og vinum til
kaffisamsætis sunnudaginn 28. október á milli
kl. 15:00-19:00 á Hótel Cabin, Borgartúni 32, 7. hæð.
Vinsamlegast engin blóm eða g jafir.
„Bíddu, ég ætla aðeins að lækka
í Retro Stefson meðan við tölum
saman. Ég var að kaupa diskinn í
morgun, hann er flottur,“ segir lista-
konan Arngunnur Ýr þar sem hún
stendur við trönurnar með pensilinn
á lofti, íklædd gallabuxum, bleikri
hettupeysu og með pönkbelti.
E …, ertu ekki örugglega fimmtug?
„Jú, fimmtug, að verða sextán – það
er svoleiðis!“ svarar hún hlæjandi
og kveðst hlusta á músík þegar hún
málar. „Það eru forréttindi að vinna
þannig starf að geta jafnframt hlust-
að og uppgötvað eitthvað nýtt allan
daginn,“ bendir hún á og segist vön
að gera margt í einu, til dæmis tala og
mála samtímis. „Sem leiðsögumaður
er ég stundum að útskýra eitthvað í
míkrófóninn og með hinni hendinni
að taka myndir af landslaginu. En
þegar gemsinn hringir líka vandast
málið.“
Fimmtugsafmælið tekur Arn-
gunnur Ýr með trompi. Í kvöld opnar
hún málverkasýningu í Reykjavík Art
Gallerý á Skúlagötu 30 klukkan 20 og
efnir þar líka til tónlistarveislu með
stjörnum á borð við Steinunni Birnu,
Auði Hafsteins, Bryndísi Höllu systur
sína, Sigríði Thorlacius og hljómsveit-
ina Árstíðirnar. Á sama tíma kemur
út bók með myndverkum eftir hana
og texta ýmissa höfunda, sem einn-
ig verður kynnt í Máli og menningu
31. október milli klukkan 17 og 19 þar
sem höfundarnir ræða um verkin.
Arngunnur Ýr er dóttir Gylfa
Baldurs sonar heyrnarfræðings og
Þuríðar Rúríar Jónsdóttur taugasál-
fræðings. Hún sleit barnsskónum á
Tómasarhaganum en á unglings árum
lá leiðin til Nova Scotia þar sem hún
kveðst þó ekki hafa unað nógu vel
og farið á undan fjölskyldunni heim.
„Ég tók Goðafoss heim í febrúar og
hreppti versta veður sem gert hafði
í tuttugu ár. Skipstjórinn sagði eftir
á að þetta hefði verið eina skiptið á
hans langa ferli sem hann hefði efast
um að sjá fjölskyldu sína aftur,“
rifjar hún upp. Heim komst hún og
bjó hjá móðursystur sinni, settist á
skólabekk fyrst í MR og síðan Mynd-
lista- og handíðaskólanum. „Svo spil-
aði ég líka á flautu og var oft að æfa
fimm, sex tíma á dag. Það var svo
skemmtileg stemning í Tónó á þess-
um árum, við vorum mörg saman á
kvöldin að æfa okkur, meðal annars
Sigrún Eðvalds og Bryndís Halla. Ég
var farin að spila opinberlega, jafnvel
með Sinfóníunni í forföllum, en ákvað
síðan að myndlistin væri meira fyrir
mig og fór til framhaldsnáms í San
Francisco Art Institute. Ég ætlaði að
vera tvö ár úti en á síðustu önninni
kynntist ég manninum sínum og þá
breyttist allt. Hann er kvikmynda-
gerðarmaður og vídeólistamaður og
prófessor við Kaliforníuháskóla og
við búum á báðum stöðum, eigum tvö
börn. Dóttur í Háskóla Íslands og son
á fyrsta ári í MH.
Þú minntist á leiðsögumannsstarf.
„Já, ég er búin að leiðsegja í tutt-
ugu ár og finnst það mjög skemmti-
legt. Stór hluti af því er dvölin úti í
náttúr unni, einkum hér á Íslandi, sem
ég er tengd sterkum böndum. Þegar
ég keyri um landið þá koma sögurn-
ar upp í hugann, lengdin á ánum og
hæðin á fjöllunum.“
Myndir Arngunnar Ýrar eru
abstrakt en í þeim bregður þó fyrir
kunnuglegum tindum og fjöllum. „Ég
set markvisst aðeins of mikið inn
í myndirnar og því taka bæði gerð
þeirra og túlkun sinn tíma. Fólk sem
á verkin mín og lifir með þeim talar
um að það sjái alltaf eitthvað nýtt og
nýtt í þeim. Það finnst mér gott. Vill
maður ekki vera flókinn og djúpur?!“
gun@frettabladid.is
ARNGUNNUR ÝR: MEÐ LISTAVERKABÓK OG SÝNINGU Í TILEFNI STÓRAFMÆLIS
Fimmtug – að verða sextán
LISTAKONAN „Ég var farin að spila opinberlega, jafnvel með Sinfóníunni í forföllum, en ákvað síðan að myndlistin væri meira fyrir mig,“ segir
Arngunnur Ýr. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ABSTRAKT FJÖLL „Ég set markvisst aðeins of
mikið inn í myndirnar og því taka bæði gerð
þeirra og túlkun sinn tíma,“ segir listakonan.
FLOSI ÓLAFSSON leikari (1929-2009) fæddist þennan mánaðardag.
„Í fyrsta skipti var ég rekinn fyrir að brjótast út af heima-
vistinni og í annað skipti fyrir að brjótast inn í hana aftur.“