Fréttablaðið - 27.10.2012, Qupperneq 82
27. október 2012 LAUGARDAGUR46
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Ok ... leður-
vesti og yfir-
varaskegg
að eilífu....
...eða borða
kúamykju
á hverjum
degi?
Þá verð ég
að segja
... borða
kúamykju!
Skrýtið
val!
Neiiii... það eru til
staðir á jörðinni þar
sem litið er á kúa-
mykju sem náttúru-
lega uppsprettu
prótíns!
Það eru nú líka til
staðir á jörðinni
þar sem það þykir
náttúrulegt að vera
í leðurvesti með
yfirvaraskegg!
Já ... ég
held ég hafi
séð það á
National
Geographic ...
en halló!
Ókei...
Smjör, svissneskur ostur, jala-
peno húmmus, hnetusmjör,
hunangsskinka, cheddar-kex
og hvítlauksbeygla.
Sykurpúða-kremið
er búið.
Ég hélt að þú
værir kannski í
megrun.
Af hverju heldurðu að
Tarzan hafi bætt á sig?
Langar þig á safn
um helgina?
Njah.
Það eru sinfóníutón-
leikar í Hörpu.
Nei
takk.
Við gætum líka farið með
börnin í gókart og fengið
okkur pitsu og ís eftirá.
Já!!
Menning er fyrir þá sem
leita að tilgangi lífsins, ekki
þá sem halda sig hafa
fundið hann.
LÁRÉTT
2. báru að, 6. munni, 8. belja, 9. fálm,
11. tveir eins, 12. reyna, 14. teygjudýr,
16. ógrynni, 17. litningar, 18. lyftist,
20. í röð, 21. hvæs.
LÓÐRÉTT
1. dægurlagatónlist, 3. klafi, 4.
ávöxtur, 5. dýrahljóð, 7. olíuvaxefni,
10. auð, 13. námsgrein, 15. skrambi,
16. hluti verkfæris, 19. sjó.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. komu, 6. op, 8. kýr, 9. pat,
11. rr, 12. prófa, 14. amaba, 16. of, 17.
gen, 18. rís, 20. rs, 21. fnæs.
LÓÐRÉTT: 1. popp, 3. ok, 4. mýraber,
5. urr, 7. parafín, 10. tóm, 13. fag, 15.
ansi, 16. orf, 19. sæ.
Á fimmtudagskvöldið var sögulegur knattspyrnuleikur háður á Laugar-
dalsvellinum. Aldrei fyrr hafa jafn marg-
ir mætt á völlinn til að hvetja kvenna-
landsliðið í knattspyrnu til dáða. Um sjö
þúsund áhorfendur létu sig hafa það að
sitja eða standa úti að kvöldlagi um haust,
í kaldri rigningu/slyddu, til að sýna stolt,
tiltrú og samstöðu með þessu frábæra
fótboltaliði.
ÞETTA var frábær leikur og sigurinn
dísætur. Ég fann stoltið ólga í mér og
hrópaði með hvatningarkórnum í sjón-
varpinu. Áfram Ísland! En liðið heyrði
ekki í mér því ég var ekki á staðnum.
Ég var þreytt, er engin sérstök áhuga-
kona um íþróttir, sýndist veður vott
og var að kvefast.
ÞAÐ að ég skyldi ekki mæta á
völlinn í fyrrakvöld segir ekk-
ert um afstöðu mína til lands-
liðs kvenna í knattspyrnu. Það
er ekki yfirlýsing um að mér
finnist fótbolti óþörf íþrótt
eða kvennafótbolti ómerki-
legri en karlabolti (það er
öfugt ef eitthvað er), sé ósátt
við aðstöðuna á Laugardals-
vellinum eða vilji mótmæla
veðurfari á Íslandi. Þeir sem
mættu, hrópuðu og fögnuðu
voru verðugir fulltrúar
mínir á staðnum og ég er líka stolt af
þeim fyrir að mæta.
MARGIR vilja þakka þessa góðu mætingu
bréfi, eða ávarpi öllu heldur, sem fór sem
eldur í sinu um vef og miðla í vikunni. Í
þessu ávarpi bauð þjálfari kvennalands-
liðsins okkur að breyta heiminum. Með
því að fjölmenna á völlinn gæti þjóðin sýnt
íþróttakonum og stelpum, og kannski í
leiðinni öllum konum og stelpum, að þær
séu jafnmerkilegar og karlar og strákar.
Eitt af því sem hann sagði í þessu bréfi
var: „Það er hægt að breyta heiminum. Ég
og þú getum það saman!“
ÉG gerði orð Sigga Ragga að mínum, viku
áður en þau náðu flugi á netinu. Ég mætti
niður í Laugardal, stóð í þremur biðröðum í
næstum því klukkutíma, missti af hádegis-
matnum og varð of sein á fund. Allt til að
krota tákn á blað. Ég mætti og nýtti kosn-
ingaréttinn minn af því að mér fannst það
skipta máli. Þeir sem heima sátu og mættu
ekki hafa allir sínar ástæður fyrir því og
þeirra hvatningarhróp eða óánægjuraddir
verða þeirra einkamál, alveg eins og þegar
ég hrópa Áfram Ísland! heima í stofu.
Aðeins þeir sem mæta eru taldir með, það
eru bara þeirra raddir sem heyrast. Það er
bara svo einfalt. Að nýta kosningaréttinn,
ekki síður en að mæta á völlinn og styðja
liðið sitt, er með betri aðferðum til að byrja
að breyta heiminum.
Þessir mættu
Eina sjónvarpsstöðin í heiminum sem helguð er sönnum sakamálum
ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS